Dagrenning - 01.04.1956, Page 23
JÓNAS GUÐMUNDSSON:
ÞEÓKRATI
STJÓRNSKIPULAG FRAMTÍÐARINNAR
----------------------------------------------------—>
Svo skalt þú scgja Jakobs niðjum og kunngjöra ísraelsmönnum:
„Ef þér hlýðið minni röddu grandgæfilega og haldið minn sáttmáia, þá
skuluð þér vera min eiginleg eign um fram allar þjóðir, því að öll jörðin
er mín.“ (II. Mb. 19. 5).
„Ef þér hlýðið skipunum mínum trúlega-mun ég gefa landi yðar
regn á réttum tíma, svo að þú megir hirða kom þitt, aldinlög þinn og oliu
þina. Þá mim ég láta gras spretta í högum þínum handa skepnum þin-
um, svo að þú megir eta og saddur verða. Gætið yðar, að hjarta yðar láti
ekki tælast og þér víkið ekki af leið og dýrkið aðra guði. —“ (V. Mb. 11. 13).
V_____________________________________________________.
Nóttin fyrir aftökuna.
Vora tíma einkennir fátt jafn greini-
lega og óskýr hugsun á flestum eða öll-
um sviðum. Það virðast aðeins tiltölu-
lega fáir menn, sem gera sér far um að
kryfja mál til mergjar, hugsa skýrt og
leita að sannleikskjamanum, sem er að-
altariði hvers máls. Blöð og útvarp rugla
mjög hugsun almennings. Þau flytja
„ágrip“ af öllu, hirða lítt um, hvort satt
er eða logið það sem frá er skýrt, ef það
er aðeins fréttnæmt og þjónar þeim til-
gangi sem þessir aðilar hafa hverju sinni.
Hinn skefjalausi áróður fyrir öllu,
sem kallað er nýtt, og hin skipulagða út-
rýming eldri skoðana og sanninda, em
einnig glöggt sjúkdómseinkenni vorra
órólegu tíma. En í allri þessari hringiðu
og umbyltingum, er þó eitt, sem aldrei
verður dulið, og það er, að nú stendur
mannkyn þessa heims á krossgötum, og
það getur beinlínis oltið á því, hvort
hnettinum, með því sem á honum er,
verður tortímt eða ekki, hvaða leið verð-
ur valin af þeirri kynslóð sem nú hefir
veg og völd á vorri jörð.
Þar sem hér er um að ræða mikilvæg-
asta sameiginlegt málefni allra þeirra
mörgu milljóna sem þennan hnött
byggja, er nauðsynlegt að gera sér fulla
grein fyrir því hvemig málefnin standa
nú, og hver tortíming verður ef hinn
rangi vegur er valinn og jafnframt hvað
við tekur ef hamingjan er með og mann-
kyninu tekst að komast á hinn rétta veg:
— „veginn, sem til lífsins liggur".
Hér á eftir verður nú reynt að draga
saman þau grundvallarsannindi, sem
öllum er nauðsynlegt að þekkja og hafa
tiltæk ef þeir vilja leggja á sig það erf-
iði og fyrirhöfn að gera sér ljóst, hvar
vér erum nú á vegi stödd.
DAGRENNING 1S