Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Blaðsíða 13
Sverre Bagge
Sagnfræðingurinn
Snorri Sturluson
Margar af frásögnum Snorra Sturlusonar í Heimskringlu eru nú taldar
flökkusögur eöa skáldskapur. Snorri var stjórnmálaskýrandi en auk þess
stjórnmálamaöur sjálfur, og skrif hans veita mikla innsýn í hugsunarhátt
13. aldarmanna. Snorri trúir aö Guö grípi inn í atburðarásina í sögu
Noregs, en þá skýringu lætur hann ekki duga eina saman, heldur beinir
hann sjónum aö hagsmunum og geröum höföingja hverju sinni. Hér er
frásögn hans af hentistefnumönnunum Kálfi Árnasyni og Einari þambar-
skelfi tekin sem dæmi um þaö. Þá er athyglisvert aö Snorri horfir oft til
samskipta höföingja viö alþýðu, en alþýöa kom yfirleitt mjög lítið viö sögu
í evrópskum sagnfræöiritum þessa tíma.
I ár er þess minnst bæði í Noregi og á íslandi
að 750 ár eru liðin síðan Snorri Sturluson
var veginn. Snorri var meðal fremstu höfð-
ingja íslands á 13. öld og einn glæsilegasti
fulltrúi blómaskeiðsins sem þá stóð á sviði
bókmennta og menningar. Höfuðrit lians,
Heimskringla, hefur engu að síður að veru-
legu leyti orðið hluti af norskum menning-
ararfi. Ekki svo að skilja að Norðmenn geti
eignað sér Snorra. Hins vegar hefur Heims-
kringla átt drjúgan hlut í að móta hugmynd-
ir manna um norska sögu á því tímaskeiði
sem hún lýsir, það er að segja fram að
orrustunni á Ré árið 1177. Kynslóð eftir
kynslóð hafa kennslubókahöfundar lýst því
er Ólafur Tryggvason gekk eftir árum út-
byrðis er menn hans reru, Erlingur Skjálgs-
son var höggvinn fyrir framan Ólaf konung
hinn helga eftir hetjulega vörn og Ólafur
sjálfur, þjóðhöfðingi og trúboði, átti í lang-
vinnum og sviptingasömum átökum við
höfðingja uns hann beið bana á Stiklastöð-
um. Við þykjumst líka vita hvemig þessar
hetjur litu út af því að við höfum séð frægar
teikningar af þeim eftir helstu listamenn
Norðmanna í Heimskringluútgáfunni frá
1899. Sjálfur er ég nægilega gamall til að
hafa haft Snorra sem sögukennara minn í
bamaskóla. Já, ekki bara það, því faðir
minn keypti Heimskringlu handa mér dag-
inn sem ég fæddist og las upphátt úr henni
fyrir mig um það leyti sem ég var farinn að
hafa gaman af sögum um bardaga og víg.
Snorri skipar ekki lengur sama sess í
TMM 1991:3
11