Dagrenning - 01.04.1956, Síða 45
Myndin af Seljaness-Móra, sem Halldór Guðmundsson trésmíðameistari í Keflavík tók
1934 norður ó Ströndum. Móri stendur við skut bátsins, sem er lengst til hægri á myndinni.
tæki mynd a£ bóndanum, sem þá bjó á
bæ þessum. Hann er nú látinn. Nafn
hans verður ekki nefnt hér, en hann
þótti sérlundaður nokkuð og bannaði
með öllu að tekin yrði mynd af sér, þegar
eftir því var leitað. Það var almanna-
rómur þar á Ströndum, að Seljanses-Móri
fylgdi bónda þessum og þóttust menn
verða hans varir á undan komu hans.
Nú er það frekara af Halldóri Guð-
mundssyni að segja, að hann vildi freista
þess að ná mynd af bónda, án þess hann
vissi til, fyrst hann fékk því ekki fram
komið með öðrum hætti. Tækifærið
gafst er bóndi fór ásamt vinnumanni
sínum að huga að bátnum sínum og
veiðarfærum. Náði Halldór þá mynd
þeirri, sem áður getur.
Ekki var hægt að framkalla myndir
Halldórs þar nyrðra á Djúpuvík. Beið
það því unz hann kom til Reykjavíkur
að afloknu starfi þá um sumarið. Þeg-
ar myndir hans svo voru framkallaðar
kom í Ijós, að á myndinn af bóndan-
um voru ekki tveir menn, eins og vera
átti, því aðeins tveir menn voru við bát-
ana þegar myndin var tekin, heldur stóð
þokukennd vera í mannsmynd við skut
eins bátsins. Þótti þetta að vonum at-
hyglisvert mjög, ekki síst sökum þess
mikla orðróms, sem á því lék, að Móri
fylgdi bóndanum.
Halldór fékk sérfræðinga í ljósmynd-
un til þess að athuga filmuna, sem mynd-
in var tekin á, og kom þeim saman um,
að filman væri alveg gallalaus og ekki
væri tvítekið á hana.
Hneigjast menn því helzt að þeirri
DAGRENNING 37