Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Side 117

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Side 117
Ritdómar Fagurhrein og tær kvæði Sigfús Daðason: Og hugleiða steina. Þor- steinn Þorsteinsson gaf út. Forlagið. 1997. Og hugleiða steina er sjötta ljóðabók Sig- fúsar Daðasonar og kemur út að honum látnum en hann lést þann 12. desember 1996. Sigfus hóf ungur að yrkja, fyrsta ljóð hans birtist á prenti árið 1945 þegar hann var aðeins sautján ára. Fyrsta ljóða- bók hans Ljóð 1947-1951 kom út árið 1951. Hér var á ferð óvenjufágað og frumlegt byrjandaverk sem markaði tímamót í íslenskri ljóðagerð ásamt Svartálfadansi Stefáns Harðar og Imbru- dögum Hannesar Sigfússonar. Sigfús fer ótroðnar slóðir í skáldskap sínum, hafn- ar leiðsögn hefðarinnar en tileinkar sér margt nýtt úr ljóðagerð evrópskra sam- tímaskálda. Meðal helstu áhrifavalda má nefna T.S. Eliot, R.M. Rilke og Paul Élu- ard. Eliot hafði mikil áhrif á módern- ismann með kenningum sínum og skáldskap, bæði kenning hans um að hlutverk skáldsins sé að finna „hlutlæga samsvörun“ og „ópersónuleika" lista- mannsins í listaverkinu og nauðsyn þess að þekkja vel til heimsbókmenntanna, öll skáld væru stöðugt að vísa til hefðar- innar og koma ffam með nýjar hug- myndir, því hefðin er í stöðugri mótun og skáldskapurinn þarf sífellt að leita nýs forms ef skáldskapurinn á að lifa. Næmi og íhygli Rilkes virðist einnig hafa haft mikil áhrif á Sigfús. Hann yrkir kvæði í minningu þessa einstaka skálds og telur hann hafa sýnt gott fordæmi í lífi sínu og list. En það er á engan hallað að segja að stærsti áhrifavaldurinn í Ljóðum 1947- 51 sé Paul Éluard. Sigfús hefúr greinilega lært mikið af frönskum súrrealistum, hann hrífst af ljóðstíl þeirra, nákvæmum vinnubrögðum og metafýsikinni sem einkennir ljóð þeirra umfrarn allt. En þrátt fyrir auðsæ áhrif frá ástarljóðum Éluard í þessari fyrstu bók hefur Sigfús mótað sinn eigin stíl sem einkennist af geðþekkum tóni og einlægni, sem ríkir í öllum hans bókum. En þetta er aðeins önnur hliðin á skáldskap Sigfúsar því hann kann að beita háði og kaldhæðni af sjaldgæfu listfengi þó það einkenni einkum síðari bækur hans. Önnur ljóðabók hans kom út árið 1959 og nefnist Hendur og orð. Hún er mikil að vöxtum og innihaldið mjög fjöl- breytt, sannkölluð þungavigtarbók í ís- lenskri ljóðagerð eftir miðja 20. öld. Hendur og orð staðfestir þær vonir sem voru bundnar við Sigfús sem ljóðskáld effir hans fýrstu bók. Myndmál er víða nokkuð torrætt og líkingar óljósar að hætti súrrealista, samfélagsádeila er meira áberandi en í fýrstu bókinni, deilt er á heimsvaldastefnu, spillingu og hroka svo dæmi sé nefnt. Heimspekileg hugs- un, rökræða og mælska einkennir mörg ljóðanna en þau fegurstu lýsa einatt sárri reynslu eða minningum úr bernsku skáldsins, heit tilfinning býr undir tempr- uðu yfirborði ljóðanna. Síðan líður langur tími þar til Sigfús gaf út þriðju ljóðabók sína Fá ein Ijóð 1977. Mikil ögun einkennir Ijóðin í þess- ari bók, ljóðstíllinn er knappari og meitl- TMM 1998:1 107
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.