Dagrenning - 01.04.1956, Blaðsíða 48
JÖNAS GUÐMUNDSSON:
Kristileé }>jéðmálakreyíin^
i.
Þau ummæli mín í síðasta hefti Dag
renningar 1955, að næsti áratugur henn-
ar skyldi „helgaður tilrauninni til þess
að skapa á íslandi öflugan, kristilegan
stjórnmálaflokk“ hafa vakið mikið um-
tal manna á meðal. Fjöldi manna hefir
hringt til mín, eða átt tal við mig um
þetta mál með öðrum hætti, og flestir
eru á einu máli um að mikil nauðsyn sé
á stofnun slíks stjórnmálaflokks. All-
mörg bréf hafa og borist um þetta efni,
og til þess að sýna hvernig fólk lítur á
þetta birti ég hér á eftir nokkur ummæli
tekin úr bréfum þessum.
Kona á Vestfjörðum skrifar:
„Þá langar mig enn að minnast á
framtíðarviðfangsefnið, sem þér minn-
ist á, þar sem er stofnun kristilegs
stjórnmálaflokks.
Ég veit, að öllum sem komist hafa til
þekkingar á sannleikanum, sé þetta mik-
ið gleðiefni. Persónulega gleðst ég inni-
lega, ef slíku stórmáli sem þessu verður
hrint í framkvæmd. Og það skal vera
bæn mín til Guðs að allir sem ennþá
virða hið góða og göfuga í samskiptum
manna, að þeir mættu taka höndum
saman yður til styrktar og hjálpar er
þér nú hyggist hrinda þessu áhugamáli
yðar í framkvæmd. Spillingin er óvíða
á hærra stigi en einmitt í heimi stjórn-
málanna og þar verður áreiðanlega við
ramman reip að draga. Persónulega hef-
ur mér í mörg ár fundist ég engan
flokk geta kosið, af þeim sem boðið
hafa fram hingað til, og mun ég vissu-
lega styðja yður í þessu er þar að kem-
ur.“-----
Þingeyingur skrifar:
„Það gladdi mig þegar ég las það í
síðasta hefti Dagrenningar að þú hefð-
ir ákveðið að beita þér fyrir stofnun
kristilegs stjórnmálaflokks.-------
Ég er þér fyllilega sammála um það,
að hér sé ríkuleg þörf fyrir stofnun slíks
stjórnmálaflokks og að undirstaða alls
velfarnaðar þjóðarinnar sé kristin trú,
að þjóðin treysti Guði og starfi í sam-
ræmi við hans boð. Þá mun allur henn-
ar hagur blessast og blómgast. Þeir erf-
iðleikar sem við nú eigum við að etja
eru vissulega okkur sjálfum að kenna.
Við höfum brotið boðorð Guðs en sett
eigin hagsmuni í hásætið, með öllu því
spillingarkerfi sem þeirri hugsjón þjón-
ar. Bæði einstaklingar og sléttir hafa
kappkostað að bera sem mest úr bvtum,
en leggja sem minnst af mörkum og sýnt
þar hið frekasta tillitsleysi. Þjóðin verð-
ur að söðla um og reisa starf sitt á al-
veg nýjum grundvelli. En það má gera
ráð fyrir, að róðurinn verði þungur. —
— En treystum á sigur þess góða. Dag-
ur þess mun koma að lokum. Ég held ég
hafi komist svo að orði í bréfi til þín
einhvern tíma, þar sem ég ræddi um
stofnun kristilegs stjórnmálaflokks, að
slíkum flokki mundi gott að þjóna. Ég
vil endurtaka þessi orð. Með þessum lín-
40 DAGRENNING