Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Síða 77

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Síða 77
UM SÖGU - DE HISTORIÁ viðurkenna að Árni Magnússon var alltaf að og í vissum skilningi ekki allur þar sem hann var séður. Ekkert er alfarið rangt af því sem þegar er sagt, en að hinu ber að gæta að það fór honum best að skrifa eða segja fyrir stuttar minnisgreinar um afmörkuð atriði, einkum handrit. Hann var líka duglegur að skrifa bréf. Opinber vettvangur heillaði hann hins vegar ekki og frægð meðal fræðimanna í Evrópu var ekki á stefnuskránni. Samt er sem á stundum hafi hvarflað að honum að hann yrði að láta að sér kveða til að vera maður með mönnum, en aldrei varð neitt úr því, fyrir utan það smáræði sem þegar er nefnt og sárafáa ritgerðarstúfa á latínu, alþjóðlegu fræðimannamáli sam- tímans, sem hann lét eftir sig í þokkalega samfelldu máli. Hann skrifaði um staðarnafnið Gandvík og hvað væri gotnesk tunga, en hafði jafnffamt skoðun á tungumáli og búferlaflutningum norrænna þjóðflokka til forna.4 Þar eru á ferðinni smásmugular hugleiðingar um afmörkuð atriði, að öllum líkind- um ætlaðar vinum hans meðal danskra ffæðimanna. Eina umfjöllun Árna um nokkurn hlut sem hefur á sér aðferðafræðilegan og allt að því heimspeki- legan blæ er sú sem hér birtist í íslenskri þýðingu. Finnur Jónsson gaf ritsmíðina út á frummálinu, latínu, sem allt að því samfellda ritgerð undir heitinu „De studio historico", en það blekkir lesand- ann. Árni samdi ritgerðina, ef ritgerð skyldi kalla, í sex lotum, en raðaði brotunum saman síðar og setti fyrirsögnina „De historiá“ á forsíðu 1 tilefhi af því. Þetta kemur greinilega fram í eiginhandarriti hans í AM 228 8vo, bl. 83-93.5 Mér virðist sem greinarnar séu skrifaðar skömmu eftir að Árni kom til Kaupmannahafnar eftir dvöl á íslandi við gerð jarðabókar, það er að segja á árunum 1713-1720. Ekki er ljóst hver tilgangurinn var eða hverjir viðtak- endur áttu að vera. Hugsanlega undirbjó hann kennslu eða honum datt þetta í hug við lestur bóka. Margt er þarna bitastætt og fróðlegt aflestrar, en ekki verður farið frekar út í það hér. Þó nefni ég áherslu Árna á gildi samtímasögu og nauðsyn orsakaskýringa, en slíkar skoðanir virðast ekki í rökréttu sam- hengi við annað sem vitað er um áhugamál hans og aðferðir. Ekki þarf að útskýra neitt í fyrstu greinunum, en umfjöllunarefni þeirrar síðustu kann að þykja kyndugt við fyrstu sýn. Þar tekur Árni afstöðu í miklu hitamáli samtímans, sem helst líkist ágreiningi nú til dags um það hvort fótnótur eigi að vera neðanmáls eða aftanmáls eða þá alls ekki með. Gögn sem sagnfræðingar á 17. öld notuðu við vinnu sína voru að mestu leyti óprentuð og menn lögðu ofurkapp á að birta þau í heild svo aðrir fengju notið. Deilan snerist um það hvort ætti að gera það jafnóðum í meginmáli eða sérstaklega aftast. Til dæmis um hið síðara má nefna bók sem hefur verið ljósprentuð og er til í Þjóðarbókhlöðu. Það er saga Genfar effir Jacob Spon (1647-1685), sem kom út í endurskoðaðri útgáfu að honum látnum árið 1730. Fyrra bindið geymir texta höfundar með athugasemdum útgefandans, TMM 1998:1 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.