Frjáls verslun - 01.10.2007, Síða 23
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 23
DAGBÓK I N
24. nóvember
bjarni út úr REi
Sviptingarnar í kringum REi
og Geysi Green Energy héldu
áfram. Enn liggur ekki fyrir
hvernig þessu máli verður lent
af hálfu nýja meirihlutans í borg-
arstjórn en þó er útséð um að
REi og Geysir Green sameinast
ekki.
Hins vegar var sagt frá því
þennan dag að náðst hefði
samkomulag um að Orkuveitan
keypti hluti Bjarna Ármanns-
sonar, stjórnarformanns REi,
og Jóns Diðriks Jónssonar, fjár-
festis í REi. Orkuveitan kaupir
hluti þeirra beggja á sama verði
og þeir greiddu fyrir hlutina í
september sl. - að viðbættum
vöxtum. Bjarni lætur af störfum
stjórnarformanns REi um ára-
mótin.
Bjarni sagði við fjölmiðla að
hann væri í sjálfu sér sáttur
við samkomulagið, þeir Jón
Diðrik færu báðir fjárhagslega
skaðlausir frá borði. Hann sagði
að hann hefði verið beðinn um
að koma að verkefninu og þá
hefði verið lagt upp með að
hugvitið frá Orkuveitunni og
fjármagnið frá einkageiranum,
Geysi Green, myndu sameinast
og leggja upp í sameiginlega
vegferð á erlendri grund.
24. nóvember
Er Svandís
vilhjálmur í
dulargervi?
Þetta er sú spurning sem ýmsir
spurðu sig þennan dag þegar
sagt var frá „vinnuskjali“ hins
nýja meirihluta í borgarstjórn.
Ætlar Svandís Svavarsdóttir að
lenda málinu meira og minna
á sömu nótum og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, fyrrverandi borg-
arstjóri, lagði upp með það og
felldi hann síðan sem borgar-
stjóra?
Þá voru Svandís og sam-
herjar Vilhjálms í Sjálfstæð-
isflokknum andvíg tillögum
Vilhjálms um að sameina REi
og Geysi Green undir heiti fyrr-
nefnda fyrirtækisins.
Svandís og nýi meirihlutinn
hafa að vísu gefið það út að
þau hafna samruna REi og
Geysi Green. Í nýja „vinnuskjal-
inu“, sem Morgunblaðið greindi
frá, komu fram áhugaverðar
upplýsingar um að í stað þess
að sameina fyrirtækin muni
samstarfið felast í því að REi
kaupi stóran hlut í Geysi Green
og að sá hlutur yrði aldrei hærri
en 25% og ekki lægri en 15%.
Og ekki nóg með það, REi
myndi greiða fyrir hlut sinn í
Geysi Green með hlut Orkuveit-
unnar í Hitaveitu Suðurnesja.
En mikill styr hefur staðið um
það hvort Orkuveitan eigi að
láta þennan hlut sinn af hendi
til Geysis Green.
Þar með ynnu fyrirtækin
saman undir heitinu Geysir
Green í stað REi áður. Hlutur
Orkuveitunnar í Hitaveitu Suð-
urnesja færi inn í Geysi Green.
Fólk kemur og fer. En mannabreyting-
arnar hjá Straumi að undanförnu hafa
vakið talsverða athygli. Líklegast vegur
þar þungt að tvær konur hafa hætt sem
framkvæmdastjórar og að verið er að
setja reynda útlenda bankamenn inn á
völlinn í stað Íslendinganna.
Konurnar tvær eru þær Margit
Robertet, sem var framkvæmdastjóri
lánasviðs, og Svanhildur Nanna Vig-
fúsdóttir, sem var framkvæmdastjóri
fjármálastýringar. Eftir að þær stöllur
hættu eru engar konur í 9 manna fram-
kvæmdastjórn bankans. Margit Robertet
hefur hafið störf hjá Auði Capital sem yfir-
maður fyrirtækjaráðgjafar.
Andrew Bernhardt tók við starfi fram-
kvæmdastjóra lánasviðs Straums í stað
Margit Robertet. Andrew hafði gegnt
starfi yfirmanns lánasviðs Straums í
London frá því í október. Hann starfaði
áður sem framkvæmdastjóri á sviði skuld-
settrar fjármögnunar hjá GE Commercial
Finance frá árinu 2005. Þar áður starfaði
hann í 27 ár hjá Barclays Bank, síðast
sem yfirmaður á sviði skuldsettrar fjár-
mögnunar í London.
Stephen Jack, sem ráðinn var fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Straums í
október, með aðsetur í London, bætti
fjárstýringunni við sig og tók við fram-
kvæmdastjórastarfi Svanhildar Nönnu.
Á árunum 2004 til 2006 gegndi
Stephen starfi framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs hjá Collins Stewart Tullett
plc. Áður var hann framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Tullett & Tokyo Liberty plc til
þriggja ára og í tvö ár hjá iNG Barings.
Þar áður gegndi hann ýmsum stjórn-
unarstöðum á fjármálasviði Dresdner
Kleinwort Benson í 13 ár.
Haft var eftir William Fall, forstjóra
Straums, að starfsemi Straums hefði
breyst mikið á undanförnum tólf mán-
uðum og samhæfð stjórnun fjármálasviða
bankans væri lykillinn að því að auka
hag hluthafa til lengri tíma litið.
„Við erum staðráðin í því breikka hlut-
hafahóp okkar til alþjóðlegra markaða
og koma á föstu sambandi við greining-
ardeildir alþjóðlegra verðbréfamiðlana.
Stephen hefur þá reynslu og hæfni sem
þarf til að ná þessum markmiðum,“
sagði William Fall.
16. nóvember
maRGit oG SvanHilduR nanna HættaR Hjá StRaumi
Margit Robertet. Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir.
Bjarni Ármannsson.