Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015 Rauðage rði 25 · 108 Rey kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Verslunarkælar í miklu úrvali • Hillukælar • Tunnukælar • Kæli- & frystikistur • Afgreiðslukælar • Kæli- & frystiskápar • Hitaskápar ofl. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Pólitískur óstöðugleiki, viðvanings- háttur stjórnvalda og völt staða seðlabankastjóra eru meðal umfjöll- unarefna Einars Karls Haraldssonar almannatengils í skýrslum sem hann ritar fyrir kröfuhafa föllnu bankanna um þróun mála á Íslandi. Skýrslurnar, eða fréttabréfin, eru á einfaldri ensku og er látið ógert að laga mál- far og málvillur. Einar Karl vitnar reglulega í for- ystumenn ríkisstjórnar- innar og álits- gjafa til að bregða upp mynd af þró- un mála. Það er algengt stef að vinna við afnám hafta gangi hægt og að deilt sé um heppilegustu leiðirnar. Skýrslurnar sem Morgunblaðið hefur undir höndum eru frá 6. mars 2014 til 30. janúar á þessu ári. Vitnað í heimildarmenn á þingi Í þeirri fyrstu, sem er númer 54 og dagsett 6. mars 2014, vitnar Einar Karl í heimildarmenn á Alþingi. „Miðað við það sem ég heyri úr þinginu var ekki mikið að græða á viðræðufundi sérfræðingahópsins með fulltrúum þingflokkanna. Það kom ekkert nýtt fram í greiningunni en framsetning gagna var þó ef til vill eitthvað frábrugðin. Hvað veldur þessari tregðu við að setja hlutina á borðið? Ástæðan er sögð sú að ríkis- stjórnin óttist að með því að gera það muni hún svipta hulunni af áætlun sinni og taktík – eða skorti á þessu tvennu, sé raunin sú að enn séu uppi ólík sjónarmið innan ríkis- stjórnarinnar um hvernig nálgast eigi málið,“ skrifar Einar Karl en hér er lauslega þýtt úr ensku. Athygli vekur að í skýrslu númer 52, dagsettri 16. mars, skrifar Einar Karl að Ísland hafi verið lítillækkað í samningaviðræðum um makríl [e. humiliation of Iceland], með því að Ísland hafi verið undanskilið í við- ræðum ESB, Noregs og Færeyja. Málið vitni um „vaxandi einangrun Íslands í alþjóðamálum“. Í næstu skýrslu, númer 53, dag- settri 29. mars, skrifar Einar Karl að íslensk stjórnvöld séu ekki tilbúin til aðgerða til afnáms hafta. Í sömu skýrslu fjallar hann um „sex messíasa“ í ráðgjafanefnd sem skipuð var af Sigmundi Davíð Gunn- laugssyni forsætisráðherra hinn 27. nóvember 2013. Í skýrslu númer 55, dagsettri 12. apríl 2014, skrifar hann að heimalningar í nefndinni [e. homegrown experts] séu þekktir fylgismenn gjaldþrotaleiðar. Þeir hafi séð um kynningu á niðurstöðum hópsins. Sérfræðingar með meiri al- þjóðlega reynslu hafi hins vegar guf- að upp, að formanni hópsins, Sigur- birni Þorkelssyni meðtöldum. Sá hafi verið settur af [e. decapitated]. Með honum í hópnum voru Eiríkur Svavarsson, Jón H. Egilsson, Jón B. Jónsson, Ragnar Árnason og Reim- ar Pétursson. Benedikt Árnason og Benedikt Gíslason unnu með þeim. Gagnrýnendur komnir í stjórn Þá skrifar Einar Karl á sama stað að höfundar nýs Fjármálastöðug- leika Seðlabankans styðji ekki gjald- þrotaleiðina. Því næst vitnar Einar Karl í grein Jóhannesar Rúnars Jó- hannessonar, hæstaréttarlögmanns og starfsmanns skilanefndar Kaup- þings, og aðvörunarorð hans um gjaldþrotaleiðina. Það skorti á opin- bera stefnu um framtíðareignarhald Arion banka. „Hann hefur auðvitað á réttu að standa að stjórnvöld og Seðlabankinn fara í kringum þetta mál eins og kettir í kringum heitan graut,“ skrifar Einar Karl sem kvaðst greina tækifæri í því að for- sætisráðherra og flokkur hans hefðu misst einokun sína, eða því sem næst, á umræðu um skuldamál og til- lögur um lausnir í skuldamálum. Það hafi komið honum á óvart að skrif Jóhannesar Rúnars skyldu ekki vera gagnrýnd. Skýringin kunni að vera sú að líklegir gagnrýnendur séu nú uppteknir við að stjórna ríkinu. Í sömu skýrslu skrifar Einar Karl að óþreyju gæti meðal innlendra að- ila. Ný snjóhengja sé að myndast af krónum í eigu innlendra aðila á borð við lífeyrissjóðina. Í skýrslu númer 56, dagsettri 3. maí 2014, skrifar Einar Karl að aug- ljóst sé að Már Guðmundsson seðla- bankastjóri hafi misst vald til sjálf- stæðra ákvarðana. Það sé almennt álitið ólíklegt að hann bjóði sig fram til 5 ára í viðbót. Sú spá var röng. Á sama stað vitnar Einar Karl í leiðara Kjarnans 1. maí í fyrra um að samstaða sé meðal heimildarmanna ritsins um að fara gjaldþrotaleiðina. Svo skrifar hann að önnur mynd komi fram þegar rætt sé við heimild- armenn sem standa nærri ríkis- stjórninni. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sé alfarið á móti gjaldþrotaleiðinni. Það sama megi segja um hagfræðinga í áðurnefndri ráðgjafanefnd. Ríkisstjórnin geti splundrast „Sumir innanbúðarmenn í ríkis- stjórninni eru þeirrar skoðunar að þrálæti varðandi gjaldþrotaleiðina geti leitt til þess að ríkisstjórnin lið- ist í sundur,“ skrifar Einar Karl. Á sama stað segir af fundi Sig- mundar Davíðs og Mark Rutte, for- sætisráðherra Hollands, í Hollandi, sem lítið hafi farið fyrir [e. silent diplomacy]. Vekur sú greining at- hygli því sagt var frá fundinum í fjöl- miðlum. Í skýrslu númer 60, dagsettri 7. júní 2014, vitnar Einar Karl í ræðu Bjarna Benediktssonar á fundi hjá Fjármálaeftirlitinu. Þar hafi komið fram að nefnd um afnám hafta yrði stofnuð og að erlendir sérfræðingar yrðu fengnir til ráðgjafar. Skrifar Einar Karl að líta megi á þá „miklu breytingu“ á ferlinu sem Bjarni hafi boðað „sem aðeins enn annað skref hjá ríkisstjórninni í þeirri leikáætlun hennar að fresta ákvörðunum þar til kröfuhafar gefa eftir“. Hálfum mánuði síðar, í skýrslu 62, dagsettri 21. júní 2014, skrifar Einar Karl að fyrstu skref Bjarna í hafta- ferlinu hafi verið „viðvaningsleg“. Í skýrslu númer 63, dagsettri 24. júlí 2014, skrifar Einar Karl að „eftir að hafa varið ári í að gæla við heima- tilbúnar lausnir hafi íslensk stjórn- völd ráðið hóp alþjóðlegra ráðgjafa til að aðstoða við ferlið að lyfta fjár- magnshöftum“. Umgjörð ríkis- stjórnarinnar líkist orðið mjög skipulagningu ráðgjafar við kröfu- hafa. Í síðustu skýrslunni sem Morgun- blaðið hefur undir höndum, sem er númer 74 og dagsett 30. janúar, seg- ir Einar Karl það skoðun sína að uppsetning starfshóps um afnám hafta, m.a. með nýju fólki, bendi til að verið sé að undirbúa „hið eina skot sem Íslandi muni leyfast í ein- víginu framundan“. Er þar vitnað til myndlíkingar seðlabankastjóra. Fréttaritari kröfuhafa á Íslandi  Einar Karl Haraldsson almannatengill vitnar í heimildarmenn á Alþingi í einu fréttabréfa sinna  Skrifar að fjármálaráðherra hafi haldið viðvaningslega á haftaferlinu í upphafi þeirrar vinnu Morgunblaðið/Kristinn Fundur kröfuhafa Glitnis í desember Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, Matt Hinds og Matthew Prest, ráðgjafar Glitnis, og Páll Eiríksson, starfsmaður slitastjórnar Glitnis. Unnið er að afnámi hafta. Einar Karl Haraldsson Einar Karl telur í skýrslu númer 54, dagsettri 6. mars í fyrra, að augljóst sé að nýr ESB-flokkur frá hægri sé í undirbúningi. Bent hafi verið á að af- hroð í sveitarstjórnarkosningum hafi leitt til skipta á stóli forsætis- ráðherra. Voru þá tæpir tveir mán- uðir í sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí. Vísar Einar Karl til vanga- veltna um að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, muni senn mynda ríkisstjórn með Bjartri framtíð og Samfylkingu. Einar Karl tekur þó fram að þingmenn telji þetta firru. Til upprifjunar spruttu deilur í febrúar í fyrravetur vegna þingsályktunartillögu um aftur- köllun ESB-umsóknarinnar. Var þá rætt um stjórnmálaaflið Viðreisn. Hafi tapað ESB-umræðunni Í skýrslu númer 52, dagsettri 16. mars 2014, skrifar Einar Karl að ríkisstjórnin hafi orðið undir í um- ræðunni um ESB-málið. Í skýrslu númer 61, dagsettri 16. júní 2014, kemur ESB enn og aftur við sögu hjá Einari Karli þegar hann vitnar í orðróm um að fulltrúar ESB hafi lýst því yfir við EFTA- dómstólinn að verðtrygging neyt- endalána á Íslandi stangist á við til- skipanir og reglugerðir ESB. „Sé það rétt gæti Ísland verið í djúpum skít,“ skrifar Einar Karl og getur þess að íslenska krónan sé óskipt- anleg [e. unconvertible]. Þá skrifar hann að lesendur sínir geti fagnað; Már Guðmundsson hyggist aftur sækja um embætti seðlabanka- stjóra. Hann útskýrir ekki hvers vegna. Hafði Einar Karl áður skrif- að í skýrslu númer 53, dagsettri 29. mars, að dómur EFTA-dómstólsins um verðtrygginguna gæti reynst „koss dauðans fyrir íslensku krón- una“. Sú hrakspá rættist ekki. Ný þriggja flokka stjórn til umræðu  Framsókn var sögð á leið úr stjórn Morgunblaðið/Eggert Á Laugarvatni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra handsala stjórnarsamstarf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.