Dagrenning - 01.04.1956, Blaðsíða 11

Dagrenning - 01.04.1956, Blaðsíða 11
JÓNAS GUÐMUNDSSON: r SÍÐASTA FÆÐINGARHRÍÐIN TÍMABIL EINNAR KYNSLÓÐAR. Eins og þeir vitaj sem lesa Dagrenningu að staðaldri, hefir verið gert ráð fyrir því, að höfuðátökin milli „Austurs“ og „Vesturs" yrðu á tíma- bilinu frá 1953/1954 til 1957/1958, því það tímabil svarar nákvæmlega til tímabilsins frá 1913/1914 til 1917/18. en þá hófst með fullum krafti niðurbrot núverandi skipulagshátta, en spádómsþýðendur gera ráð fyrir því að þetta niðurbrot fari fram á fjörutíu ára tímabili, þ. e. á tímabili „einnar kynslóðar“ eins og það heitir á máli Biblíunnar. Margir gerðu ráð fyrir því, að vopnuð átök milli „hins nýja ísraels,“ þ. e. hinna vestrænu þjóða, og Gógsbandalagsins, þ. e. Soviétríkjanna og fylgiríkja þeirra, mundu hefjast snemma á þessu tímabili, jafnvel strax 1954, en til þessa hefir Vesturveldunum tekist að afstýra slíkum átökum, ýmist með hótunum, um að beita kjarnorkuvopnum, eða jafnvel vetnis- sprengjum, eða með því að slá undan og þoka um set fyrir Rússum, sem sífellt þenja út yfirráðasvæði sitt með öllum þeim ráðum sem þeim eru tiltæk. Engum efa er það bundið, að það er vetnissprengjan, sem til þessa hefir komið í veg fyrir vopnuð átök stórveldanna. Bæði Rússar og Vesturveldin ráða yfir svo öflugum vopnum, að hvorugur þorir á annan að ráðast. Þetta þarf þó ekki að þýða það, að ekki geti þar að komið, að gripið verði til þessara vopna, og er rétt að gera ráð fyrir því að svo geti farið, jafnvel fyrr en varir. Winston Churchill hélt því fram fyrir mörgum árum, að það væri atóm- sprengjunni einni að þakka, að friður hefði haldizt með Rússum og Vestur- veldunum til þessa. Nerú sagði 1955, að fjórum sinnum hefði heimsstyrjöld verið afstýrt á árinu 1954, og Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefir nýlega haldið því fram, í blaðaviðtali, að síðan Eisenhower tók við forsetavöldum í Banda- ríkjunum, 1953, hafi þau margoft afstýrt heimsstyrjöld sem var að því komin að brjótast út, með því að hóta notkun kjamorkuvopna. ----------------------------------------------- DAGRENNING 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.