Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Side 2
Eddan er nú haldin í 16. sinn og 108 innsend verk. Er
eitthvað athyglisvert við keppnina í ár sem stendur
upp úr?
Ég er aðallega bara svo hoppandi glöð yfir því hvað tilnefningarnar
sýna mikla fjölbreytni og gefa góða innsýn í hvað við eigum mikið
af frábæru fagfólki í þessum bransa. Það er t.d. gaman að sjá
þarna inni reynsluboltann Hildi Jönu Gísladóttur, sjónvarpskonu
af N4, og nýliðann Unnstein Manuel Stefánsson sem bæði eru til-
nefnd sem Sjónvarpsmaður ársins. Ég er reyndar dálítið hnugg-
inn yfir því að tónlist Jóhanns Jóhannssonar var ekki send inn í
Edduna en vona bara að hann fái Óskarinn í skaðabætur.
Í þætti Svala og Svavars á SkjáEinum fyrr í febr-
úar var ákveðinn hrekkur rifjaður upp gegn Loga
sem þú stóðst fyrir og flestir muna eftir. Hrekkur-
inn snerist þó svolítið í andhverfu sína. Segðu okk-
ur aðeins frá því.
Já, mér hefndist agalega fyrir þennan grikk. Málið var að ég átti að
lesa frétt þetta kvöld um nýkjörinn forseta Túrkmenistans sem heitir
því lipra og þjála nafni Gurbanguly Mälikgulyýewiç Berdimuhamedow.
Ég var að lesa með Loga sem er frægur fyrir að renna aldrei yfir inngang-
ana sína fyrr en bara í beinni útsendingu svo ég fékk alla fréttastofuna í lið
með mér og svissaði fréttum þannig að hann myndi lenda í þessum lestri.
Að auki fór ég aðeins höndum um fréttina og setti fullt nafn forsetans inn í
hverja einustu setningu. Þegar til kom náði melurinn svo að bjarga sér snilld-
arlega fyrir horn, renndi eins og ekkert væri í gegnum nafnið og skipti því svo
bara út og las í staðinn forsetinn eða maðurinn. Þá var ég hins vegar búin að
bíða spennt svo lengi með kraumandi fliss í maganum að ég sprakk og missti
mig í gjörsamlega óstöðvandi hláturskast – sem varð svo slæmt að það spýttust
tár úr augunum og svo heyrðist bara nefsog og ískur þegar ég reyndi að lesa
næstu frétt. Hljóðmaðurinn bjargaði því sem bjargað varð með því að draga nið-
ur í hljóðinu en allt kom fyrir ekki og það var fullt af fólki sem hringdi upp á
fréttastofu og spurði hvað hefði eiginlega komið fyrir og hvers vegna ég væri að
gráta í miðjum fréttatíma.
Saknarðu þess að starfa í fjölmiðlum?
Að vera fréttamaður er líklega ein skemmtilegasta vinna í heimi, alltaf allt á fullri
ferð í hávaðalátum og á síðustu stundu. Og svo er samstarfsfólkið litríkt, fyrirferð-
armikið og aldrei leiðinlegt. Hins vegar er þetta lýjandi starf til lengri tíma, það
kemst lítið annað að, hvorki maður sjálfur, áhugamál né fjölskylda. Þegar
ég hætti þá tók mig líklega upp undir ár að komast yfir adrenalínfíknina
og nú á ég erfitt með að sjá mig snúa til baka.
Sérðu fram á gott kvikmynda- og sjónvarpsár?
Já, það er fullt af skemmtilegum verkefnum í farvatninu, þó að þau gætu
auðvitað alltaf verið fleiri. En ég er gríðarlega bjartsýn fram veginn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BRYNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Með kraumandi
fliss í maganum
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.2. 2015
Ég á ekki konu en ætli ég heyri ekki í
mömmu. Hún býr úti á landi en ef hún væri í
bænum myndi ég gefa henni rósir.
Guðbjartur Arnar Guðbjartsson.
Ég þarf fyrst að finna konu á laugardags-
kvöldið. Svo ætla ég bjóða henni út að borða á
sunnudagskvöldið á Aktu Taktu og svo fáum
við okkur sjeik á eftir. Endalaus rómantík.
Böðvar Bergsson.
Mögulega út að borða.
Warren Gilsdorf.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA EITTHVAÐ SÉRSTAKT FYRIR KONUNA Í LÍFI ÞÍNU Á KONUDAGINN?
Það er ekki ákveðið en það verður
eitthvað fínt.
Svavar Trausti Stefánsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Leikstjórinn Vignir Rafn
Valþórsson er með mörg
járn í eldinum. Hann leggur
nú lokahönd á uppsetningu
sína á Lísu í Undralandi og
mun síðar á árinu setja upp
eigin leikgerð á skáldsögunni
Illsku. Hann segir gott hand-
rit lykilatriðið í allri leikhús-
vinnu sinni. Menning 56
Í BLAÐINU
Forsíðumyndina tók
Kristinn Ingvarsson
Á að slá upp sushiveislu?
Heimatilbúið sushi er mjög
skemmtilegt að búa til. Hrís-
grjónin eru eitt það mik-
ilvægasta þegar sushi er
búið til og gefur Sunnudags-
blað Morgunblaðsins les-
endum nokkur góð ráð við
undirbúning
hrísgrjónanna.
Matur 34
Tískuvikan í New York er
nýafstaðin. Þar sýndu nokkrir af
helstu hönnuðum heims vetrar-
línur sínar fyrir veturinn 2015/
2016. Victoria Beckham, Alex-
ander Wang og Proenza Schou-
ler eru meðal hönnuða sem
stóðu upp úr á tískuvikunni.
Tíska 42
Það er vel hægt að æfa sig í að vera vinur sinn segir
Borghildur Sverrisdóttir, höfundur bókarinnar Ham-
ingjan eflir heilsuna. Hún telur sjálfsvinsemd mik-
ilvægan þátt í átt að hamingjuríkara lífi. Við eigum að
reynast okkur sjálfum jafn vel og öðrum. Heilsa 22
Brynhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Eddunnar og jafnframt stjórn-
andi hátíðarinnar, sér fram á gott kvikmynda- og sjónvarpsár. Brynhildur
er einnig fjallaleiðsögumaður og hoppar og skoppar iðulega á fallegum
fjöllum en áður starfaði Brynhildur lengi í fjölmiðlum.