Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 70
á þessu ferðalagi. Hún er minni, grennri og snör í hreyfingum. Hún þarf næstum að hlaupa til að hafa við honum en læturekki eftir sér að dragast aftur úr. „Sjáðu,“ segir hún allt í einu. Hann lítur á hana og hún geiflar munninn framan í hann. „Sjáðu, það eru tvær lausar.“ Hann hægir ferðina og lítur upp í hana. Hún hreyfir fingurinn uppi í sér. „Mér er alveg sama.“ „Ef ég missi þær bráðum þá er ég búin að missa fleiri en þú.“ Hún horfir á hann sigri hrósandi. „Við verðum að flýta okkur.“ Hann herðir aftur gönguna. Þau koma að hestagerðinu. Þar eru aðeins tveir hestar. Annar er rauður og smávaxinn, hinn er skjóttur og allur mun stærri og reistari. Þeir líta upp þegar krakkamir nálgast en halda svo áfram að bíta. Krakkamir taka varlega af sér beislin og leggja annað á þúfu. Hitt beislið tekur drengurinn og gengur rólega að skjótta hestinum. Hann réttir fram höndina: „Sona, sona, Skjóni minn, sona, sona.“ Þannig mjakast hann áfram þangað til hann hefur náð taki á faxi hans. Hesturinn heldur áfram að bíta í rólegheitunum og nærvera þessara hestamanna virðist ekki trufla hann hið minnsta. Stelpan kemur nú til þeirra og er með grasbrúsk í hendinni. Drengurinn lyftir höfði hestsins og heldur mélunum neðan við snoppu hans. Stelpan réttir grasbrúskinn að munni hestsins og um leið og hann opnar munninn til að bíta í brúskinn skellir drengurinn mélunum upp í hann. Nú verður hesturinn að setja höfuðið niður aftur og halda áfram að bíta af jörðinni því öðmvísi ná litlir hestamenn ekki til að koma höfuðleðrinu aftur fyrir eyru stórra hesta. Nákvæmlega sama aðferð er höfð við að beisla hinn hestinn. „Farðu á bak, ég skal opna hliðið,“ segir drengurinn borginmannlegur og teymir Skjóna í átt að hliðinu. Stelpan skellir sér upp á háls hestsins og rekur fætuma létt í kjálka hans, við það lyftir hann höfðinu og hún er komin á bak, öfug reyndar, en hún er ekki lengi að bjarga því heldur snýr sér snarlega við og horfir nú fram og getur tekið í tauminn og riðið af stað. Drengurinn bíður meðan Litli-Rauður og stelpan fara í gegn, lokar hliðinu, teymir að stórri þúfu og hoppar á bak. Hestamir skokka létt í gegnum kjarr og mýrar. Troðningurinn er blautur og það heyrist soghljóð þegar hófamir dragast upp úr brúnni 68 TMM 1991:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.