Dagrenning - 01.04.1956, Blaðsíða 39
MÚRSTEINSHÆÐIN (THE ZIGGURAT) í ÚR í KALDEU.
Hæð þessi er talin hafa verið eins og Babelsturn, nema nokkru minni. Múrsteinshæðir þess-
ar voru gerðar af mannahöndum úr tígulsteinum, hertum í eldi.
staður Marduks, sem samkvæmt fleyg-
leturs frásögn, á að hafa fyrirskipað, að
„grunnur turnsins skyldi í undirheim-
um standa, en toppur hans til himins ná.“
Samskonar turnhof hafa verið grafin upp
í Erech, Kish, Úr og víðar. Turnhofið
í Úr hefir í þessu tilliti sérstaklega mikla
þýðingu, því vitað er að það var byggt af
sama manni, Úr-Nammu, sem byggði
Babelsturn."
„Ziggurat".
Sá maður, sem mest hefir orðið ágengt
í því að finna lausn þessa máls er Sir
Leonard Woolley sem hefir annast út-
gröft í Úr í Kaldeu (fæðingarbæ Abra-
hams). Hann gróf þar upp lítt skemmda
rúst eins þessa turn-hofs, sem stóð á mik-
illi, velgerðri „múrsteinshæð", en hæðir
þessar eru á erlendum málum nefndar
ziggurat. Þar sem sléttlent er og hæðir
vantar hafa menn tekið upp það ráð, sem
í Mósebók segir, að gera steina af leir
og herða þá í eldi. Úr steinum þessum
var svo gerð allstór hæð eða lióll og
musterið og turninn síðan byggt uppi á
þessari tilbúnu hæð.
Myndin hér að ofan sýnir þessa hæ?
í Úr í Kaldeu og er ljóst af mynd
inni að hæðin — sem gerð er úr hnoð
uðum og brenndum leirsteini er
hið mesta mannvirki. Á annarri mynd
(bls. 30) er sýndur Babelsturn eins og
fornfræðingar nútímans hugsa sér að
hann hafi verið. Er þetta mynd, sem
prófessor M'alter Andrae’s hefir gert,
samkvæmt hugmyndum þeim, sem forn-
fræðingar gera sér nú um turnmusteri
þessi og byggja þar á þeim fornleifum
sem grafnar hafa verið úr jörð í hinum
DAGRENNING 31