Morgunblaðið - 30.04.2015, Síða 1
F I M M T U D A G U R 3 0. A P R Í L 2 0 1 5
Stofnað 1913 100. tölublað 103. árgangur
TÚBERINGAR
TÖFFARAR OG
TILFINNINGAR
VELTAN Í
FÓTBOLTANUM
AÐ AUKAST
AF OFURMENNUM,
GLÍMUKÖPPUM
OG PÁFUGLUM
VIÐSKIPTAMOGGINN DANSVERKIÐ MACHO MAN 3850 ÁRA ÚTSKRIFTARAFMÆLI 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla TF-LIF hefur verið á flugi fyrir Gæsl-
una í 20 ár. Að auki eru tvær þyrlur á leigu.
Í dag eru nákvæmlega 50 ár liðin
síðan Landhelgisgæslan tók þyrlu í
notkun við björgunar- og eftirlits-
störf. Þessara tímamóta verður
minnst með athöfn hjá Gæslunni í
dag. Frá upphafi er talið að þyrl-
urnar hafi bjargað um 3.000 manns,
þar af um 2.000 frá árinu 1994.
Fyrstu árin voru erfið, þar sem
óhöpp voru tíð, og árið 1983 fórst
þyrlan TF-RAN í Jökulfjörðum með
öllum fjórum í áhöfninni. Eftir það
stóð tæpt hvort þyrlurekstri yrði
fram haldið. „En okkur fannst að
við yrðum að halda áfram. Það var
ekki sjálfgefið,“ segir Páll Hall-
dórsson, fv. yfirflugstjóri og flug-
rekstrarstjóri hjá Landhelgisgæsl-
unni, við Morgunblaðið í dag.
Einnig er rætt við Benóný Ásgríms-
son flugstjóra. »16-17
Þyrlur Gæslunnar
björguðu um 3.000
manns á 50 árum
Víðtæk áhrif
» Tíu þúsund félagsmenn í tvö
þúsund fyrirtækjum leggja nið-
ur störf í dag.
» Eigendur fyrirtækja mega
þó ganga í störf starfsfólksins
á meðan verkfall stendur.
Ingileif Friðriksdóttir
Ómar Friðriksson
Rúmlega tíu þúsund félagsmenn
Starfsgreinasambandsins, SGS,
leggja niður störf í fyrstu tólf klukku-
stunda verkfallshrinu sambandsins
sem hefst á hádegi í dag. Björn Snæ-
björnsson, formaður SGS, segir að
verkföllin muni lama landsbyggðina.
Friðrik Pálsson, hótelhaldari Hót-
els Rangár, segir um helming síns
starfsfólks leggja niður störf. Hann
segist sjá fram á að geta sinnt rekstr-
inum í dag, en sem eiganda er honum
heimilt að ganga í störfin Hann segir
róðurinn þyngjast verulega komi til
tveggja sólarhringa verkfalls í næstu
viku. „Það yrði gríðarlega alvarlegt
og myndi senda slæm skilaboð út á
markaðinn.“
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, gagnrýnir ríkisstjórnina harð-
lega í nýútkomnu fréttablaði Eflingar
og segir algert vantraust milli verka-
lýðshreyfingarinnar og ríkisstjórnar-
innar. Í fyrsta sinn í áratugi hafi ASÍ-
hluti hreyfingarinnar lýst því yfir að
hann muni ekki semja tvisvar um at-
riði sem stjórnvöld hafi þegar brotið
eða svikið.
Landsbyggðin lömuð í dag
Fyrsta verkfallshrina SGS hefst á hádegi Hefur gríðarleg áhrif víða, að sögn
formanns SGS „Algjört vantraust milli verkalýðshreyfingar og ríkisstjórnar“
MEkki rætt við okkur … »4
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Einar Karl Haraldsson almanna-
tengill vitnaði í það sem fram fór á
lokuðum fundum þingmanna er
hann lýsti stöðu mála í fréttabréfi til
kröfuhafa. Fjallað er um fréttabréf-
in, eða yfirlitsskýrslurnar, í Morg-
unblaðinu í dag en þau spanna tíu
mánaða tímabil. Í fyrstu skýrslunni,
frá 6. mars 2014, vitnar Einar Karl í
heimildarmenn á Alþingi.
„Miðað við það sem ég heyri úr
þinginu var ekki mikið að græða á
viðræðufundi sér-
fræðingahópsins
með fulltrúum
þingflokkanna.
Það kom ekkert
nýtt fram í grein-
ingunni en fram-
setning gagna
var þó ef til vill
eitthvað frá-
brugðin. Hvað
veldur þessari
tregðu við að setja hlutina á borðið?
Ástæðan er sögð sú að ríkisstjórnin
óttist að með því að gera það muni
hún svipta hulunni af áætlun sinni
og taktík,“ skrifar Einar Karl, í
lauslegri þýðingu.
Veikari staða skapi tækifæri
Athygli vekur að í einni skýrsl-
unni skrifar Einar Karl að hann
greini tækifæri í því að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra og flokkur hans hafi misst svo
gott sem einokun sína á umræðu um
skuldamál. Þá skrifar hann að les-
endur sínir geti fagnað; Már Guð-
mundsson hyggist aftur sækja um
embætti seðlabankastjóra. »12
Heimildarmenn á Alþingi
Almannatengill kröfuhafa greinir frá vinnu við afnám hafta
Einar Karl
Haraldsson
KR-ingar urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar
karla í körfuknattleik annað árið í röð þegar
þeir sigruðu Tindastól, 88:81, í fjórða úrslitaleik
liðanna á Sauðárkróki. Þar með unnu þeir ein-
vígi félaganna 3:1. Í leikslok afhenti Hannes S.
Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Ís-
lands, KR-ingum bikarinn og þeir fögnuðu að
vonum innilega með fjölmörgum stuðnings-
mönnum sínum. » Íþróttir
KR-ingar Íslandsmeistarar annað árið í röð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íslandsbikarinn í körfuknattleik karla fór á loft á Sauðárkróki
Mikill snjór er á sunnanverðu há-
lendinu en minni á því norðan-
verðu. Búið er að loka nokkrum
leiðum vegna aurbleytu og fjölgar
þeim væntanlega á næstunni. Óvíst
er hvenær hálendisvegirnir verða
opnaðir.
„Ég held að það sé mjög mikill
snjór á fjöllum,“ sagði Bjarni Jón
Finnsson, yfirverkstjóri hjá Vega-
gerðinni í Vík í Mýrdal. Opið er í
Þórsmörk. Í gær átti að ljúka við að
laga vöðin á leiðinni. »6
Mikill snjór er
á hálendinu syðra
Fjármálaeft-
irlitið brást
trúnaðarskyldu
sem á því hvílir
þegar það fyrir
mistök veitti
Seðlabankanum
heimild til að
birta op-
inberlega trún-
aðargögn er varða Sparisjóð
Norðurlands. Fjárhagsleg staða
sjóðsins hafði ekki verið kynnt öll-
um eigendum sjóðsins þegar
Seðlabankinn fjallaði um hana í
útgáfu sinni. Forstjóri Bankasýsl-
unnar segir málið afar óheppilegt.
»Viðskipti
Birtu trúnaðargögn
fyrir mistök