Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Síða 40
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 201540
reynslA æTTleiddrA bArnA á íslAndi AF sKólUm Og sAmFélAgi
aÐfErÐ
Meginmarkmið heildarrannsóknarinnar sem hófst árið 2005 eru að auka skilning á
reynslu íslenskra fjölskyldna af því að ættleiða börn frá útlöndum og á aðlögun og að-
stæðum ættleiddra barna (frá Kína og Indlandi) og fjölskyldna þeirra á Íslandi. Leitast
er við að öðlast skilning á því hvernig börnin aðlagast samfélagi, skólum og jafningja-
hópum. Þátttakendur voru upphaflega 20 börn sem ættleidd voru árin 2002 (10 börn)
og 2004 (10 börn), foreldrar þeirra og kennarar. Þegar börnin komu til Íslands voru
þau átta og hálfs mánaðar til sautján mánaða. Menntun foreldra barnanna er ólík, allt
frá grunnskólaprófi til háskólamenntunar. Flestir foreldrarnir eru gift hjón en í hópn-
um eru þó einnig einhleypar mæður (Elsa Sigríður Jónsdóttir og Hanna Ragnarsdóttir,
2010; Hanna Ragnarsdóttir og Elsa Sigríður Jónsdóttir, 2010). Foreldar tveggja barna
hafa hætt þátttöku og eru þátttakendur nú níu börn úr hvorum aldurshópi. Haft var
samband við Íslenska ættleiðingu til að ná sambandi við fjölskyldurnar. Rannsókn-
in er langtímarannsókn og er fyrirhugað að hún standi fram á unglingsár barnanna.
Fylgst er með högum, aðbúnaði og aðlögun fjölskyldnanna á rannsóknartímanum.
Eigindlegum rannsóknaraðferðum er beitt og hálfopin viðtöl tekin við foreldrana,
börnin og kennara þeirra. Hálfopin viðtöl eru valin til að fá eins nákvæmar upplýs-
ingar um viðfangsefnið og hægt er (Flick, 2006; Kvale, 1996).
Viðtöl hafa verið tekin tvisvar við hverja foreldra, í fyrra skiptið árið 2005 og síðan
2007 og 2008 þannig að það liðu u.þ.b. tvö ár milli viðtala. Þegar seinni viðtölin fóru
fram var u.þ.b. helmingur barnanna nýlega byrjaður í grunnskóla. Til þess að afla
upplýsinga um það hvernig leikskóladvölin hefði gengið var hringt í leikskólakennara
barnanna. Fjallað hefur verið um niðurstöður viðtala við foreldra og leikskólakennara
í tveim greinum um rannsóknina (Elsa Sigríður Jónsdóttir og Hanna Ragnarsdóttir,
2010; Hanna Ragnarsdóttir og Elsa Sigríður Jónsdóttir, 2010).
Eins og áður segir er í greininni fjallað um þær niðurstöður langtímarannsóknar-
innar sem lúta að reynslu barnanna af skólagöngu í grunnskólum, jafningjahópum og
fjölskyldulífi, svo og reynslu umsjónarkennaranna af skólagöngu barnanna. Byggt er
á viðtölum við börnin og kennarana. Fyrstu viðtölin við börnin voru tekin í nóvember
2011 og þau síðustu í maí 2012. Viðtöl við umsjónarkennara þeirra í grunnskólum voru
tekin árið 2012. Áður en viðtölin voru tekin við börnin voru foreldrarnir beðnir um
leyfi og að því búnu voru kynningarbréf send til foreldranna og þeir beðnir að sýna
börnunum bréfin. Hér má sjá dæmi um kynningarbréf til stúlknanna í rannsókninni:
Foreldrar þínir taka þátt í rannsókn um fjölskyldur sem hafa ættleitt barn frá útlönd-
um. Þau hafa sagt okkur frá því þegar þau fóru og sóttu þig til landsins þar sem þú
fæddist. Þau hafa líka sagt okkur frá því hvernig þeim leið þegar þau voru komin
til Íslands með þig pínulitla og hvernig gekk hjá þér í leikskólanum. Í rannsókninni
erum við að skoða hvernig ættleiddum börnum frá útlöndum hefur gengið og
hvernig þeim líður í fjölskyldum og skólum á Íslandi. Nú langar okkur til að tala
við þig um það sem þér finnst skemmtilegt eða leiðinlegt. Við ætlum líka að biðja
þig að segja okkur frá vinum þínum og áhugamálum. Ekki má gleyma skólanum,
okkur langar líka til að vita hvernig þér finnst skólinn vera. Okkur þætti vænt um ef