Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 89

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 89
að lýsa hlægilegu hliðinni á þessum dapur- leika. Hið hlægilega í kynlífinu: Hugmynd sem hvorki siðvöndunarmenn né nýfrjálslyndir gætu nokkumtíma fallist á. (Ég er þá að hugsa um D.H. Lawrence, þennan dygga stuðningsmann Erosar, um Sjókoloff íElsk- huga lafði Chatterley sem hefur samfarir grafalvarlegur og reynir að gefa kynlífinu gildi á ný með því að gera það ljóðrænt og rómantískt. En ljóðrænt kynlíf er margfalt hlægilegra en hin ljóðræna tilfinningasemi síðustu aldar.) Erótíska gersemin í Ameríku er Brunelda. Federico Fellini varð hugfanginn af henni. Hann hefur lengi dreymt um að gera kvik- mynd eftir Ameríku, og í Intervista sýndi hann okkur atriði þar sem hann var að velja leikkonu til að leika hlutverk hennar í þess- ari langþráðu kvikmynd: Fellini lét fjölda ótrúlegra leikkvenna sækja um hlutverk Bruneldu, leikkonur sem hann hafði valið af þeirri skrautlegu gamansemi sem hann er frægur fyrir. (Og ég vil undirstrika: Kafka var álíka skrautlega gamansamur. Því Kafka þjáðist ekki fyrir okkur! Hann skemmti sér fyrir okkur!) Brunelda með litlu feitu hendurnar sínar situr í stórum hægindastól, dálítið gleið. Brunelda, fyrrum söngkonan, sú sem er „ákaflega viðkvæm“ og „með gikt í fótun- um“. Brunelda sem er svo stór og mikil um sig að „hún gat varla beygt sig, og það með miklum erfiðismunum, stunum, blóti og ragni, nema rétt til að ná að grípa efst í sokkana sína og rúlla þeim eilítið niður“. Brunelda sem sviptir upp um sig kjólnum og þurrkar tárin framan úr Robinson með kjólfaldinum. Brunelda sem getur ekki gengið upp tvær, þrjár tröppur og verður því að bera upp tröppurnar, og þegar Robinson Fræg mynd af Kafka (hér á nærbol frá sænskri bókaverslun), sem ef til vill hefur ýtt undir dýrlingsímyndina. Á bolnum stendur: Kafka leið ekkert vel heldur. sér það verður hann svo djúpt snortinn að hann stynur það sem eftir var ævinnar: „Mikið var hún falleg, þessi kona, Guð minn góður hvað hún var sæt!“ Brunelda bak við gluggatjöld, standandi í baðkeri, nakin, Delamarche að þvo henni og hún sfkvartandi og æpandi skipanir. Brunelda liggjandi nakin í þessu sama baðkeri, lemj- andi hnefanum í vatnið öskureið. Brunelda sem tveir menn eru tvo tíma að hjálpa niður stiga til að koma henni fyrir í hjólastól sem Karl ætlar að ýta um borgina þvera til ein- hvers dularfulls áfangastaðar, sennilega hóruhúss: Sjal hefur verið breitt svo kyrfi- lega yfir hana að þegar þau mæta löggu á leiðinni heldur hún að hér sé verið að flytja tíu kartöflupoka milli staða. Það nýstárlega við lýsinguna á þessum TMM 1991:3 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.