Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.2. 2015 Græjur og tækni Google býr yfir ótal möguleikum sem not- endur þess þekkja ekki svo gjörla. Þar á meðal er hægt að nota leitarforritið til að sýna niðurstöður eftir gerðum skjala og er handhægt ef fólk veit að það er að leita að word- eða til dæmis PDF-skjali. Hægt að leita eftir tegund skjala Á varp Barack Obama Bandaríkjaforseta á ráð- stefnu um netöryggi sem haldin var í Stan- ford-háskóla í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur vakið miklar umræður og gagnrýni þar sem mörgum þykir forsetinn vilja seil- ast heldur langt til að tryggja, að því er hann segir, öryggi al- mennra borgara. Í stuttu máli vill Obama að stærstu tæknifyrirtækin séu ötulli við að deila upplýsingum sem þau búa yfir sem geta falið í sér vís- bendingar um glæpsamlegt athæfi tölvuþrjóta og netárásir. Slíkum upplýsingum verði þeir að deila með yfirvöldum til að sporna gegn netglæpum. Tæknifyrirtækin eru ekki svo sannfærð og eru treg í taumi for- setans og talsmenn Google, Face- book og Yahoo ákváðu til dæmis að sniðganga ráðstefnuna. Ástæð- an er meðal annars netnjósnir þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkj- anna, NSA, sem valdið hefur úlfúð en Obama endaði ráðstefnuna á því að rita minnisblað til þingsins þess efnis að frekari samvinna í netöryggismálum yrði að eiga sér stað milli stóru netfyrirtækjanna og yfirvalda í Bandaríkjunum. Slíkt minnisblað í Bandaríkjunum, forsetaúrskurður, er ráðgefandi í eðli sínu og þessar aðgerðir for- setans marka ákveðin tímamót í samskiptum stjórnvalda við int- ernetfyrirtæki en forsetinn hefur ekki farið í grafgötur um að hann telji árás á netinu eina helstu ógn sem steðji að Bandaríkjunum og heiminum öllum sem þar hakkarar gætu lamað allt frá flugumferð- arkerfum upp í að hreinsa út af bankareikningum landsmanna. Helstu dagblöð og fjölmiðlar vestanhafs hafa fjallað mikið um þessa ákvörðun forsetans og sitt sýnist hverjum. Þannig greindi Washington Post frá því að kreditkortafyrirtæki svo sem MasterCard litu málið já- kvæðum augum en vildu að for- setinn gengi enn lengra, hvatning dygði ekki til heldur yrði að lög- leiða þessar ráðgefandi beiðnir forsetans til að eitthvað gerðist. Obama hefur þó tekið skref í átt til lögleiðingar þessu efni skylt. Í síðasta mánuði lagði hann fram tillögu að löggjöf sem myndi vernda netfyrirtæki frá lögsókn ef þau deildu upplýsingum sem tengdust glæpsamlegu athæfi í netheimum með stjórnvöldum. Enn sem komið er hefur þó ekk- ert virkað til að stöðva straum netárása eins og þeirra sem risa- fyrirtækið Sony varð til að mynda fyrir barðinu á. Njósnirnar setja stórt strik í reikninginn Fyrirtæki í Silicon Valley sem og ýmsir hópar sem berjast fyrir gagnaleynd almennings á internet- inu hafa lýst því yfir að þau séu tillögum Bandaríkjaforseta andsnúin en þau gætu þó tekið sína afstöðu til endurskoðunar ef stjórnvöld vestanhafs og Þjóðarör- yggisstofnun Bandaríkjanna, NASA, taki vinnubrögð sín til endurskoðunar í sambandi við vafasama upplýsingaöflun þeirra á netinu og geri hreinlega upp þau mál. Fyrir rúmu ári tóku stærstu tæknifyrirtækin vestanhafs sig til, þar á meðal Apple, Google, Twitter, Facebook, Microsoft og Yahho og sendu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau hvöttu bandarísk stjórnvöld til að koma böndum á með lögum hvaða ramma njósnastofnanir í Banda- ríkjunum mættu starfa innan og setja skýrt í lög hverjar þeirra heimildir væru í þeim málum. Forsetinn féllst á að slíkt yrði tekið til endurskoðunar í ræðu á síðasta ári, sérstaklega það sem heyrði til símahlerana en talsmenn þessara fyrirtækja segja að það sé engan veginn nóg og viðleitnin sé lítil hinum megin. Hættulegt að skapa samkeppni Gagnrýnisraddir segja að það sé hættulegt að skapa þannig um- hverfi að netfyrirtæki sjái gróða- von í því að deila upplýsingum með stjórnvöldum í Bandaríkj- unum og upp gætu sprottið ný fyrirtæki sem muni starfa undir öðru yfirskini og laða að sér net- notendur, en einungis hafa í huga að safna upplýsingum sem þeir gætu selt áfram. Aðrir benda á að samkeppni í þessu geti orðið til góðs – þannig munu vísbendingar um tölvuárásir ekki aðeins berast í meiri mæli heldur muni samkeppni verða til þess að það dugi ekki að henda bara einhverju fram heldur verði upplýsingarnar að vera áreið- anlegar og það verði fljótt ljóst hvaða fyrirtækjum er betra að starfa með en öðrum. Orðspor breiðist alltaf hratt út. Tæknifyrirtæki í Bandaríkjunum hafa að eigin frumkvæði víðast hvar hert á sínum öryggisreglum sem tryggja eiga notendum sterk- ari dulkóðun þeirra upplýsinga svo að tölvuþrjótar geti síður komist yfir persónuleg gögn not- enda. Ljóst er að það er vandasamur og umfangsmikill kafli að hefjast í samskiptum stærstu netfyrirtækja vestanhafs og stjórnvalda þar í landi sem snúa að því að öryggi almennings sé tryggt, ekki bara gegn tölvuþrjótum heldur líka gegn opinberum stofnunum. Spenna í samskiptum FORSVARSMÖNNUM STÆRSTU NET- OG TÆKNIFYRIR- TÆKJA BANDARÍKJANNA LÍST ILLA Á VIÐLEITNI STJÓRN- VALDA ÞAR Í LANDI TIL AÐ FÁ ÞAU TIL SAMSTARFS. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Barack Obama leggur hart að netfyrirtækjum þar í landi að veita stjórnvöldum upplýsingar sem gætu ljóstrað upp um og komið í veg fyrir alvarlegar netárásir þar á landi. Árásirnar séu ein stærsta ógn er steðji að nútímanum. AFP Aðeins mánuður er þar til Sony hefur sölu á snjallgleraugum í einum tíu löndum en gleraugun eru í svipuðum dúr og Google- gleraugun svokölluðu en Google sendi frá sér tilkynningu þess efnis í síðasta mánuði að þeir væru að endurskoða framleiðslu sína á gleraugunum og hygðust gera hlé á henni með það í huga að koma á markað mun þróaðri útgáfu en fengist hefur. Sony gleraugun þurfa að geta tengst Anroid tæki til að hægt sé að nota þau en þau eru með- al annars þeim nýjungum gædd að með þeim fylgir hugbúnaður sem gerir notendum kleift að hanna eigin smáforrit til að nota með gleraugunum. Gleraugun eru 77 g og í þeim er meðal annars innbyggður hraðamælir, áttaviti, myndavél, Bluetooh og Wi-Fi en með þeim fylgir lítill míkrófónn sem er hægt að festa með snúru við fatnað notenda og þannig hægt að vera á röltinu og spjalla við vini sína. Ekki eru allir á einu máli um hversu sniðug upp- finning snjallgleraugu séu, þau séu fyrirferðarmikill búnaður sem fólk muni ekki kunna að meta. Stutt í Sony gleraugun GOOGLE GLERAUGUN NÁÐU EKKI AÐ SLÁ Í GEGN Á ÞANN HÁTT SEM NETFYR- IRTÆKIÐ SÁ FYRIR SÉR. NÚ RÆR SONY Á SÖMU MIÐ. Menn velta því fyrir sér hvort snjallgleraugu falli fólki í geð eða hvort því þyki þau jafnast á við andlitslýti en hér eru nýju Sony snjallgleraugun. Nýtt app á markaðnum sem kallast einfaldlega Darkroom er að vekja mikla lukku meðal þeirra Apple-notenda sem eru duglegir að taka myndir á símana sína. Forritið er ætlað Apple snjalltækjum og er afar handhægt og þægilegt myndvinnslu- forrit sem lagar allt það sem fólk vill láta laga á myndinni, liti, skugga, eða einfaldlega útlitslega, en forritið þykir einkar gott því það býður upp á djúpa myndvinnslu án mikillar fyrirhafnar og fljótlegt að læra á það. Þá þykir notendum sem skrifa um það á bandarísku vefsíðunni The Verge það bjóða upp á þróaða og djúpa myndvinnslu sem hefur yfirleitt aðeins verið möguleg í þyngri myndvinnsluforritum í borð- og fartölvum. SNIÐUGT SMÁFORRIT Myndvinnsluforrit slær í gegn Smáforritið Darkroom lagar liti, skugga, línur og hvaðeina á ljósmyndum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.