Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Matur og drykkir
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
61
88
5
11
/1
2 ...kemur með góða bragðið!
Settu hátíðarkraft í
sósuna með Knorr
– kraftinum sem þú
þekkir og treystir!
Hátíðarkrafturinn
kemur úr Knorr
u.þ.b. 15 stk.
250 g ren rå marsipan
2-3 eggjahvítur
50 g ljóst súkkulaði
½ krukka dulce de leche
Aðferð: Ofninn er hitaður í
180°C. Marsipanið er rifið á rifjárni
og sett í skálina á hrærivél og hrært
á litlum hraða. Eggjahvítunum er
blandað út í jafnt og þétt á meðan
hrært er, deigið á að vera mjúkt en
ekki laust í sér. Það er sett í
sprautupoka með meðalstórum
stút og topp á stærð við valhnetu
sprautað á pappírsklædda bök-
unarplötu, með jöfnu millibili. Bak-
að í 10-12 mín., eða þar til þær eru
gylltar, kældar á grind. Súkkulaðið
er brætt yfir vatnsbaði og sett í
sprautupoka með mjög litlum stút
og drussað yfir kældar kökurnar,
eða með gaffli, kælt. Þykku lagi af
karamellukremi er smurt á botninn
á einni köku og önnur lögð ofan á.
Ég hef notað tilbúinn kransamassa
til að gera kökurnar og það er í fínu
lagi líka. Má frysta.
Nýárs-kransakökusamlokur
með dulce de leche
24 stk.
200 g kjúklingabringur eða
filet, grófsaxaðar
150 g beikon, saxað
1 hvítlauksrif, marið
3 vorlaukar, saxaðir
2 msk. ferskt kóríander, saxað
1 chili, fræhreinsað og
fínsaxað
1 msk. fiskisósa
1 egg
1 tsk. ferskt engifer, rifið
400 g frosið smjördeig
1 eggjarauða, þeytt
2 msk. sesamfræ, svört eða
ljós
til að dýfa í: sweet chili-sósa
Aðferð: Ofninn er hitaður í
180°C. Kjúklingur, beikon, hvít-
laukur, vorlaukur, kóríander, chili,
fiskisósa, egg og engifer allt sett í
matvinnsluvél og hakkað þar til
það er lauslega blandað saman
(ekki of mikið). Smjördeiginu er
rúllað út, langsum í 100 kr. penings
þykkt, á hveitistráð borð. Fylling-
unni er skipt jafnt á deigplöturnar,
jaðrarnir á langhliðunum eru
penslaðir með vatni og deiginu
rúllað þétt utan um fyllinguna.
Lengjurnar eru penslaðar með
þeyttri eggjarauðu og sesam-
fræjum stráð yfir. Á þessu stigi er
hægt að frysta rúllurnar. Þær eru
svo skornar í 3 cm bita og bakaðar
í 15 mín., eða þar til þær eru gyllt-
ar og bakaðar í gegn. Bornar fram
með sweet chili-sósu.
Thai-kjúklinga-smjördeigsrúllur
Morgunblaðið/Kristinn
*Ætli það megi ekki segja að ég sé ansiilla haldin af mataráhuga. Flestallt semviðkemur mat vekur áhuga minn.
Ef einhverjir eru í
vandræðum með
hvað skal bjóða upp á
í gamlárspartý er hér
úr mörgu að moða.