Frjáls verslun - 01.10.2007, Blaðsíða 81
Fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 81
ÞÓRA BRAGADÓTTIR
framkvæmdastjóri Beitis
F yrirtækið Beitir er staðsett í Vogum á Vatnsleysuströnd. Beitir smíðar tæki úr ryðfríu stáli fyrir fisk vinnslu- og
matvælaiðnað og er þekkt fyrir framleiðslu
á beitningartrektum, línuspilum og beitu-
skurðarhnífum. Einnig má nefna færi bönd,
fiskþvottakör og ýmsan annan búnað fyrir
frystihús, skip og matvælafyrirtæki sem
fyrirtækið framleiðir.
Beitir er fjölskyldufyrirtæki og er fram-
kvæmdastjóri Þóra Bragadóttir: „Ég og
eiginmaður minn, Hafsteinn Ólafsson,
stofn uðum fyrirtækið 1988 og vorum
fyrst með það í bílskúrnum heima hjá
okkur í Vogum. Bílskúrinn var stór og
dugði okkur til aldamótanna, en þá hafði
starfsemin aukist mikið og við fluttum í
stærra húsnæði og nú starfa sex manns við
fyrirtækið. Mitt starf er að vera í öllu sem
viðkemur skrifstofuhaldi, þ.e. tilboðsgerð,
launareikningum, toll skýrslugerð, bókhaldi
og öðru sem þessu fylgir. Það er einnig
mitt starf að hafa samskipti við erlenda
viðskiptaaðila, en við seljum m.a. til Noregs,
Grænlands og Færeyjar. Á Nýfundnalandi
var einnig markaður sem við sinntum en þar
hefur verið frekar rólegt undanfarin ár. Ég
get ekki sagt að við höfum lagt þunga áherslu
á erlendan markað hingað til, einbeitt okkur
að íslenskum markaði, en það er aldrei að
vita nema breyting verði á í framtíðinni. Við
fyljumst með hvað er í gangi í útlöndum og
vinsum út þær sýningar sem við þurfum að
fara á og höldum góð tengsl við viðskiptavini
okkar hvar sem þeir eru.“
Þóra og Hafsteinn eiga fjögur börn á
aldrinum 17 til 32 ára. „Hafsteinn sér um
framleiðsluþáttinn í fyrirtækinu. Hann er
lærður vélstjóri og hefur því þekkinguna á
sjávarútveginum. Ég tók gagnfræðapróf frá
Flensborg á sínum tíma og hef síðan sótt
mörg námskeið til að afla mér þekkingar á
því starfi sem ég gegni.“
Þegar spurt er um áhugamálin svarar
Þóra: „Ég hef lengi stússast í sveitar-
stjórnarmálum, var í sveitarstjórn í Vogum
í tólf ár sem var mjög skemmtilegt og
lærdómsríkt. Við hjónin höfum einnig
mikinn áhuga á handbolta og förum á
landsleiki og deildarleiki hvenær sem
tækifæri skapast. Þar sem sonur okkar er
að spila með Haukum í Hafnarfirði snýst
áhuginn nokkuð um gengi Hauka, einnig
er ellefu ára dóttursonur okkar farinn að
æfa með Haukum. Það er oft erfitt fyrir
okkur að slíta í sundur vinnu og einkalíf og
snúast ferðalög okkar mikið um að reyna að
sameina vinnu og frí. Nú er stefnan tekin á
Evrópumeistaramótið í handbolta sem fram
fer í Noregi í janúar.“
Nafn: Þóra Bragadóttir.
Fæðingarstaður: Hafnarfjörður,
18. september, 1953.
Foreldrar: Bragi V. Björnsson
og Erna Guðmundsdóttir
Maki: Hafsteinn ólafsson.
Börn: Hrafnhildur Ýr, 32 ára,
Brynhildur Sesselía, 30 ára,
Hanna Lísa, 19 ára og Jónas
Bragi 17 ára.
Þóra Bragadóttir: „Stefnan hjá okkur hjónum er að fara á Evrópumeistaramótið í handbolta sem fram fer í Noregi í janúar.“