Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Qupperneq 13
Það reyndist ekki þrautalaust aðhefja rekstur kaffihússinssem var opnað á mótum
Hafnargötu og Tjarnargötu í
Keflavíkurhverfi 1. febrúar sl. Stefnt
hafði verið að opnun Stefnumóta í
septemberbyrjun árið 2014 þegar
Ljósanótt var haldið hátíðleg í
Reykjanesbæ.
Duldar skemmdir reyndust hins
vegar á húsnæðinu sem þurfti að
komast fyrir. Vinnustundirnar urðu
margar og kostnaðarsamar og
reyndu mikið á fjölskylduna sem hef-
ur unnið í þessu saman í tæpt ár.
Hið kærleiksríka uppeldi hefur
hins vegar skilað árangri því þrátt
fyrir að jólagjafir hafi verið fáar og
smáar síðastliðin jól og ekkert jólatré
til að prýða stofuna, enda allir án
launa, voru systkinin sammála um að
þetta hefðu verið bestu jólin. Nú sé
málið að láta gott af sér leiða hér eftir.
Uppskeru vinnunnar við að gera
kaffihúsið starfhæft líkti Guðmunda
við alsælu og sagði í samtali við
blaðamann að hér væri gamall
draumur svo sannarlega að rætast.
„Þessi draumur var búinn að
blunda í mér lengi, alveg frá því að ég
var ung en tók sig aftur upp fyrir um
5 árum þegar ákveðin stefnubreyting
varð í mínu lífi. Ég hafði meira að
segja haft augastað á þessu húsi en
það var ekki laust fyrr en fyrir um
ári. Fljótlega fór ferlið af stað við að
eignast húsið og hefja fram-
kvæmdir.“
En af hverju þessi ríka áhersla á
gleði og hamingju?
Guðmunda sagðist hafa sökkt sér
niður í öll fræði um hamingjuna þeg-
ar hún var að ganga í gegnum erfitt
tímabil fyrir nokkrum árum. „Allt
það sem ég lærði fór yfir til barnanna
minna sem ég ræddi mikið við og
ræði enn mikið við um hamingjuna.
Síðan þegar ég veiktist af MS og gikt
komst ég að því að gleðin og ham-
ingjan eru góðir samferðamenn í
veikindum.“
Það liggur ekki djúp speki á bak
við ásóknina í þetta hús. Það var ein-
faldlega stór hluti af æsku Guð-
mundu að fara þangað inn fyrir jólin
og kaupa hljómplötur í jólagjöf og
það var bjallan á hurðinni sem gerði
útslagið. „Þessi bjalla er enn á hurð-
inni,“ sagði Guðmunda og það var
auðheyrt að henni þótti mikill fengur
í bjöllunni.
Menningarleg kaffihús eru líka
hluti af uppvexti Guðmundu sem fór
á Mokka í Reykjavík með foreldrum
sínum sem drukku í sig menningu
staðarins. „Þessar heimsóknir höfðu
mikil áhrif á mig og mér fannst þær
skemmtilegar. Auk þess hafði mér
lengi fundist vanta svona stað hér í
Reykjanesbæ þar sem áhersla er á
menningu og listir, notalegt viðmót
og vinaþel.“
Undirtitill kaffihússins er art &
culture café og nú þegar hafa nokkrir
tónleikar verið á staðnum og mynd-
listarsýning Maríu Kjartansdóttur
og Hörpu Einarsdóttur stendur yfir.
Ýmsar hugmyndir eru einnig í gangi
enda starfsemin enn í mótun. Á
Stefnumótum er fundarsalur til fjöl-
breyttra nota og barnahorn með af-
þreyingu fyrir yngstu gestina.
Allar veitingar sem eru bornar
fram í kaffihúsinu eru gerðar á
staðnum og Guðmundu til mikillar
gleði hefur hún uppgötvað að hún er
ástríðukokkur. „Auðvitað hafði ég
reynslu af því að elda heima, en þetta
er allt annað.“
Hún leggur líka mikið upp úr
ástríðunni og segja að án hennar
þrífist ekki staður eins og þessi.
„Við erum saman hér öllum stund-
um og fjölskyldulífið hefur allt farið
úr skorðum en það bjargar því
hversu gaman okkur þykir þetta og
hversu mikla hamingju þetta hefur
fært okkur.“ Guðmunda sagði börnin
hafa ákveðið að vera í þessu í eitt ár
með sér en síðan taki við skóli og
önnur ævintýri ungdómsáranna.
REYKJANESBÆR
Kærleikur og
hlýtt viðmót
GUÐMUNDA SIGURÐARDÓTTIR REKUR KAFFIHÚSIÐ
STEFNUMÓT ÁSAMT ÞREMUR BÖRNUM SÍNUM,
SELMU KRISTÍNU, GYLFA ÞÓR OG EYÞÓRI ELÍ
ÓLAFSBÖRNUM. BÖRNIN HAFA FRÁ UNGA ALDRI
DRUKKIÐ Í SIG VISKU MÓÐURINNAR UM HAMINGJUNA.
Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is
Fjölbreytt starfsemi. Myndlistarsýn-
ingar, tónleikar og upplestur verða
meðal fastra viðburða Stefnumóta.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölskyldan á bak við kaffihúsið
Stefnumót í Reykjanesbæ. Frá vinstri:
Guðmunda Sigurðardóttir, Eyþór Elí,
Gylfi Þór og Selma Kristín Ólafsbörn.
22.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Kanínur eru orðnar plága í Árborg og sveitarfélagið
vill fá leyfi Umhverfisstofnunar til að fækka þeim til
muna. 170 dýr voru drepin í fyrra og 300 árið á und-
an. Faraldurinn er skæður í Suðurbyggð á Selfossi.
Kanínuplága á Selfossi
Nú er hægt að sækja um þátttöku á Handverkshátíðinni
að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit, á www.esveit.is. Hátíðin
verður 6. til 9. ágúst. Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl
og niðurstaða valnefndar á að liggja fyrir 6. maí.
Ertu handverksmaður?
brokkoli.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Fjarðarkaup, Hagkaup og Melabúðinni
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Inniheldur mikið magn af sulforaphane, en
dagskammturinn jafngildir meira en 1,5 kg af
lífrænt ræktuðum brokkolí spírum.
Að auki er viðbætt túrmeric og selenium.
Krö
ftug
ar a
f
sulf
orap
han
e!
Verndar og styrkir frumurnar | Margvísleg heilsubætandi áhrif | Hægir á öldrun
Sulforaphane ensímið í brokkolí býr yfir magnaðri
sérvirkni sem einn öflugasti „kveikjuþráður“
á varnarkerfi líkamans.
Það hjálpar líkamanum að auka framleiðslu
mikilvægra varnarefna sem hamla hrörnum
fruma, í heilanum, húðinni og öllum líkamanum.
Er varnarkerfið þitt virkt?
Styrkir samskipti fruma.
Hjálpar líkamanum að auka fram-
leiðslu náttúrulegra andoxunarefna.
Örvar framleiðslu detox ensíma.
Styrkir getu líkamans til að mynda
bólgueyðandi efni.
Margir halda að nafnið Stefnumót
sé til komið vegna Stefnumóta-
staursins utan við kaffihúsið en
Guðmunda segir svo ekki vera.
„Nafnið á staðnum kom nokkru
fyrr enda stefndum við alltaf að
því að opna fyrir Ljósanótt þegar
Stefnumótastaurinn var reistur
hér fyrir utan. Mér finnst Stefnu-
mót vera svo lýsandi í því sem við
viljum kalla fram hér, að þetta sé
staður þar sem fólk langar til að
eiga stefnumót, af hvaða tagi sem
þau eru. Á þessu horni eru líka
tvær götur að mætast.“
Stefnumótastaurinn var reistur
þar sem staurinn, sem stúlkan
hallaði sér upp að í ljóði og lagi
Magnúsar Kjartanssonar, Skóla-
ball, stóð. Hægt er að hlusta á
brot út laginu með því að þrýsta á
takka á staurnum.
Löng viðskiptasaga
Horn Hafnargötu og Tjarnar-
götu er þekkt fyrir meira en
Stefnumótastaur. Það á sér langa
viðskiptasögu. Árni Samúelsson
opnaði sérverslunina Víkurbæ í
þessu hornhúsi 2. mars 1972 en í
versluninni voru seldar ljós-
myndavörur, rafmagnstæki og
hljómplötur en Víkurbær var
einnig viðgerðar-verkstæði og
kvikmyndaleiga, þar sem er hægt
var að leigja átta milli-metra kvik-
myndir og sýningarvélar.
Víkurbær hét seinna Hljómval,
þá í eigu hjónanna Sigurðar
Gunnarssonar (Patla) og Elsu Júl-
íusdóttur, og hét Hljómval allt þar
til versluninni var lokað árið
2013, eftir nokkur eigendaskipti,
og svigrúm skapaðist fyrir Stefnu-
mót.
Stefnumót við
Stefnumótastaur
Stefnumót við bók og snjallsíma. Á
kaffihúsinu er úrval bóka og tíma-
rita og þráðlaust net.