Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Rauðage
rði 25 · 108 Rey
kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Verslunarkælar í miklu úrvali
• Hillukælar
• Tunnukælar
• Kæli- & frystikistur
• Afgreiðslukælar
• Kæli- & frystiskápar
• Hitaskápar ofl.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Pólitískur óstöðugleiki, viðvanings-
háttur stjórnvalda og völt staða
seðlabankastjóra eru meðal umfjöll-
unarefna Einars Karls Haraldssonar
almannatengils í skýrslum sem hann
ritar fyrir kröfuhafa föllnu bankanna
um þróun mála á
Íslandi.
Skýrslurnar,
eða fréttabréfin,
eru á einfaldri
ensku og er látið
ógert að laga mál-
far og málvillur.
Einar Karl vitnar
reglulega í for-
ystumenn
ríkisstjórnar-
innar og álits-
gjafa til að bregða upp mynd af þró-
un mála. Það er algengt stef að vinna
við afnám hafta gangi hægt og að
deilt sé um heppilegustu leiðirnar.
Skýrslurnar sem Morgunblaðið
hefur undir höndum eru frá 6. mars
2014 til 30. janúar á þessu ári.
Vitnað í heimildarmenn á þingi
Í þeirri fyrstu, sem er númer 54 og
dagsett 6. mars 2014, vitnar Einar
Karl í heimildarmenn á Alþingi.
„Miðað við það sem ég heyri úr
þinginu var ekki mikið að græða á
viðræðufundi sérfræðingahópsins
með fulltrúum þingflokkanna. Það
kom ekkert nýtt fram í greiningunni
en framsetning gagna var þó ef til
vill eitthvað frábrugðin. Hvað veldur
þessari tregðu við að setja hlutina á
borðið? Ástæðan er sögð sú að ríkis-
stjórnin óttist að með því að gera það
muni hún svipta hulunni af áætlun
sinni og taktík – eða skorti á þessu
tvennu, sé raunin sú að enn séu uppi
ólík sjónarmið innan ríkis-
stjórnarinnar um hvernig nálgast
eigi málið,“ skrifar Einar Karl en
hér er lauslega þýtt úr ensku.
Athygli vekur að í skýrslu númer
52, dagsettri 16. mars, skrifar Einar
Karl að Ísland hafi verið lítillækkað í
samningaviðræðum um makríl [e.
humiliation of Iceland], með því að
Ísland hafi verið undanskilið í við-
ræðum ESB, Noregs og Færeyja.
Málið vitni um „vaxandi einangrun
Íslands í alþjóðamálum“.
Í næstu skýrslu, númer 53, dag-
settri 29. mars, skrifar Einar Karl að
íslensk stjórnvöld séu ekki tilbúin til
aðgerða til afnáms hafta.
Í sömu skýrslu fjallar hann um
„sex messíasa“ í ráðgjafanefnd sem
skipuð var af Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra hinn 27.
nóvember 2013. Í skýrslu númer 55,
dagsettri 12. apríl 2014, skrifar hann
að heimalningar í nefndinni [e.
homegrown experts] séu þekktir
fylgismenn gjaldþrotaleiðar. Þeir
hafi séð um kynningu á niðurstöðum
hópsins. Sérfræðingar með meiri al-
þjóðlega reynslu hafi hins vegar guf-
að upp, að formanni hópsins, Sigur-
birni Þorkelssyni meðtöldum. Sá
hafi verið settur af [e. decapitated].
Með honum í hópnum voru Eiríkur
Svavarsson, Jón H. Egilsson, Jón B.
Jónsson, Ragnar Árnason og Reim-
ar Pétursson. Benedikt Árnason og
Benedikt Gíslason unnu með þeim.
Gagnrýnendur komnir í stjórn
Þá skrifar Einar Karl á sama stað
að höfundar nýs Fjármálastöðug-
leika Seðlabankans styðji ekki gjald-
þrotaleiðina. Því næst vitnar Einar
Karl í grein Jóhannesar Rúnars Jó-
hannessonar, hæstaréttarlögmanns
og starfsmanns skilanefndar Kaup-
þings, og aðvörunarorð hans um
gjaldþrotaleiðina. Það skorti á opin-
bera stefnu um framtíðareignarhald
Arion banka. „Hann hefur auðvitað á
réttu að standa að stjórnvöld og
Seðlabankinn fara í kringum þetta
mál eins og kettir í kringum heitan
graut,“ skrifar Einar Karl sem
kvaðst greina tækifæri í því að for-
sætisráðherra og flokkur hans hefðu
misst einokun sína, eða því sem
næst, á umræðu um skuldamál og til-
lögur um lausnir í skuldamálum. Það
hafi komið honum á óvart að skrif
Jóhannesar Rúnars skyldu ekki vera
gagnrýnd. Skýringin kunni að vera
sú að líklegir gagnrýnendur séu nú
uppteknir við að stjórna ríkinu.
Í sömu skýrslu skrifar Einar Karl
að óþreyju gæti meðal innlendra að-
ila. Ný snjóhengja sé að myndast af
krónum í eigu innlendra aðila á borð
við lífeyrissjóðina.
Í skýrslu númer 56, dagsettri 3.
maí 2014, skrifar Einar Karl að aug-
ljóst sé að Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri hafi misst vald til sjálf-
stæðra ákvarðana. Það sé almennt
álitið ólíklegt að hann bjóði sig fram
til 5 ára í viðbót. Sú spá var röng.
Á sama stað vitnar Einar Karl í
leiðara Kjarnans 1. maí í fyrra um að
samstaða sé meðal heimildarmanna
ritsins um að fara gjaldþrotaleiðina.
Svo skrifar hann að önnur mynd
komi fram þegar rætt sé við heimild-
armenn sem standa nærri ríkis-
stjórninni. Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra, sé
alfarið á móti gjaldþrotaleiðinni. Það
sama megi segja um hagfræðinga í
áðurnefndri ráðgjafanefnd.
Ríkisstjórnin geti splundrast
„Sumir innanbúðarmenn í ríkis-
stjórninni eru þeirrar skoðunar að
þrálæti varðandi gjaldþrotaleiðina
geti leitt til þess að ríkisstjórnin lið-
ist í sundur,“ skrifar Einar Karl.
Á sama stað segir af fundi Sig-
mundar Davíðs og Mark Rutte, for-
sætisráðherra Hollands, í Hollandi,
sem lítið hafi farið fyrir [e. silent
diplomacy]. Vekur sú greining at-
hygli því sagt var frá fundinum í fjöl-
miðlum.
Í skýrslu númer 60, dagsettri 7.
júní 2014, vitnar Einar Karl í ræðu
Bjarna Benediktssonar á fundi hjá
Fjármálaeftirlitinu. Þar hafi komið
fram að nefnd um afnám hafta yrði
stofnuð og að erlendir sérfræðingar
yrðu fengnir til ráðgjafar. Skrifar
Einar Karl að líta megi á þá „miklu
breytingu“ á ferlinu sem Bjarni hafi
boðað „sem aðeins enn annað skref
hjá ríkisstjórninni í þeirri leikáætlun
hennar að fresta ákvörðunum þar til
kröfuhafar gefa eftir“.
Hálfum mánuði síðar, í skýrslu 62,
dagsettri 21. júní 2014, skrifar Einar
Karl að fyrstu skref Bjarna í hafta-
ferlinu hafi verið „viðvaningsleg“.
Í skýrslu númer 63, dagsettri 24.
júlí 2014, skrifar Einar Karl að „eftir
að hafa varið ári í að gæla við heima-
tilbúnar lausnir hafi íslensk stjórn-
völd ráðið hóp alþjóðlegra ráðgjafa
til að aðstoða við ferlið að lyfta fjár-
magnshöftum“. Umgjörð ríkis-
stjórnarinnar líkist orðið mjög
skipulagningu ráðgjafar við kröfu-
hafa.
Í síðustu skýrslunni sem Morgun-
blaðið hefur undir höndum, sem er
númer 74 og dagsett 30. janúar, seg-
ir Einar Karl það skoðun sína að
uppsetning starfshóps um afnám
hafta, m.a. með nýju fólki, bendi til
að verið sé að undirbúa „hið eina
skot sem Íslandi muni leyfast í ein-
víginu framundan“. Er þar vitnað til
myndlíkingar seðlabankastjóra.
Fréttaritari kröfuhafa á Íslandi
Einar Karl Haraldsson almannatengill vitnar í heimildarmenn á Alþingi í einu fréttabréfa sinna
Skrifar að fjármálaráðherra hafi haldið viðvaningslega á haftaferlinu í upphafi þeirrar vinnu
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur kröfuhafa Glitnis í desember Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, Matt Hinds og
Matthew Prest, ráðgjafar Glitnis, og Páll Eiríksson, starfsmaður slitastjórnar Glitnis. Unnið er að afnámi hafta.
Einar Karl
Haraldsson
Einar Karl telur í skýrslu númer 54,
dagsettri 6. mars í fyrra, að augljóst
sé að nýr ESB-flokkur frá hægri sé í
undirbúningi. Bent hafi verið á að af-
hroð í sveitarstjórnarkosningum
hafi leitt til skipta á stóli forsætis-
ráðherra. Voru þá tæpir tveir mán-
uðir í sveitarstjórnarkosningarnar
31. maí. Vísar Einar Karl til vanga-
veltna um að Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, muni
senn mynda ríkisstjórn með Bjartri
framtíð og Samfylkingu. Einar Karl
tekur þó fram að þingmenn telji
þetta firru. Til upprifjunar spruttu
deilur í febrúar í fyrravetur vegna
þingsályktunartillögu um aftur-
köllun ESB-umsóknarinnar. Var þá
rætt um stjórnmálaaflið Viðreisn.
Hafi tapað ESB-umræðunni
Í skýrslu númer 52, dagsettri 16.
mars 2014, skrifar Einar Karl að
ríkisstjórnin hafi orðið undir í um-
ræðunni um ESB-málið.
Í skýrslu númer 61, dagsettri 16.
júní 2014, kemur ESB enn og aftur
við sögu hjá Einari Karli þegar hann
vitnar í orðróm um að fulltrúar ESB
hafi lýst því yfir við EFTA-
dómstólinn að verðtrygging neyt-
endalána á Íslandi stangist á við til-
skipanir og reglugerðir ESB. „Sé
það rétt gæti Ísland verið í djúpum
skít,“ skrifar Einar Karl og getur
þess að íslenska krónan sé óskipt-
anleg [e. unconvertible]. Þá skrifar
hann að lesendur sínir geti fagnað;
Már Guðmundsson hyggist aftur
sækja um embætti seðlabanka-
stjóra. Hann útskýrir ekki hvers
vegna. Hafði Einar Karl áður skrif-
að í skýrslu númer 53, dagsettri 29.
mars, að dómur EFTA-dómstólsins
um verðtrygginguna gæti reynst
„koss dauðans fyrir íslensku krón-
una“. Sú hrakspá rættist ekki.
Ný þriggja flokka
stjórn til umræðu
Framsókn var sögð á leið úr stjórn
Morgunblaðið/Eggert
Á Laugarvatni Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra og
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra handsala stjórnarsamstarf.