Frjáls verslun - 01.10.2007, Blaðsíða 29
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 29
DAGBÓK I N
5. desember
danskar fasteignir
til bjargar fl Group
Fjölmiðlar voru duglegir að
segja frá viðbrögðum danskra
fjölmiðla við uppstokkuninni
hjá FL Group. „Danskar fast-
eignir til bjargar FL Group,“ var
fyrirsögn á forsíðu danska við-
skiptablaðsins Börsen daginn
eftir viðskiptin.
Flest helstu blöð Danmerkur
fjölluðu um hlutafjáraukningu
FL Group og sögðu mest frá
danska hluta málsins og að
eign Baugs í norræna fasteigna-
félaginu Landic væri rennt inn
í FL Group en Landic á fjölda
fasteigna í Kaupmannahöfn.
Stærsta dagblað Dana,
Jótlandspósturinn, sagði á við-
skiptasíðu blaðsins að íslenski
fjármálaheimurinn væri skjálf-
andi spilaborg og að FL Group
væri fyrsta fórnarlambið.
5. desember
Hannes hefur
tíu daga til að finna
6,3 milljarða
Hannes Smárason þarf að hafa
hraðar hendur við að fjármagna
kaupin á 23% hlut í Geysi
Green Energy af FL Group.
Fram kom í fjölmiðlum
að hann hefði tíu daga til að
finna 6,3 milljarða til að kaupa
hlutinn. FL Group er stærsti
hluthafinn í Geysi Green Energy
og á þar 43% hlut sem metinn
er á 11 milljarða króna í
bókhaldi FL Group.
Hannes mun kaupa rúmlega
helminginn af þessum hlut FL
Group og eignast þar með um
23% í Geysi Green Energy.
Talið er líklegt að hann muni
fjármagna þau kaup með sölu
á hluta af bréfum sínum í FL
Group.
6. desember
Hlutur fl í Geysi
metinn á 11 milljarða
Fl Group er stærsti hluthafi
Geysis Green Energy og á 43%
í félaginu sem stofnað var í
byrjun þessa árs. Nú er stefnt
að því að félag í eigu Hannesar
Smárasonar, fráfarandi forstjóra
FL Group og stjórnarformanns
Geysis Green, kaupi 23%
eignarhlut í Geysi Green Energy
af FL Group. Eignarhlutur FL
Group í Geysi eftir viðskiptin
yrði því 20,0%.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá FL Group í gær er
verðmæti hlutar FL Group í
Geysir Green Energy bókfært
um 11 milljarðar kr. í bókhaldi
FL Group.
Er hér um uppfært mat
að ræða sem félagið kynnti
í október vegna uppgjörs á
þriðja ársfjórðungi.
6. desember
verðmæti Exista
féll um 33 milljarða
í vikunni
Hræringarnar í kringum FL
Group hafa haft áhrif á allan
markaðinn og hann hefur
hikstað verulega. Þannig sagði
Morgunblaðið t.d. frá því að
fjárfestingarfélagið Exista,
aðaleigandi Kaupþings, Símans
og Bakkavarar Group, hefði
lækkað verulega og fallið um
33 milljarða fyrst þrjá dagana í
fyrstu viku desember.
Verð hlutabréfa í félaginu
hefur hríðfallið síðan það náði
hápunkti sínum um mitt sumar.
Lækkunin nemur nú 43% á
fimm mánuðum sem þýðir að
nærri 200 milljarðar króna hafa
þar farið forgörðum.
Morgunblaðið rifjaði það upp
að einn hlutur í Exista hefði
kostað 22 krónur fyrir einu ári.
Verðið hefði tvöfaldast á fyrri
hluta ársins og farið í 40,25.
Fimmtudaginn 6. desember
var gengið komið í 22,50
og nálgast skráningarverð
félagsins á hlutabréfamarkaði í
fyrrahaust.
Magasin du Nord er nú komið í eigu FL Group.