Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 70
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON verndaðir af furstum og kardínálum, en jafnalgengt að þeir væru ofsóttir jafht af veraldlegum sem kirkjulegum pótintátum. Ekkert er líklegra til að herpa varir strangtrúaðra manna en skop um helga hluti. Að öllu öðru má skopast og hæðast; aðeins ekki þessu. En þetta er einmitt það sem Dario Fo gerir. Rómversk-kaþólska kirkjan hefur jafhan verið einn af helstu skotspón- um hans. Commedia delVarteá tti eftir að hafa mikil áhrif á evrópskt leikhúslíf á 19du og 20stu öld í átt til djarfari líkamstjáningar. önnur listform urðu sömuleiðis fyrir áhrifum úr þeirri átt, svosem brúðuleikhús, kvikmyndir og fjölleikahús. Ugluspegill Annar merkilegur áhrifavaldur voru hinar ærslafullu prakkarasögur um Till Eulenspiegel og lífsferil hans. Hafi þær einhver tengsl við veruleikann eða sannfræðina, þá hljóta þau að vera mjög óveruleg. Meðþví ævintýrin um Eulenspiegel varðveittust í munnlegri geymd í hálfa aðra öld áðuren þau voru færð til bókar, urðu þau æ langorðari og glæfralegri. Hænu^öðrin varð að heilu hænsnabúi. Eulenspiegel á Dario Fo að nákomnum sálufélaga. Ugluspegill, einsog skelmirinn er nefndur á íslensku (sögur hans hafa tvisvar komið út hérlendis, 1934 og 1956), er ekki uppdiktuð persóna. Hann fæddist í Braunschweig undir lok 13du aldar. Hann var orðlagður svika- hrappur og fékkst við æðimargt, ferðaðist bæði til Póllands og Rómar í því skyni að keppa við hirðfífl samtíðarinnar. Síðan flæktist hann um Þýskaland til að skemmta bæði sjálfum sér og öðrum. Úr öllusaman varð ósvikið, gróft og heilsteypt bændaspaug, einskonar húspostilla spaugseminnar. Frásagnirnar eiga uppruna sinn að rekja til aldarbragsins sem auðkenndi lágstéttirnar í Þýskalandi. Mergjað, óheflað og ósæmilegt orðfærið speglar tíðarandann, en Ugluspegill er líka gæddur skapgerð sem er nokkurskonar þverskurður af hugsunarhætti almúgans. Hann er í forsvari fyrir þá sem fyrirlitnir eru og ósmeykur við að draga dár að drambsemi valdsmanna og handbenda þeirra. Hnyttni landshornamannsins, spaugsemi alþýðunnar er persónugerð í hinum orðhaga og orðskáa Ugluspegli sem flækist meðal manna úr öllum stéttum og starfsgreinum - ævinlega á stiklum æðri vísdóms. Hann getur verið erfiður og þreytandi, en hann lætur aldrei hefta sig. Hann vill ekki heyra neinum til; hann er að eigin frumkvæði skálkur, fífl og einvaldur. I hlutverki hirðfíflsins er hann frábrugðinn þeim hirðfíflum sem höfðu heimild furstans til að vera óskammfeilnir. Hirðfíflið vissi að furstinn vildi fá gróft og móðg- andi glens. Eiaðsíður varð það að fara varlega, því til var í dæminu að furstinn reiddist og hrópaði: Af með hausinn á fíflinu og setjið annan í hans stað! 60 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.