Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 78
ÁRNI MAGNÚSSON Jean-Antoine Gautier, á 556 blaðsíðum, en í síðara bindi bætti Gautier við 75 skjölum og 57 innsiglum á nærri 300 blaðsíðum. Réttlæting hans fyrir því var einmitt sú sem Árni nefnir, að ekki nægði að fullyrða um staðreyndir heldur þyrfti að rökstyðja sannleikann með sönnunum.6 Mannanöfn í seinustu greininni þarfnast líka örlítillar útskýringar og mun Clericus vera Jean Le Clerc (1657-1736), mikilvirkur og deilugjarn guðfræð- ingur og sagnfræðingur, en þekktastur fyrir bókina Ars critica og ritstjórn á tímaritunum Bibliothéque universelle et historique, Bibliothéque choisie og Bibliothéque ancienne et moderne. Meibom eldri (1555-1625) var prófessor í bókmenntum og sagnfræði í Helmstedt í Þýskalandi og gaf út aragrúa rita um forn fræði, en sonarsonur hans Heinrich Meibom yngri (1638-1700) var læknir og sagnfræðingur, um nokkurt skeið kennari í sömu greinum á sama stað og afi hans. Gilbert Burnet var enskur sagnffæðingur og biskup (1643- 1715), en Cæsar Baronius (1538-1607) bókavörður í Vatikaninu og gaf út kirkjusögu í tólf bindum. Gerhard Johannes Vossius (1577-1649) var einn þekktasti fræðimaður síns tíma og kenndi lengi við háskólann í Leiden.7 Ekki hvarflar að mér að gera tilraun til að rekja þá staði sem Árni vísar til. Latínustíll Árna er heldur tyrfinn, setningar langar og merkingin ekki alltaf nógu ljós. Þýðingin einfaldar uppbygginguna örlítið til skilningsauka, án þess þó að skerða hár á höfði textans. Hér eru sett númer framan við einstakar greinar Árna. Hann setti sjálfur greinaskil í aðra greinina, en hér er þeim bætt inn í þá síðustu. Frederick M. Ahl, Ólafi Halldórssyni, Sigurði Péturssyni og Sveinbirni Rafnssyni er þakkað fyrir ómetanlegar ábendingar. Már Jónsson 1 Christian Gottlieb Jöcher, Allgemeines Gelehrten-Lexicon. Fjögur bindi, Leipzig 1750-1751: III, d. 39. 2 Ritgerðin er endurprentuð í Arne Magnussons levned og skrifter. Finnur Jónsson gaf út. Tvö bindi, Kaupmannahöfn 1930: II, bls. 114-15. Um tímaritið, sjá Asta Ekenvall, „Om de första larda tidskrifterna.“ Lychnos 1941, bls. 189. Árna til afbötunar varðandi íslend- ingabók skal þess getið að mikið liggur eftir hann til undirbúnings útgáfunnar, sjá Levned og skrifter II, bls. 1-108, en ekki síður handritin AM 364 4to og AM 254 8vo í varðveislu Árnastofnunar á Islandi. 3 Levned og skrifter I, 2, bls. 41—42; Arne Magnussons private breweksling. Kristian KSlund gaf út. Kaupmannahöfn 1920, bls. 33. 4 Levned og skrifter II, bls. 109-13 og 288-90. 5 Levned og skrifter II, bls. 123-26. Finnur sleppir fyrirsögn og fyrstu klausu. Handritið er geymt í Árnasafni í Kaupmannahöfn og enn sem komið er ekki til á ljósmyndum í Reykjavík. 6 Jacob Spon, Historie de Genéve. Tvö bindi. Ljósprentuð útgáfa, Genf 1976. Rökstuðningur fyrir birtingu skjala er í inngangi að fyrra bindi, bls. ii-iii: „Mais, comme il ne suffit pas 68 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.