Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Page 4
* „Maður tekur ekki svona lán nema vera auralaus. Ég freist-aðist til að taka smálán fyrir einhverju sem vantaði til heim-ilisins og náði svo ekki að halda í við að borga og tók fleiri lán.“ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.2. 2015
Algengt að fólk taki
smálán fyrir mat
Þeim fer fjölgandi sem leita til um-boðsmanns skuldara vegna smál-ánaskulda. Stærri hluti þeirra sem
leituðu til umboðsmanns skuldara á síð-
asta ári á í fjárhagsvanda vegna smál-
ánaskulda en árin þar á undan. Af 1.620
umsóknum sem bárust embættinu á síð-
asta ári eru smálán hluti vandans í 221
umsókn eða í 14% umsókna. Árið 2012
komu smálán við sögu í aðeins 2% um-
sókna um aðstoð hjá umboðsmanni skuld-
ara.
Tekjurnar duga ekki
fyrir afborgunum
Maður á sjötugsaldri, sem vill ekki láta
nafns síns getið, sagði blaðamanni frá
því hvernig skuldir hans við smálánafyr-
irtæki hafa undið upp á sig undanfarið
ár. Skuldir hans við fyrirtækin nema nú
samanlagt, með innheimtukostnaði, yfir
hálfri milljón króna.
Hann og kona hans hafa ekki mikið
milli handanna og þótt þau bæði hafi
staðist svokallað lánshæfismat sem smál-
ánafyrirtækin gera þá er augljóst að
tekjur þeirra hækka ekki úr þessu. Mað-
urinn er hættur að vinna en sinnir þó
hlutastarfi, en eftir ár hættir hann alveg
og þá er viðbúið að tekjur hans lækki
töluvert. Tekjur konu hans eru ekki aðr-
ar en örorkubætur, en vegna veikinda
þarf hún á miklum lyfjum að halda.
Lyfjakostnaður þeirra hjóna nemur um
hálfri milljón króna á ári.
Maðurinn segist hafa samið um jafnar
afborganir lánanna við smálánafyrirtækin,
en það dugi ekki til. Þau hafi einfaldlega
ekki nægar tekjur til að bæta þessum af-
borgunum við húsaleigu, mat, lyf og aðrar
nauðsynjar. „Eina leiðin sem ég sé er að
leita til umboðsmanns skuldara. Við reyn-
um að standa í skilum eins og hægt er,
en bara sjáum ekki fram á að komast yfir
að borga þessi lán.“
Maðurinn segist vita vel að þessi lán
séu óhagstæð, en hann hafi samt freist-
ast til að nýta þau einfaldlega vegna
þess að peningarnir sem þau hjónin
höfðu til að lifa af út mánuðinn voru á
þrotum. „Maður tekur ekki svona lán
nema vera orðinn auralaus. Ég freist-
aðist til að taka smálán fyrir einhverju
sem vantaði til heimilisins og náði svo
ekki að halda í við að borga og tók fleiri
lán. Maður lendir í ógurlegum vítahring
hjá þessum fyrirtækjum. Svo senda þeir
manni skilaboð og segja að maður eigi
„heimild“ sem hægt sé að nýta,“ segir
hann, en til hliðar má sjá dæmi af þeim
sms-skilaboðum sem honum hafa borist
reglulega frá fyrirtækjunum.
Hann telur þetta virka ruglandi, enda
sé þarna talað um heimild en ekki lán,
þótt í raun hafi verið átt við að hann
hefði heimild til að taka fleiri lán – með
tilheyrandi kostnaði.
Að sögn Svanborgar Sigmarsdóttur,
talsmanns umboðsmanns skuldara, er
ekki einsdæmi að fólk með litla greiðslu-
getu sé komið í mikinn vanda vegna
smálánaskulda.
„Við höfum mikið orðið vör við það,
sérstaklega á síðustu tveimur árum, að
einstaklingar leita til okkar með fjöl-
margar smálánaskuldir á bakinu. Fólk
er lent í vítahring, byrjar á einu láni en
skuldirnar eru svo komnar upp í mjög
háar fjárhæðir. Við sjáum að þetta er
mjög oft tekjulágt fólk, einstaklingar
sem hafa almennt ekki greiðslugetu til
að fara í banka og taka lán. Þeir hafa í
raun ekki efni á að taka lán vegna þess
að þeir hafa svo lágar tekjur. Þegar við
erum að ræða við fólk um ástæður þess
að það tekur smálán þá heyrum við oft-
ast „mig vantaði pening fyrir mat“.“
Dæmi um að uppistaða allra
skulda sé smálánaskuldir
Smálánafyrirtækin hér á landi eru í
raun aðeins tvö, en þau starfa undir
fimm vörumerkjum ef svo má kalla.
Hraðpeningar, 1909 og Múla eru eitt
fyrirtæki sem starfar undir nafninu
Neytendalán. Smálán og Kredia eru svo
í raun sama fyrirtækið. Fyrirtækin hafa
sjálf gefið það út að þau setji þak á lán-
tökur, þannig að hver einstaklingur eigi
ekki að geta fengið nema 80 þúsund
krónur að láni hjá hvorri smálánablokk.
„Við höfum ekki orðið vör við að þetta
þak sé virkt. Það virðist að minnsta
kosti hægt að komast framhjá þessum
hámarksupphæðum. Í þeim málum þar
sem smálánakröfur eru hluti vandans er
meðalupphæðin á bilinu 300-400 þúsund
krónur en það eru líka dæmi um að ein-
staklingar skuldi yfir eina milljón króna
í smálán, með innheimtukostnaði.“ Hjá
smálánafyrirtækjum er heimild til að
fara inn á reikninga fólks og taka út, sé
ekki staðið í skilum. Svanborg bendir á
að þar sem fólk sem lendir í þessum
vanda hafi í raun ekki haft efni á að
taka lán til að byrja með sjái það ekki
aðra möguleika en að taka frekari smál-
án. Hún segir að þeir sem lendi í vanda
vegna smálánaskulda séu ekki bara
ungt fólk, talsvert sé orðið um að til
dæmis ellilífeyrisþegar og öryrkjar taki
þessi lán. „Nú erum við líka farin að sjá
fleiri dæmi þar sem uppistaðan af
skuldum fólks sem leitar til okkar er
bara smálán, en engar aðrar skuldir. Þá
tekur fólk smálán hjá einu fyrirtæki og
svo annað lán hjá næsta fyrirtæki því
það getur ekki borgað. Þetta verður að
miklum vanda mjög fljótt. Það sem við
erum að sjá er ekki endilega að smál-
ánin séu komin í vanskil, heldur gefst
fólk bara upp á þessum vítahring. Fólk
kemur hingað því það er að springa,
þetta er bara orðið of mikið.“
221 umsókn 2014 þar sem
smálán voru hluti vandans
Á árinu 2012 voru kröfur frá smál-
ánafyrirtækjum hluti af fjárhagsvanda
hjá 2% þess hóps sem leitaði til embætt-
is umboðsmanns skuldara. Á árinu 2013
áttu 13% í vanda vegna smálánakrafna
og á árinu 2014 eru kröfur frá smál-
ánafyrirtækjum hluti vandans hjá eða
14% þeirra sem leita til embættisins.
Upphæð krafna sem smálánafyrirtæki
eiga á fólk sem leitar til umboðsmanns
skuldara nam alls 83,5 milljónum króna
á síðasta ári og lætur nærri að hún hafi
fimmfaldast frá árinu 2012 þegar kröfur
smálánafyrirtækja á skjólstæðinga um-
boðsmanns skuldara námu alls 17,4
milljónum króna.
Á bak við upphæðina 17,4 milljónir
króna lágu 40 kröfur árið 2012. Það þýð-
ir að meðalskuld skjólstæðings umboðs-
manns skuldara á árinu 2012 við smál-
ánafyrirtæki nam alls um 435 þúsund
krónum. Sú tala er fengin með því að
deila fjölda umsókna sem innihéldu
smálánakröfur, alls 40 umsóknir, upp í
heildarupphæðina, 17,4 milljónir króna.
Dæmið fyrir árið 2014 er aðeins öðru-
vísi því á bak við heildarupphæð krafna,
þ.e. 83,5 milljónir króna, lá 221 umsókn.
Meðalskuld einstaklings til smálánafyr-
irtækis nam því 372 þúsund krónum á
síðasta ári.
Á árinu þarna á milli, 2013, voru 164
umsóknir þar sem smálánakrafa var
hluti vandans og heildarupphæð
skuldanna nam 57 milljónum króna.
Meðalskuld við smálánafyrirtæki nam
því 348 þúsund krónum 2013.
Stærri hluti af umsóknum til umboðs-
manns skuldara inniheldur skuldir
vegna smálána nú en á síðustu tveimur
árum, en meðalupphæð hefur lækkað.
MAÐUR SEM HEFUR SAFNAÐ UPP SMÁLÁNASKULDUM SEGIR AUÐVELT AÐ LENDA Í ÓGURLEGUM VÍTAHRING
ÞVÍ BEINLÍNIS SÉ HVATT TIL FREKARI LÁNTÖKU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA SMS UM AÐ LÁNTAKI EIGI „HEIMILD“ ÞEG-
AR Í RAUN ER VERIÐ AÐ BJÓÐA FREKARI LÁN. FÆRST HEFUR Í VÖXT AÐ FÓLK LEITI TIL UMBOÐSMANNS
SKULDARA VEGNA SMÁLÁNASKULDA. DÆMI ERU UM AÐ FÓLK SKULDI YFIR MILLJÓN KRÓNA Í SMÁLÁN.
Smálánakröfur hjá umboðsmanni skuldara
2012-2014
Fjöldi umsókna sem
innihalda kröfur frá
smálánafyrirtækjum
Hlutfall umsókna þar
sem smálán eru hluti
vandans
40 164 221
17,4 m.kr.
1.906
2%
57,1 m.kr.
1.308
13%
83,5 m.kr.
1.620
14%
Heildarfjöldi umsókna
embættisins
Upphæðir krafna
smálánafyrirtækja
2012 2013 2014
Föður sem leyfði ungri dóttur sinni að fara í sakleysislegan lita-
leik í spjaldtölvu brá heldur betur í brún þegar auglýsing frá
smálánafyrirtækinu Smálánum ehf. birtist í borða efst í leiknum
með skilaboðum um að senda sms í númerið 1902. Að neðan
má sjá dæmi um sms-skilaboð sem lántakar fá með gylliboðum.
Kaeri vidskiptavinur. Heimild
thin er 80.000 kr. og thu att
60.000 kr. eftir af heimildinni
sem thu getur nytt ther theg-
ar hentar. Ast fridur og Mula.
Settu afslattarkodann: MULA
thegar thu tekur lan a www.mula.is
og vid fellum nidur lantokukostnad
okkar. Gildir til miidnaettis a morg-
un (27.11.14) Kvedja, Mula
#Fostudagsfar! Vid gefum 10.000
kl.16.30! Taktu thatt a https://1909/
leikur. Thu getur sott um lan med
tvi ad senda SMS med textanum
20000 i 1909. Goda helgi
Ertu nokkud ad gleyma ter? Saektu
um fyrir kl.18 og tu sleppur vid lan-
tokukostnad okkar og faerd frian
biomida. Saektu um a www.1909.is
og og mundu kodann: BIO