Dagrenning - 01.04.1956, Side 33

Dagrenning - 01.04.1956, Side 33
JÓNAS GUÐMUNDSSON: TURNINN í BABEL ^----------------------------------- s- „Vér skulum bygg'ja oss borg og turn, sem nái til himins, og gjörum oss minnismerki ..(I. Mb. 11. 5). „Og Júda gjörði það, sem illt var í augum Drottins ... því að einnig þeir gjörðu sér hæðir, merkissteina og asérur á öllum háum hólum og undir hverju grænu tré.“ (I. Kon. 14. 22). s*_______________________________________J Frásögn Biblíunnar. Ein þeirra frásagna Biblíunnar, sem miklum heilabrotum hefir valdið mönn- um fyr og síðar, er sagan um Babelturn- inn, í 11. kapítula fyrstu Mósebókar. Á öllum tímum hafa menn reynt að leysa gátuna, sem í þeirri frásögn er dulin, en það hefir ekki tekist til fulls ennþá. Upp- gröftur fornleifa, bæði í Babylon og öðr- um borgum í Austurlöndum, hefir þó varpað nokkru ljósi inn í það mvrkur, sem hylur þennan forna leyndardóm, svo menn telja sig nú standa nokkru nær um ráðningu gátunnar en áður. Hér verða ekki tök á að rekja þetta nema að litlu leyti, en þeir sem vilja kynna sér málið nánar eiga þá hægara með að afla sér við- bótarfræðslu um það annars staðar. ★ í íslenzku Biblíunni er frásögnin um Babelturninn á þessa leið: „En öll jörðin hafði eitt tungumál og ein og sömu orð. Og svo bar við, er þeir fóru stað úr stað í Austurlöndum, að þeir fundu láglendi í Sínear-landi og settust þar að. Og þeir sögðu hver við annan: „Gott og vel, vér skulum hnoða tígul- steina og herða í eldi.“ Og þeir notuðu tígulsteina í stað grjóts og jarðbik í stað kalks. Og þeir sögðu: „Gott og vel, vér skulum byggja oss borg og turn, sem nái til himins, og gjörum oss minnismerki, svo að vér tvístrumst ekki um alla jörð- ina.“ Þá steig Drottinn (Jahve) niður, til þess að sjá borgina og turninn, sem mannanna synir voru að byggja. Og Drottinn mælti: Sjá, þeir eru ein þjóð og hafa allir sama tungumál og þetta er hið fyrsta fyrirtæki þeirra; og nú mun þeim ekkert ófært verða, sem þeir taka sér fyrir hendur að gjöra. Gott og vel, stígum niður og ruglum þar tungumál þeirra, svo að enginn skilji framar annars mál.“ Og Drottinn tvístraði þeim þaðan út um alla jörðina, svo að þeir urðu af að láta að byggja borgina. Þess vegna heitir hún Babel því að þar ruglaði Drottinn tungu- málum allrar jarðarinnar, og þaðan tvístraði hann þeim um alla jörðina." ★ Það er athyglisvert að þessari frásögn er skotið inn á milli Þjóðatalsins og ætt- artölu Sems. Frásögnin er, eins og margar aðrar DAGRENNING 2&

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.