Frjáls verslun - 01.10.2007, Blaðsíða 77
Lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 77
hætt er við að framsætisfarþegi
reki sig í hann óvart eða leggi
ofan á hann með óheppilegum
afleiðingum.
Rými
Ágætlega fer um ökumann
og framsætisfarþega sem sitja
frekar innarlega í bílnum.
Miðjustokkurinn er þó
fremur fyrirferðarmikill með
nokkuð þvera brún og getur
orðið þreytandi fyrir hnéð á
bensínfætinum til lengdar.
Rými í aftursæti er viðunandi
fyrir tvo þó axlabönd séu þar
fyrir þrjá. Skrýtið í svona
vönduðum bíl að bakhalli á
aftursætum skuli ekki vera
stillanlegur. Fótarými aftur í
dugar en ekki meira en það.
Farangursrými er prýðilegt og
fullvaxið varadekk þar undir.
Hanskahólfið er fremur lítið.
Nóg er um dósahöldur bæði
fyrir fram- og aftursæti og vasar
aftan á sætum. Smáskúffur
eru hér og hvar og hólf innan
á hurðum. Ekki skúffa undir
farþegasæti sem hefði þó verið
vel þegin.
Aksturseiginleikar
160 ha dísilvélin skilar
góðri vinnslu í upptakti
og millihröðun. Bíllinn
fer sérlega vel á vegi og er
stöðugur. Verulegur hluti af
reynsluakstrinum núna fór
fram í hálku og jafnvel mikilli
hálku en bíllinn aðeins á
heilsársdekkjum (M+S, 17
tommu) – að vísu nýjum, en
reyndist lygilega stöðugur og
– jah, getur maður sagt „fótviss“
um bíl?
Svipað er að segja um
hemlun bílsins, hún er sérlega
virk og þó mjúk og virkar líka
á niðurgírun í gírkassa. Afar
traustvekjandi. Fjöðrun er
góð, þó frekar snögg á litlum
hraða. Með þennan drifbúnað
og veghæð eins og var á gamla
Land Rover í árdaga hefur
bíllinn töluverða jeppaeiginleika
þó einhverjir kynnu að sakna
lága drifsins.
Þetta er skemmtilegur bíll í
akstri.
Kostir / ókostir
+ Vinnsla, viðbragð.
+ Stöðugleiki í akstri.
+ Vel búinn.
+ Virkar drifstillingar
– Eys upp á sig að aftan
– Skarpar brúnir á miðjustokk
við hné.
– Ekki stillanlegur bakhalli á
aftursæti
– Sviss og start/stop ekki í sama
handtaki.
Verð/virði
Land Rover Freelander kostar
kr. 4.540.000. Miðað við hve
vandaður bíllinn virðist vera
og vel búinn, með aflmikla vél,
fullkominn drifbúnað, allskonar
rafeindabúnaði og skinnklædd
sæti, er það líklega ekki til að
nöldra yfir. Vísitölufjölskyldan
ætti að vera vel sett með þennan
bíl og hann er ákjósanlegur
kostur sem annar bíll fyrir þá
sem þurfa eða vilja eiga aðalbíl
með meira fólksrými, en
hafa jafnframt fjallafar innan
seilingar.
SHH
Innstig/útstig úr aftursæti er auðvelt, en rými
þar ekki nema rétt í meðallagi. Þó – framsætið
er stillt við hæfi skrifara sem hér hefur fært sig
í aftursætið og kemur þó hnefa milli hnés og
sætisbaks.
Ónegld heilsársdekk Goodyear
– á þessum dekkjum var
Freelanderinn mjög stöðugur og
„fótviss“ á slóðum þar sem aðrir
bílar voru að gista skurði helgina
sem prófunin fór fram.
Einn af kostum Freelander er sá
að hurðir lokast ofan yfir sílsa
þannig að ekki er hætta á að
óhreinka sig á innstigi/útstigi þó
að bíllinn sé óhreinn.
Útlit afturendans á Freelander hefur heppnast
sérlega vel. En óneitanlega eys hann dálítið upp á
sig að aftan þegar ekið er í bleytu eða ryki.Hér er allt við höndina og aðgengilegt.
Miðjustokkurinn er þó fullbreiður efst með brúnir
sem geta orðið hné ökumanns óþægilegar
til lengdar. – Framrúðusyllan hægra megin er
ansi mikið flæmi og hefði farið vel á að brjóta
sléttan flötinn þar upp með smámunabakka
eða öðru slíku. – Takið eftir opinu þar sem
sígarettukveikjarinn á að vera, aðeins til hægri
aftur af skiptistönginni.