Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Qupperneq 39
22.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Ég er ekki hræddur við tölvur. Éghræðist skort á þeim. Isaac Asimov
Það er ekki víst að gamli góði sirkusinn fái að vera í
friði með sína fíla og trúða framvegis því í Amsterdam
er verið að undirbúa ótrúlega sirkussýningu þar sem
drónar sýna listir sínar. Þessi fljúgandi vélmenni munu
skiljanlega ekki dansa um á hefðbundnu sirkussviði
heldur haga sér frekar eins og loftfimleikafólk – fljúga
um himininn á stórum útileikvangi, nota ljós, hraða og
alls kyns drónabrellur til að útbúa falleg mynstur og
krúsídúllur, sýna áhættuatriði og sjónhverfingar og
dansa við tónlist í stórum hópum heila kvöldstund sem
ætluð er allri fjölskyldunni.
Áætlað er að nokkur hundruð drónar muni taka
þátt í sýningunni en sýningin er unnin í samstarfi við
hinn konunglega flugher Hollands en föst dagsetning er
ekki komin á viðburðinn. Yfirskrift þessa sirkuss er
AIR 2015.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einhverjum dettur í
hug að halda slíkan drónasirkus þótt þeir í Hollandi
virðist ætla að verða fyrstir til að koma því í fram-
kvæmd. Disney hefur unnið að því að nýta sér dróna í
stórum útisýningum sínum sem njóta mikilla vinsælda
og í stað flugelda myndu drónar þá leika listir sínar og
mynda sannkallaða eldsloga á himni.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Fyrsti dróna-
sirkus í heimi
Drónar eru nú í stífri þjálfun fyrir stærðarinnar sirkussýn-
ingu síðar á árinu, þá fyrstu sinnar tegundar.
AFP
Snjallúrin eru í örri þróun og
eitt af leiðandi fyrirtækjum í
þeim gera er LG sem hefur nú
svipt hulunni af nýrri gerð
snjallúra sem er væntanleg á
markað og verður kynnt nánar
á heimssýningu farsímanna sem
fram fer í Barcelona eftir
nokkrar vikur.
Úrin eru háklassa lúxusvara
sem er jafnframt stíluð inn á
hátískumarkaðinn, með afar
fáguðu útliti og alls ólík því
sportlega útliti sem snjallúrin
hafa jafnan haft. Þannig er ólin
úr háklassa leðri og erfitt að sjá
í fljótu að úrið sé af snjalltækja-
gerð. Úrið kallast LG Watch
Urbane en forsvarsmenn fyr-
irtækjanna segjast vilja koma
úrunum út til breiðari hóps
fólks en ekki aðeins til tækja-
nördanna, samkvæmt frétt The
Telegraph.
Ný snjallúr frá Apple eru
væntanleg á markað í apríl og
þar af er ein gerðin úr 18 kar-
ata gulli. Skiljanlega eru for-
svarsmenn fyrirtækjanna nú að
undirbúa verslanir til að vera í
stakk búnar að passa vel upp á
þessa dýrgripi með öruggum
skápum þar sem þó er hægt að
skoða úrin.
NÝJASTA NÝTT
Hátísku snjallúr
LG Urban úrin eru svar fyrirtækisins við Apple
lúxusúrunum sem væntanleg eru í apríl.
Í kringum 1980 tók Póstur og sími
upp nýja þjónustu sem gerði fólki
kleift að hafa síma í bifreiðum sínum
en þó þurftu notendur þessara síma í
fyrstu að hringja í gegnum sér-
stakra símstöð. Árið 1986 var tekin
upp sjálfvirk farsímaþjónusta, svo-
kallað NMT-450 kerfi en svokallaðir
bílasímar eða farsímar frá danska
fyrirtækinu Dancall nutu þá á þess-
um árum mikilla vinsælda hérlendis
og þá sérstaklega tegundin Dancall
7000 en Radíómiðlun fór að selja
símann á sama tíma og nýja kerfið
var tekið í notkun.
Dancall-símarnir voru tímamóta-
breyting fyrir samskiptamöguleika
hérlendis en nú voru eigendur þeirra
ekki lengur bundnir við að nota þá í
bifreiðum heldur var síminn nú í
handtösku sem í var lítil rafhlaða
sem mátti hlaða aftur og aftur og
auðvelt að bera töskuna.
Nú var því hægt að tala í símann á
hestbaki, á vélsleðanum og í sumar-
bústaðnum svo eitthvað sé nefnt. Að
vísu vó síminn í töskunni 6 kíló en
það þótti engu að síður lúxus á þess-
um tíma.
Síminn gat munað 49 símanúmer
og þá þótti tímamótakennt að menn
gátu tengt símanúmer bílasímans
við annan síma og þannig yfirgefið
bílinn og svarað símtölum sem bár-
ust í hann annars staðar.
GAMLA GRÆJAN
Þessi stórskorni farsími þótti það flottasta sem Íslend-
ingar gátu átt um miðjan 9. áratuginn.
6 kílóa bílasíminn
Konu-
dagurinn
er í dag
iPhone 6
Verð frá:119.990.-
iPadmini 3
Verð frá:82.990.-
Smáralind
Opið til kl. 18.00 í dag