Frjáls verslun - 01.10.2007, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 53
Carso – nafnið er samsett úr nafni hans og eiginkonunnar – og það er
nú kjarninn í fjármálaveldi hans.
Hægt og rólega jók Slim umsvif sín, keypti flöskuverksmiðju
– hann er núna einn stærsti gosdrykkjaframleiðandi Mexíkó – og
fór út í fasteignaviðskipti og verktakastarfsemi sem er enn drjúgur
liður í umsvifum hans. Það virtist rífandi uppgangur í Mexíkó á 8.
áratugnum og Slim var hluti af honum. Uppsveiflan var þó ekki
haldgóð og þegar leið á 1982 voru öll sígild merki um yfirvofandi
kreppu: erlendar skuldir höfðu hlaðist upp, landsframleiðslan dregist
saman, verðbólgan var 100 prósent og gengi mexíkóska pesósins hafði
hrunið. Efnahagslegar kollsteypur bárust yfir í stjórnmálakerfið þar sem
spillingin var viðloðandi.
Níundi áratugurinn í Mexíkó var markaður þessum sviptingum.
Margir misstu allt sitt, bil milli fátækra og ríkra jókst til muna.
p i s t i l l s i g r ú n a r d a v í ð s d ó t t u r
RíkAStI mAðUR
veRALdAR
Slim er opinberlega ekki kominn
í efsta sæti Forbes-listans en
allar líkur á að hann tróni á
toppnum á næsta ári.
Mexíkóski auðkýfingurinn Carlos Slim Helù.
Það flæddi mikið fé úr landi þegar heimurinn og margir
heimamenn misstu trúna á landinu en Slim var einn af þeim
sem ákvað að halda trúnaði við heimalandið og þrauka.
Í stað þess að fara með allt sitt úr landi keypti hann nú í
gríð og erg fyrirtæki sem enginn vildi líta við, þar á meðal
tryggingarfyrirtæki, hótelkeðju og kjörbúðir – og hann átti
ekki eftir að þurfa að sjá eftir því.
einkavæðing með ólígarkastæl
Þegar efnahagur Mexíkó fór að rétta úr kútnum undir 1990
stóð Slim með pálmann í höndunum, öllu heldur eignarhaldið
á fjölmörgum fyrirtækjum á flestum sviðum, ekki síst í verslun
og viðskiptum.
Eftir að Bretland hafði hrint af stað umfangsmikilli
einkavæðingu undir stjórn Margaret Thatchers á níunda
áratugnum varð tíundi áratugurinn áratugur einkavæðingarinnar
víða um heim og þá líka í Mexíkó. Í samvinnu við France
Telecom og bandaríska fjárfesta keypti Slim ríkissímafyrirtækið
Teléfonos de México, Telmex. Í kaupsamningnum 1992 fólst
að Telmex héldi einkarétti til símareksturs næstu sjö árin sem
styrkti nýja fyrirtækið ómælt á þeim tíma þegar símafyrirtæki
um allan heim voru ákaft að breiða úr sér heima og heiman.
Það hefur varla skaðað að Slim hafði lagt fé í flokkssjóði Carlos
Salinas de Gortari forseta Mexíkós sem stjórnaði landinu á
þessum árum og um leið einkavæðingunni.
Telmex ræður yfir 92 prósentum af símalínum landsins.
Farsímafyrirtæki Slims, Telcel, er með markaðshlutdeild
upp á áttatíu prósent. Slim hefur síðan losað sig við fyrri
meðeigendur og verið laginn að bægja keppinautum frá, þar
á meðal stóru erlendu símafélögunum, meðan hans eigin
símafélög hafa vaxið erlendis: mesti vöxturinn í veldi hans er
nú í América Móvil sem er stærsta fyrirtæki álfunnar á sviði
farsíma og netþjónustu með yfir 100 milljónir viðskiptavina
um alla Suður-Ameríku.
Gagnrýnendur benda á að í stað ríkiseinokunar í
mexíkóska símageiranum sé nú komin einokun og fákeppni
fyrirtækja Slims. Afskipti hans af uppbyggingu gamla bæjarins
©
I
P
A
I
m
A
g
e
s
/C
o
r
b
Is