Frjáls verslun - 01.10.2007, Side 78
Lífsstíll
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7
Svo mörg voru þau orð
„Það er alveg sama hver staðan er, þeir segja alltaf sama
hlutinn, sama hvort fjárfesting ríkisins er eitt eða tvö prósent
af þjóðarframleiðslu. Það er sama hvort stóriðjuframkvæmdir
eru í gangi eða að hætta. Ég held að þetta hafi minnst með
ríkisfjármálin að gera. Við erum með metafgang í ríkissjóði ár
eftir ár.“
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra um greiningu
Standard & Poor's. Markaðurinn, 21. nóvember.
„Trúverðug peningastefna er lykilforsenda þess að skapa
verðbólguvæntingum trausta kjölfestu og þess að hægt sé
að draga úr hagsveiflum á Íslandi. Hún er einnig til þess
fallin að draga úr óæskilegum áhrifum gengissveiflna á
innlent efnahagslíf. Allar hugmyndir um að fjölga markmiðum
peningastefnunnar eða takmarka sjálfstæði Seðlabankans eru
líklegar til þess að grafa undan þessum trúverðugleika sem
mun skaða hana og íslenskt efnahagslíf til langframa.“
Þórarinn G. Pétursson, starfsmaður Seðlabanka Íslands
og dósent við Háskólann í reykjavík. Markaðurinn,
14. nóvember.
ragnar Þór Jónsson, forstjóri
Öryggismiðstöðvarinnar,
stundaði meistaranám í
iðnaðarverkfræði við Boston
University á árunum 1997-
1999. Hann segir að Boston sé
sín uppáhaldsborg.
„Boston er mjög falleg borg,
hún er vinaleg, skemmtileg,
lifandi og passlega lítil.
Þægilegt er að komast allra
sinna ferða gangandi eða
með lestunum. Það er mikið
líf í kringum Charles-ána og
skemmtilegar verslanir eru í
miðbænum.“
ragnar Þór nefnir
sérstaklega Back bay hverfið
þar sem hann bjó og hina frægu
götu Newbury Street. „Boston
hefur byggst svolítið í kringum
háskólana í borginni en í
skólunum er fólk alls staðar að
úr heiminum. Ég kynntist til að
mynda mörgum indverjum og
Kínverjum.“ Fyrir utan Boston
University er Harvard-háskóli og
Mit hvað þekktastir.
ragnar fylgdist með
íþróttum á námsárunum og
fór reglulega á hafnabolta- og
körfuboltaleiki. „Ég vildi óska
þess að íþróttaliðin í Boston
hefðu getað eitthvað þegar ég
var úti.“
Hann les mikið og á
námsárunum átti hann til
að gleyma stað og stund í
bókabúðum Waterstones og
Barnes & Nobles sem eru
ævintýri líkastar.
Forstjóri Öryggismið-
stöðvarinnar hefur kynnst
Boston á annan hátt eftir að
hann lauk námi en hann fer
þangað reglulega. Hann borðaði
á ódýrum veitingastöðum á
námsárunum en síðan hefur
hann bragðað á dýrindis
réttum á betri stöðum. Hann
er nýkominn frá Boston. „Ég
var í brúðkaupi hjá Íslendingi
sem kynntist Boston-dömu á
námsárunum.“
Ragnar Þór Jónsson. „Boston er mjög falleg borg, hún er vinaleg,
skemmtileg, lifandi og passlega lítil.“
Uppáhaldsborgin:
VInAlEg, sKEmmTIlEg og lIfAndI
Úr Frjálsri verslun fyrir 27 árum: