Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 69

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 69
FÍFLIÐ ER ENGINN FÁVITI Margvíslegar rætur Þegar Dario Fo og Franca Rame héldu sýningar í Berlín 1983 lentu þau samt í hálfgerðum vandræðum. Leikirnir sem þau sýndu voru ætlaðir almúgafólki og menntamönnum á vinstrivæng, en á þessu skeiði skiptust pólitískar skoðanir mjög í tvö horn með tilheyrandi tortryggni. Döprum huga gerðu hjónin sér ljóst að þýska vinstrimenn skorti skynbragð á skop og háð. En Dario Fo var víðlesinn og sjóaður skemmtikraftur og lét sig ekki muna um að halda óundirbúinn fyrirlestur um eðli gamanseminnar með fjölmörgum dæmum úr þýskri sögu og þýskum bókmenntum. Þá loks fóru leikhúsgestir að taka við sér. Fo sýndi frammá með fáum velvöldum orðum að gaman- semin er einatt nátengd siðvenjum og hugmyndum samfélagsins, að ógleymdum fordómunum. Sem fyrr segir, byggir Dario Fo á commedia delVarte. Þessi ítalska leikhús- hefð með sínum stöðluðu manngerðum, spaugilegu atvikum og spuna, sem stundum jaðrar við aulafýndni, á upptök sína á 16du öld og stóð með miklum blóma frammá ofanverða 18du öld. Raunar má sjá samband milli commedia delVarte og hinna fornu alþýðlegu gamanleikja, atellan-farsanna (nefndir eff ir bænum Atella), sem byggðir voru upp kringum fjórar staðlaðar persónur með afkáralegar grímur: Marcus (sauðheimski trúðurinn), Pappus (nirfillinn), Dossennus (lærði bragðarefurinn) og Bucco (montni mathák- urinn). öðru fremur á þó commedia delVarte rætur að rekja til kitlandi og kaldhæðinna ljóðafrásagna hnífa- og boltakastara á miðöldum, ærslanna á kjötkveðjuhátíðum, og loftfimleika og fíflaláta sem æringjar frömdu á mark- aðsdögum. Helstu persónur í commedia delVarte voru Kólumbína (ástfangna blómarósin), Pantalone (ágjarni mangarinn), Pulcinella (slæga og illkvittna þjónustan), Pierrot (geðgóði klaufabárðurinn) og loks Arlecchino, klæddur skræpóttum búningi. Á frönsku ber hann heitið Harlequin. Hann er ævin- lega ástfanginn og offlega svikinn. En þó vonir hans séu að engu gerðar, nær hann sér brátt á strik aftur, enda lætur hann auðveldlega huggast. Frá öndverðu var hann slunginn og málsnjall loddari með hjartað á réttum stað. örsnauður og sísvangur þjónn. Bragðvís en barnalegur. Smámsaman þró- aðist hann og varð slóttugur trúður og háðfugl, lykilpersóna á leiksviðinu sem útskýrir og gerir athugasemdir við atvik daglegs lífs. Það er þessi Harlekín sem Dario Fo endurvekur í glæsilegri nútímaútgáfu. Samfélagsádeilan og bersögult glensið um kynferðismál, sem auðkenndi commedia delVarte, gerði það að verkum að orðfimir gamanleikararnir með sínu tjáningarfúlla látbragði og ögrandi sviðshreyfingum gengu oft í berhögg við ríkjandi samfélagshefðir. Að vísu var ekki ótítt að leikarar væru hylltir og TMM 1998:1 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.