Frjáls verslun - 01.10.2007, Blaðsíða 73
Lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 73
Woody Allen og draumur
Cassandra’s Dream fjallar um
bræðurna Ian og Terry, sem
ekkert gengur hjá. Þeir hafa
löngum verið öfugum megin við
lögin, en vilja reyna að komast
á réttan kjöl. Þeir kynnast ungri
leikkonu, Angelu, sem hefur
mikinn metnað og notfærir
sér það vald sem hún nær yfir
bræðrunum. Ástandið hjá þeim
batnar ekki heldur fer allt versta
veg. Og þegar Terry lendir í
spilaskuld við glæpaforingja,
sem á það til að brjóta
hnéskeljarnar á þeim sem skulda
honum pening, virðast öll sund
lokuð. Þegar vonleysið er algjört
birtist skuggalegur frændi þeirra
(Tom Wilkinson) sem segir að
allar fjárhagsáhyggjur þeirra
bræðra verði að engu ef þeir
aðeins drepi viðskiptafélaga
hans...
Barcelona næst
Ekki er aðeins einvalalið
breskra leikara sem er Allen
innan handar í Cassandra’s
Dream. Hann er með hinn
ágæta kvikmyndatökumann
Vilmos Zsigmond bak við
kvikmyndavélina og Philip
Glass semur tónlistina, tveir
meistarar á sínu sviði. Allen
skrifar að sjálfsögðu handritið
og eins og oft áður var ekki
alltaf farið eftir því sem þar stóð,
en Allen er fljótur að vinna og
upptökur á myndum hans taka
yfirleitt ekki meira en rúman
mánuð. Colin Farrell sagði í
viðtali að sá tími sem fór í öll
atriði sem hann lék í hafi tekið
jafn langan tíma og eitt atriði í
Miami Vice.
Cassandra’s Dream var fyrst
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum í haust þar sem hún
hlaut ágætar viðtökur, þykir
nokkuð vel heppnuð en ekki
eins góð og Match Point, sumir
voru hrifnari en aðrir eins og
vera ber þegar um kvikmyndir
Woody Allens er að ræða, en
allir voru sammála um að Colin
Farrell og Ewan McGregor hafi
sjaldan verið betri.
Cassandra’s Dream verður
frumsýnd 4. janúar í Banda-
ríkjunum, en ekki komin
dagsetning hér á landi. Eins og
oftast áður þegar ný kvikmynd
eftir Woody Allen er frumsýnd,
er hann þegar langt kominn
með aðra. Eftir að hafa verið
í London í rúm tvö ár flutti
hann sig um set til Barcelona
þar sem tökum er nú lokið á
Victoria Christina Barcelona.
Hann er aftur kominn með
uppáhaldsleikkonu sína
um þessar mundir, Scarlett
Johansson, í aðalhlut-
verkið og tvær spænskar
kvikmyndastjörnur, Penelope
Cruz og Javier Bardem, eru
einnig í stórum hlutverkum.
Woody Allen leikur ekki í
myndinni og ætli hann hafi
nokkurn tíma leikstýrt tveimur
kvikmyndum í röð án þess
að leika stórt hlutverk sjálfur.
Batnandi mönnum er best að
lifa.
Cassöndru
Aðalheiður Héðinsdóttir,
eigandi Kaffitárs, fann einu
sinni uppskrift í tímaritinu
Veggfóður sem henni leist vel
á. Hún breytti henni örlítið og
bætti rabarbara í uppskriftina.
„Í sumar, þegar rabarbarinn
var eldrauður í garðinum
mínum, gerði ég hvern
rabarbararéttinn á fætur öðrum
og þessi stóð upp úr hjá öllum í
fjölskyldunni.“
Þetta ku vera frábær
eftirréttur með kaffinu.
Rabarbaraeftirréttur í glasi:
200 g jarðarber (allt í lagi að
nota frosin)
200 g rabarbari (á veturna
er hægt að kaupa frosinn
rabarbara en á sumrin er
gott að nota hann beint úr
garðinum)
100 g sykur
Jarðarber og smátt brytjaður
rabarbarinn soðinn í potti í 20
mínútur. Kælt.
250 g mascarpone ostur
250 ml þeyttur rjómi,
1 dl sýrður rjómi
150 g sykur
1 vanillustöng
Öllu blandað saman í hrærivél
eða matvinnsluvél. Gætið þess
að hræra ekki of mikið og
setjið þeytta rjómann síðast út
í blönduna.
Makkarónukökur
Makkarónukökurnar eru settar
í botn á litlu glasi, grauturinn
settur ofan á og síðast kremið.
Ef glösin eru há og mjó má
setja annað lag af graut og
kremi.
Varist að nota of stór glös því
að þetta er saðsamt og best
er að hafa skammtinn hæfilega
stóran - þannig að mann langi í
meira!
Sælkeri mánaðarins:
RABARBARI Í AðAlHlUTVERKI
Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs.