Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 95

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 95
„DORDINGULL HÉKK ÉG í LÆBLÖNDNU LOÉTI“ menningar á ystu snös. Til marks um ófremdarástandið í menntamálum samtímans heldur Kristján því fram að Shakespeare sé ekki lengur lesinn í mörgum bandarískum háskólum. Nú er svo komið að hægt er að skoða námsefhislista háskóla á vefnum (sjá t.d. http://www.globalcomputing.com/college/collegeb.html). Ég fór því inn á heimasíður bandarískra enskudeilda og leitaði staðfestingar á þessum skelfilegu fféttum. Af handahófi valdi ég alla þá háskóla sem höfðu upphafs- stafinn B í nafni sínu, alls 38 skóla. Þeir 23 skólar sem birtu námsefnislista voru allir með námskeið helgað úthýsta leikskáldinu hans Kristjáns á skóla- árinu 1996-97 og sumir fleiri en eitt, alls voru það 36 námskeið. Shakespeare er þó kenndur víðar innan enskudeilda. Á hverju ári eru eitt eða fleiri leikrit lesin í enskri bókmenntasögu, harmleikjanámskeiðum, í 17. aldar bók- menntum og fræðilegum námskeiðum. I Boston College vormisserið 1997 eru þrettán námskeið með einu eða fleiri leikritum. Ég fór fljótt yfir námsefni hvers skóla og vafalaust eru fleiri námskeið helguð Shakespeare og hann kenndur í fleiri yfirlitsnámskeiðum. Sem dæmi má nefna að sá skóli sem ég útskrifaðist ffá og þekki því best, University of Texas í Austin, er með 18 námskeið helguð Shakespeare einum á BA stigi skólaárið 1996-97. Svo virðist sem Kristján hafi í þessu tilviki vanrækt þá grunnskyldu fræðimanns- ins að færa rök fyrir skoðunum sínum. Kristján telur Shakespeare standa ógn af pólitískum rétttrúnaði kvenna- fræðinnar. Hér má greina þá hugmynd sem Ben Jonson lýsti svo glæsilega að Shakespeare tilheyri ekki „einni öld, heldur öllum tímum!“ (Jonson 264). Samkvæmt því gætu 20. aldar kvenffelsishugmyndir brenglað ,sannan’ skiln- ing okkar á verkum sem hafin væru yfír tímabundið gildismat og ,rétt svör‘ vafasamrar samtíðarrökvísi græfu undan eilífum sannleika leikritanna. Út ffá jafnréttissjónarmiði væru þau óhentug leiðsagnarrit um stöðu og hlut- verk kvenna í nútímasamfélagi, en slíkt sjónarmið bæri þá að sama skapi að forðast. í bókmenntafræði samtímans hefur hefðbundin fagurfræði smám saman vikið fyrir greiningu sem tekur mið af fjölmörgum félagslegum, bókmennta- legum og sögulegum þáttum. Staða hefðarbókmennta er þó enn sterk, enda eru brautryðjendur nútímagreiningar íhaldssamari en bæði þeir sjálfir og andmælendur þeirra vilja viðurkenna. Klassíkin er einnig lesin vegna þess að hún er mikilvægur vitnisburður um sögulegt gildismat. í greiningu á klassískum endurreisnarbókmenntum hafa femínískir fræðimenn síðustu ára farið í saumana á þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki kven- og karllýsingum og margt af því vandaðasta sem skrifað er um endurreisnar- leikritun kemur frá þessum bókmenntafræðingum. Bækurnar eru fleiri en svo að hægt sé að nefna nema örfá dæmi, en lesendum til glöggvunar má TMM 1998:1 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.