Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Side 57

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Side 57
ur, víkinga og konunga sagnanna og bágum kjörum sínum breytir hún ekki nema hún horfist í augu við það eins og Ugla. Þannig vísarAtómstöðin beint fram til Gerplu: hinn ótvíræði styrkur íslenskra múgamanna um aldir, líf þeirra í og með fomsögunum, er auðsæjasti vanmáttur þeirra. Raunsæi gegn makaríni Á næstu ámm, þegar Halldór er tekinn til við að semja Gerplu, skrifar hann sitthvað um menningararfinn og er þar einna merk- ust ritgerðin „Lítil samantekt um útilegu- menn“ sem birtist árið 1949. Þar sem í henni birtast áþekkar vangaveltur og í „Minnisgreinum um fomsögur“, hyggst ég þó hlaupa yfír hana hér og víkja að endingu að erindinu „Vandamál skáldskapar á vor- um dögum“ sem Halldór flutti í Norsk stu- dentersamfund í Osló árið 1954 — tveimur árum eftir útkomu Gerplu. í erindinu birtist kjaminn í hugmyndum hans um skáldskap á fímmta áratugnum og við upphaf hins sjötta. Þar setur hann þjóðfélagsmál í brennidepil og lýsir því yfir að brýnasta spurningin sem listamenn samtímans þurfi að svara sé ekki „í fyrsta lagi vandamál skáldskaparins" heldur hvort þeir vilji leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir atómstríð.48 Hann límr m.ö.o. svo á að listin sé eitt af tækjum mannsins til að ná stjórn á veruleikanum og móta hann. Hann ásakar „menníngarfrömuði“ samtímans um að „láta stjórnmálamönnum orðið eftir“ — „það orð sem var köllun þeirra og skylda“; hann telur dijúgan hluta listamanna, eink- um á Vesturlöndum, ekki aleinasta afneita lífinu, heldur kæra sig kollótta um að ná sambandi við almenning og hafa fyrirlitn- ingu á því sem kalla má „alþýðlegt, blátt áfram og áþreifanlegt".46 Hann tekur og afstöðu til hinna skiptu skoðana sem komið höfðu fram um raunsæi næstu áratugina á undan og setur fram skilgreiningu sem er í ýmsu lík raunsæisskilgreiningu Brechts. Hann mælir t.d. gegn því að natúralismi eða „ljósmyndaraunsæi“ eins og hann nefnir það oftast, sé talið hið eina sanna raunsæi í listum; vísar á bug hugmyndum um að 20. aldar höfundar séu því aðeins raunsæishöf- undar að þeir skrifi sem 19. aldar höfundar væru og andmæhr því að form sé yfirleitt notað sem mælikvarði á raunsæi. Hins veg- ar leggur hann áherslu á víxlverkun lista- verksins og veruleikans og segir m.a.: Raunsæisstefna er í mínum augum ekki... sérstakt form; hún getur verið öll form; hún er umfram alt listastefna eða bókmenta sem hefur áhrif á veruleikann af því að hún á rætur sínar í veruleikanum og sinnir þar ákveðinni þörf; listastefna sem hefur áhrif á öldina af því að hún tjáir öldina, andlit aldarinnar, sál aldarinnar, þjáníngu aldar- innar, þrá aldarinnar.47 Sem dæmi um raunsæja listamenn í fortíð- inni tekur Halldór íslenska sagnamenn forna. Af listamönnum samtíðarinnar nefn- ir hann hins vegar fýrst Picasso, Neruda, Brecht og Chaplin og vegna þess sem áður hefur verið rætt um er kanski ástæða til að geta þess að í hópnum er ekki aðeins mynd- listarmaður og kvikmyndaleikstjóri heldur og rithöfundur sem samdi mörg kvik- myndahandrit og beitti óspart kvikmynda- tækni í skáldverkum sínum.48 Til viðbótar þessum Qórum telur Halldór svo Eliot sem er að hans sögn fulltrúi „þeirra strauma aldarandans sem bera einkenni anglókaþ- ólsku, fommentastefnu og amrískrar kon- úngsstjómarstefnu11.49 Með þessari sam- TMM 1992:4 55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.