Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 31
EFINN ER ÆÐSTUR ALLRA GILDA
komast í gegnum veggi, vera lítill. Ævintýrið um Tuma þumal er af þessum
toga spunnið. Slíkar persónur eiga sér djúpar rætur í hefðinni, í þeirri námu
þýskra ævintýra sem höfundar rómantíska tímabilsins grófu úr gleymsku.
L.P.: Þú talaðir um að tækni Döblins hefði verið fútúrísk. Ég myndi hins vegar
kalla bækur þínar kúbískar freskur. Þær eru bókmenntalegur kúbismi. Það
er ekki nóg með að við fáum að sjá þær hliðar sem faldar eru, heldur sjást
áhrif hverrar hliðar á allar hinar hliðarnar. Ef til vill byggist fegurðin í verkum
þínum á þessari víxlverkun. Hafa vinnubrögð þín sem ungur myndlistar-
nemi á sjötta áratugnum haft áhrif á vinnubrögð rithöfundarins?
G.G.: Höfundar af minni kynslóð, og yngri höfundar þess þá heldur, eru allir
viðvaningar í samanburði við módernistana miklu í upphafi aldarinnar. Öll
höfum við notið góðs af hinum miklu uppgötvunum þeirra. Þeir Joyce og
Proust skrifuðu hvor um sig á nýstárlegan hátt um minnið, hvernig smám
saman er hægt að flysja utan af ákveðnum minniskjarna. Kúbisminn breytti
sýn okkar á myndlist og höggmyndalist. Nú lítur okkar kynslóð á kúbismann
sem klassísk verk, en við megum ekki gleyma því að hann var alger bylting
á sínum tíma. Menn áttu síður en svo auðvelt með að sætta sig við að allar
hliðar tiltekins hlutar gætu sést samtímis á myndfletinum. Þetta hafði gríð-
arleg áhrif á hugmyndir mínar um skáldsöguna. En einnig hafði það áhrif á
vinnubrögð mín. Ég þekki fjölda rithöfunda sem vinna hverja blaðsíðu þar
til hún er orðin fullskrifuð, og byrja síðan á þeirri næstu. Ég skrifa hins vegar
ævinlega nokkur tilbrigði við bækur mínar, stundum fjögur eða fimm,
þannig að ég geti haft alla skáldsöguna undir allt til enda. Og ég gæti þess að
yfírborðið verði ekki pússað of snemma, að það sé dálítið gróft, að það sé
hægt að meitla það allt til síðustu stundar, að ég geti alltaf snúið til þess aftur.
Það að snúast í kringum verkið er eflaust reynsla sem ég hef öðlast sem ungur
myndhöggvari. Þetta er eflaust einnig ástæðan fýrir því að ég skrifa standandi.
L.P.: Þú ert með sýningu um þessar mundir ...
G.G.: Já, í Aachen. Grafílcverk, teilcningar, vatnslitamyndir og fimm eða sex
höggmyndir.
L.P.: Þú fæst þá ennþá við höggmyndalist!
G.G.: Ekki við höggmyndalist um þessar mundir. Hún er ansi mikill tíma-
þjófur, það er eldd hægt að fást við hana í hjáverkum. Hins vegar er hægt að
yrkja ljóð í hjáverkum. Það fer alls ekki saman að skrifa skáldsögur og gera
TMM 1998:1
21