Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
„Ekki rætt við okkur af neinu viti“
Tíu þúsund félagsmenn SGS leggja niður störf á hádegi í dag Öll almenn fyrirtæki á landsbyggð-
inni verða vör við verkfallsaðgerðir Formaður sambandsins segir ekkert þokast í samningaviðræðum
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Fyrsta tólf klukkustunda verkfalls-
hrina Starfsgreinasambandsins
(SGS) hefst á hádegi í dag. Þá munu
rúmlega tíu þúsund félagsmenn
leggja niður störf í um tvö þúsund fyr-
irtækjum sem eru innan Samtaka at-
vinnulífsins. Verkfallsaðgerðirnar ná
ekki til höfuðborgarsvæðisins en
munu lama landsbyggðina, að sögn
Björns Snæbjörnssonar, formanns
SGS. „Þetta mun hafa mjög víðtæk
áhrif og snerta flest fyrirtæki á lands-
byggðinni,“ segir hann.
Félagsmenn í þeim sextán verka-
lýðsfélögum sem fara í verkfall starfa
í flestum atvinnugreinum á lands-
byggðinni, m.a. fiskvinnslu, kjöt-
vinnslu, í sláturhúsum, ferðaþjónustu,
vöru- og fólksflutningum og ræsting-
um.
Ferðamenn fastir í bænum
Þá munu einnig fjölmargar ferðir
Strætó á landsbyggðinni falla niður
auk þess sem stór hópur erlendra
ferðamanna, sem átti pantaðar ferðir
út á land í dag, situr fastur í bænum.
Þá verður engin gjaldtaka í Hvalfjarð-
argöngunum og olíudreifing leggst af.
„Þetta er mjög alvarlegt,“ segir
Björn. „En við værum ekki að fara út í
þessar verkfallsaðgerðir nema af því
við neyðumst til þess. Það er ekki rætt
við okkur af neinu viti,“ bætir hann
við, en næsti samningafundur samn-
inganefnda SGS og Samtaka atvinnu-
lífsins hefur verið boðaður klukkan tíu
í dag, áður en verkföllin skella á.
Björn segist hins vegar alls ekki
bjartsýnn, og segir ekkert munu ger-
ast á meðan viðsemjendur leggja ekk-
ert fram.
Næstu fyrirhuguðu verkfallsað-
gerðir verða í tvo sólarhringa. 6. og 7.
maí og svo aftur 19. og 20. maí ef
samningar hafa ekki náðst. Þá verður
ótímabundið verkfall 26. maí ef ekki
verður samið fyrir þann tíma.
Verkfall Bandalags háskólamanna
(BHM) hefur nú staðið yfir í tíu daga,
og lítið þokast í viðræðum. Félagið
fundaði með samninganefnd ríkisins í
gær, þar sem engin lending náðist.
Páll Halldórsson, fráfarandi formaður
BHM segir ríkið standa fast á 3,5%
hækkun, en segir að ekki verði samið
á þeim grundvelli. Þá sagði Gunnar
Björnsson, formaður samninganefnd-
ar ríkisins, í samtali við mbl.is í gær að
kröfugerð BHM væri enn langt frá
einhverju sem hægt væri að verða við.
Morgunblaðið/RAX
Alvarlegt Verkföll SGS munu hafa
mikil áhrif á ferðaþjónustuna.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kjaraviðræður á almenna vinnu-
markaðinum hafa enn engum ár-
angri skilað. Á
hádegi í dag hefst
tólf klukkustunda
allsherjarverkfall
rúmlega 10 þús-
und launamanna í
16 verkalýðs-
félögum Starfs-
greinasambands-
ins (SGS).
Í gær funduðu
samninganefndir
SA og iðnaðar-
mannahópanna hjá sáttasemjara en
félagsmenn þeirra eru sem stendur
ekki á leið í verkfall. SGS og SA
munu svo hittast á sáttafundi fyrir
hádegi í dag áður en verkfallið skell-
ur á.
Nær ekki til starfsmanna í sam-
bærilegum störfum að mati SA
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir kröfugerð
verkalýðsfélaganna af þeirri stærð-
argráðu að ekki sé hægt að verða við
þeim kröfum án þess að af því hljót-
ist mikið efnahagslegt tjón. Mikil-
vægt sé að aðilar taki höndum saman
og finni samræmda lausn bæði á al-
menna og opinbera vinnumarkaðin-
um og nálgist verkefni í sameiningu.
,,Það hvernig verkalýðshreyfingin
kemur að þessari lotu, þ.e.a.s. hvert
samband fyrir sig, gerir að verkum
að það hefur ekki verið hægt að finna
neina lausn sem gengur fyrir vinnu-
markaðinn. Á þessu hafa viðræðurn-
ar strandað öðru fremur,“ segir
hann.
SA vísa ábyrgðinni á þessari stöðu
á verkalýðshreyfinguna, sem þau
segja að hafi ekki treyst sér í sam-
ræmda nálgun kjarasamninga.
„Við þessar kringumstæður er
nauðsynlegt að menn nálgist þetta
mjög samræmt, þar með talinn op-
inberi geirinn. Það er mikill ótti inn-
an verkalýðshreyfingarinanr við að
aðrir hópar brjótist mögulega í gegn
með meiri launahækkanir.“
Spurður hvort einhver vilji sé
meðal viðsemjendanna til að koma
sameiginlega að borðinu segist Þor-
steinn telja að það sé vaxandi stuðn-
ingur við það og skilningur innan
verkalýðshreyfingarinnar á að öðru
vísi verði ekki hægt að leiða fram
lausn í þeirri stöðu sem upp er kom-
in. ,,En það hefur ekki enn náðst að
mynda slíkt samstarf og óvíst hvort
eða hvenær það tekst en að okkar
mati verður ekki öðru vísi hægt að
leysa þessar deilur,“ segir hann
Spurður hvort ágreinings- eða
vafamál hafi komið upp um fram-
kvæmd verkfallsaðgerða SGS-félag-
anna segir Þorsteinn að slík mál geti
alltaf komið upp. ,,Það er ljóst að
verkalýðsfélögin mörg hver eru að
reyna að túlka áhrif aðgerða víðar en
samræmist lögum og reglum þar að
lútandi. Einhverjir tilburðir hafa
verið til þess að ætla að verkfallið nái
til starfsmanna sem sinna sambæri-
legum störfum en eru ekki innan
raða þeirra félaga sem eru í verkfalli.
Við höfum komið þeim ábendingum
á framfæri að slíkt fái ekki staðist.“
Ekki leyst án samflots
Enginn árangur af viðræðum á almenna markaðinum Fyrstu verkfallsað-
gerðir SGS byrja í dag SA vill að allir aðilar komi sameiginlega að borðinu
Þorsteinn
Víglundsson
Hvert stéttarfélag um sig innan SGS
fer með verkfallsvörslu. Björn segir
fólk ákveðið og standa þétt saman, og
því eigi hann ekki von á því að mikið
verði um verk-
fallsbrot.
Eigendum fyr-
irtækja er heimilt
að ganga í störf
þeirra starfs-
manna sem eru í
verkfalli. Friðrik
Pálsson, hótel-
haldari Hótel
Rangár, mun
gera þetta en
hann segir rúman
helming síns starfsfólks leggja niður
störf. Á venjulegum degi eru í kring-
um þrjátíu manns í vinnu en um 17
munu leggja niður störf í dag. „Miðað
við þann undirbúning sem við höfum
verið með á ég von á því að við getum
haldið uppi fullri þjónustu með því að
ég gangi í verkefnin með þeim sem á
annað borð mega vinna,“ segir hann.
Í ræstingum má yfirþernan vinna, en
Friðrik mun hjálpa henni svo hægt
verði að gera herbergi gesta tilbúin
áður en þeir mæta. „Það er ekki upp-
bókað hjá okkur í dag svo við komum
til með að geta sinnt þessu án þess að
það hafi áhrif á gestina,“ segir hann.
Friðrik segir þó að tveggja sólar-
hringa verkfall myndi hafa gríðarleg
áhrif á starfsemina. „Við erum auð-
vitað að reyna að undirbúa okkur og
vona að til þess muni ekki koma. Það
yrði gríðarlega alvarlegt mál og
myndi senda slæm skilaboð út í
markaðinn.“
Eigandi má
ganga í störf
starfsmanna
Friðrik
Pálsson.
Lögmálinu samkvæmt vorar alltaf fyrst við ströndina og í flugi vestur á
Ísafjörð nú í líðandi viku sást vel að veturinn er að víkja. Þegar flogið var
yfir Reykhólasveit blöstu við firðirnir á sunnanveðum Vestfjörðum, sem
ganga inn úr Breiðafirði. Vegurinn um þessar slóðir er nú orðinn góður og
greiðfær, en veturinn hefur þó verið erfiður og nokkuð um samgöngu-
truflanir, að sögn Sæmundar Kristjánssonar, vegaverkstjóra í Búðardal.
Sérstaklega hafa Ódrjúgs- og Klettshálsar verið farartálmar, til dæmis fyr-
ir stærri bíla, en miklir flutningar eru á þessari leið, meðal annars á afurð-
um fiskeldisfyrirtækja.
Neðst á þessari mynd sést Skálmarfjörður og handan Fellsmúla er Vatt-
arfjörður vestan eiðisins sem tengir Skálmarnesfjall við fastalandið. Svo
eru Kerlingafjörður og Mjóifjörður, en nú er unnið að þverun þeirra
beggja. Næst er svo Kjálfafjörður – og yst Vatnsfjörður og úti í fjarskanum
er Stálfjallið sem þar lokar strandlengjunni miklu. sbs@mbl.is
Vetur að víkja á sunnanverðum Vestfjörðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Alls hefur 36 kjaradeilum á al-
mennum og opinberum vinnu-
markaði verið vísað til Rík-
issáttasemjara. Í gær var þremur
málum vísað til sáttameðferðar.
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna vísaði kjaradeilu við ríkið
vegna félagsmanna hjá Land-
helgisgæslunni til sáttasemjara
og bæði VR og Landssamtök
verslunarmanna og Félag at-
vinnurekenda vísuðu yfirstand-
andi kjaradeilum til embættis-
ins. Vinnustöðvun stendur yfir
hjá 10 BHM-félögum, Í dag hefst
12 tíma verkfall SGS-félaga. AFL
á Austurlandi frestaði boðuðu
verkfalli hjá fyrirtækjum á lóð Al-
coa til 4. maí er samkomulag
náðist um gerð fyrirtækjasamn-
inga. Takist ekki að ljúka þeim
hefst verkfall á mánudaginn.
36 deilur til
sáttasemjara
DEILUMÁLUM FJÖLGAR