Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Qupperneq 110
Tímarit Máls og menningar
helgað „vináttu“ og heitir IJf í Te'kkóslóvakíu. Ég hef fyrir framan mig í
júníheftinu 1980 ábúðarmikið ávarp eftir Vasil Bilak, ritara miðstjórnar
Kommúnistaflokksins. Fyrirsögnin er: Sósíalismi og friður eiga ávallt samleið.
Mlynar hefur afhjúpað fyllilega hlutverk Bilaks þegar svarf til stáls í Prag 1968.
Þar er því einu við að bæta, að ekki kom mér það á óvart, að á myndinni sem
fylgir ber Bilak nákvæmlega sama flóttalega og hvikula svipinn og Nixon
forseti þegar Watergate-málið var á döfinni.
Ég skil fullkomlega af hverju þér fyllist ógeði á þeim sem hafa það starf að
„elska friðinn“. Mér hefur verið sagt að nokkrir félagar í hinni opinberu
Tékknesku friðarnefnd hafi sýnt þann manndóm að mótmæla atburðunum
1968. Þeim hafi öllum verið vikið frá og ný „Friðarnefnd“ skipuð. Ef þctta er
satt, hefur END engan áhuga á að ræða við þá „Friðarnefnd“.
Þetta er þá ljóst. En þér ættuð ekki að láta góðan málstað friðar fyrir róða svo
fyrirhafnarlítið. Ég tek eftir því, að herra Bilak gerir einnig kröfu til þess að eiga
málstað „frelsis og mannréttinda". Hafið þér, af þeim sökum, einnig sagt skilið
við hann?
Onnur ástæðan. Ég hef grun um að viðbrögð yðar við END stafi af litlum og
hlutdrægum upplýsingum. Þér gerið táð fyrir að barnalegir og „góðviljaðir“
einstaklingar og samferðamenn þeirra hafi ýtt þessari hreyfingu úr vör í vestri.
Yður hefur ef til vill verið sagt að forvígismennirnir væru aT því sauðarhúsi.
Ég vil því aðeins koma því á framfæri, að forvígismenn og meiri hluti þeirra
sem undirrituðu Ávarp END, eru einstaklingar sem hafa árum saman látið
stuðning sinn við mannréttindi í Austur-Evrópu skýrt í ljós. Að vísu eru ekki
nema 25 ár síðan ég tók ótvírætt að leggja þessum málstað lið, en aðrir
forvígismenn hafa staðið í þessu lengur. Friðarstofnun Bertrands Russell, sem
hefur verið miðstöð fyrir dreifingu Ávarpsins og bréfaskipti um alla Evrópu,
hefur hvað eftir annað stutt málstað sovéskra og austur-evrópskra andófsmanna
og sérstaklega Mannréttindaskrá 77 með útgáfustarfsemi, almennum fundum
og bænarskjölum.
Þér megið spyrjast nánar fyrir um skilríki ef þér óskið þess. En þriðja ástæðan
fyrir grunsemdum yðar er ef til vill flóknari og óþægilegri en þessi. Þér hafið ef
til vill grunlaus fengið rangar upplýsingar.
Ég varð hissa að komast að því, þegar ég ræddi við vini í Prag, að á meðal
þeirra gesta sem fóru á milli vesturs og borgar yðar, voru ákveðnir einstaklingar
sem ég hef ástæðu til að ætla að starfi hjá vestrænum leyniþjónustum.
Ég hefði ekki átt að verða undrandi. Þetta er að sjálfsögðu snar þáttur
100