Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 45

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 45
þar gefur að líta fimm allpersónulegar árit- anir. Arið 1935 áskotnast Hallbimi Rauða hættan, bók um þá „rússnesku týranna“, eins og dr. Stefán Einarsson kemst að orði; umdeilt verk á sinni tíð enda gefið út af Sovétvinafélagi Islands. Áritunin er þessi: Hallbjörn Halldórsson. Með þökkum fyrir prófarkalesturinn og endurfæðinguna. Höf. Ekki vitu vér, við hvaða endurfæðingu (eða hvors) er átt, en nú líða stundir (fram), og 1957 kemur út bókin Um lönd og lýði. Það eru „blikur á lofti“. Spútnik enum fyrsta var skotið á loft 4. október og á braut um jörð, þar sem hann stóð sína plikt í 21 dag. Heimspólitíkin er alþjóðasinnanum Þór- bergi ofarlega í huga, og nú dugir ekkert „þjóðernisspangól“: Hallbjörn Halldórsson. Gleðileg jól og eld- flaugalaust nýár. Þórbergur. Rökkuróperan kom út árið 1958. Rómuð vandvirkni Hallbjamar bregst ekki Þór- bergi: Hallbimi Halldórssyni mínum lærðasta, glöggvasta og vandvirkasta prófarkalesara fyrr og síðar. Þórbergur Hallbjörn léstárið 1958. Sama árfær Krist- ín Ritgerðir 1924-1959 I og eilítið undar- lega kveðju: Kristín Guðmundsdóttir. Með hinstu kveðju. Þórbergur Með / Unuhúsi 1962 lýkur svo þessu snuðri mínu: Kristín Guðmundsdóttir. Einlægar óskir um uppbyggilegt nýár. Þórbergur. Ef einhver vildi halda leiknum áfram og leita betur, væri það vel þegið. Fleira leynd- ist á læknissetrinu í Vík, sem Þórberg varð- ar, en hér verður aðeins eitt talið. „Bréf til Maju“ birtist fyrst íTímariti Máls og men- ningar í júlímánuði 1957, og mun móðir mín fyrst hafa lesið það þar. Nokkru seinna barst henni svo bréfið sjálft handskrifað; gullfallegri rithönd Þórbergs ætti ekki að þurfa að lýsa. Með bréfinu fylgdi annað, líka handskrifað, svohljóðandi: 10./8. 1957. Það var ekki meiningin að birta þetta bréf á prenti. Eg byrjaði að skrifa það 17. janúar í einskonar óráði og lauk við það 7. febrúar. Síðan lá það hjá mér í aðgerðarleysi, aðal- lega vegna þess, að ég gat aldrei ráðið fram úr því, hvort ég ætti að skrifa utan á það María Skúladóttir eða María Skúladóttir Thoroddsen eða María Skúladóttir (Thor- oddsen) eða María Thoroddsen. I þessum vöflum flaug framhjá mér tíminn þangað til 10. mars. Þá kom Kristinn Andrésson hing- að, og mér varð á sú yfirsjón að láta hann heyra bréfið. Hann bað um það íTímaritið. Hann þrár og elskulegur, ég karakterslapp- ur og ellilinur og lét þetta eftir honum. úr því varð bréfið að bíða, þangað til búið væri að setja það í prentsmiðjunni, og ég fékk kærkominn frest á utanáskriftinni. Eg breytti smávegis í próförk.og þærbreyting- ar fannst mér ég verða að færa inn í bréfið, til þess að allt stæði heima, um hvað bréfið ber nokkur merki. Nú var prófarkalestri og leiðréttingum lokið. Þá reis aftur í miklum ægileik vanda- málið Skúladóttir, Skúladóttir Thoroddsen, Skúladóttir (Thoroddsen), Thoroddsen. Frestur er á illur bestur, hugsaði ég. Ég læt þetta bíða, þangað til Tímaritið kemur út. Þá sendi ég bréfið, ket einhvem slag standa með utanáskriftina, og María fær bréfið um svipað leyti og Tímaritið. Og ég fór austur TMM 1991:3 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.