Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 6
Þorbjörg Ólöf Jensdóttir, formaður
blakdeildar Þróttar, Neskaupstað,
segir að illa hefði getað farið þegar
reynt var að tjalda stærsta uppblásna
íþróttahúsinu af þremur sem til stóð
að tjalda á gervigrasvellinum í Nes-
kaupstað í fyrrakvöld.
Húsið, sem átti að hýsa þrjá blak-
velli af þeim tíu sem verða á Öld-
ungamótinu í blaki sem hefst núna í
morgunsárið, fauk með þeim afleið-
ingum að hluti þess rifnaði.
„Það er verið að tjalda tveimur
tjöldum í Fjarðabyggðarhöllinni á
Reyðarfirði,“ sagði Þorbjörg í gær-
kvöldi þegar Morgunblaðið náði tali
af henni. Hún segir það alltaf hafa
verið „plan B“ að tjalda húsunum í
Fjarðabyggðarhöllinni á Fáskrúðs-
firði ef illa viðraði.
Tæplega þúsund blakarar taka
þátt í mótinu í ár og segist Þorbjörg
ótrúlega þakklát öllum þeim sem
hafa komið að því að færa hluta
mótsins yfir til Fáskrúðsfjarðar.
Rútuferðir verða á milli keppnisstaða
þar sem þrír af tíu völlum verða
áfram á Neskaupstað. ash@mbl.is
Varaáætlun í gang í Neskaupstað
Ljósmynd/Hlynur Sveinsson
Óheppilegt Uppblásna íþróttahúsið
sem átti að hýsa þrjá blakvelli fauk.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikill snjór er á sunnanverðu há-
lendinu en minni á því norðanverðu.
Búið er að loka nokkrum leiðum
vegna aurbleytu og fjölgar þeim
væntanlega á næstunni. Óvíst er
hvenær hálendisvegirnir verða opn-
aðir.
„Ég held að það sé mjög mikill
snjór á fjöllum,“ sagði Bjarni Jón
Finnsson, yfirverkstjóri hjá Vega-
gerðinni í Vík í Mýrdal. Undir hann
heyra leiðir eins og Dómadalsleið
og Landmannalaugar, Fjallabaks-
leiðir nyrðri og syðri og Sprengi-
sandsleið í Nýjadal. Vélsleðamenn
höfðu sagt Bjarna Jóni að merki
væru öll meira og minna á kafi í
snjó. Hann taldi vel geta farið svo
að hálendisvegirnir yrðu opnaðir í
seinna lagi þetta sumarið.
Búið er að setja keðju fyrir leið-
ina inn í Laka en þar var farið að
gæta aurbleytu á köflum. Leiðin í
Þórsmörk er opin. Í gær átti að
ljúka við að laga vöðin á leiðinni.
Þegar kemur úrkoma verður heflað.
Gæti dregist að vegir opnuðust
„Við vitum að það er mikill snjór
en við erum ekkert farnir að huga
að opnun,“ sagði Páll Halldórsson,
rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á
Selfossi. Þeir eru með Kjalveg og
Skjaldbreiðarveg milli Kaldadals og
Kjalvegar.
Páll sagði erfitt að spá um hve-
nær hálendisvegirnir opnuðust.
Mikið gæti tekið upp á stuttum
tíma kæmi rok og góður hiti. Svo
gæti það líka dregist fram í júlí að
hægt yrði að opna. Páll kvaðst hafa
heyrt að meiri snjór væri nú eins og
í Kerlingarfjöllum og víðar en verið
hefur undanfarin ár. Ekki er langt
síðan snjóaði á þessum slóðum og
frost hefur verið alla daga undan-
farið. Veginum að Stöng í Þjórs-
árdal var lokað nýlega vegna aur-
bleytu.
Gunnar Bóasson er yfirverkstjóri
hjá Vegagerðinni á Húsavík. Undir
hann heyra Öskjuleið, Dyngjufjalla-
leið og Sprengisandsleið suður í
Nýjadal. Hann sagði að ekki væri
mikill snjór á hálendinu að norðan-
verðu. Vélsleðamenn höfðu sagt
honum að meiri snjór væri að
sunnanverðu og svo í sveig í átt að
Dyngjufjöllum norðan við Vatna-
jökul. Mun minni snjór væri á
Öskjuleið og þar í kring en var bæði
í fyrra og hitteðfyrra.
Gunnar taldi líklegt að hálendis-
leiðum yrði lokað í dag eða næstu
daga vegna aurbleytu. Orðið væri
svo þítt á melum að færu menn út
af slóð væru þeir sokknir um leið.
„Við höfum reynt að opna í Öskju
í kringum 20. júní eða á því tíma-
bili,“ sagði Gunnar.
„Öxi er ófær og við erum að bíða
eftir betra veðri,“ sagði Stefán
Gunnarsson hjá SG vélum ehf. á
Djúpavogi. Hann sér um snjó-
mokstur frá Djúpavogi til Hafnar
og Breiðdalsvíkur og eins á Öxi.
Blyndbylur og mikill vetur
Vegurinn yfir Öxi var opnaður 16.
apríl og var opinn í rúma viku þeg-
ar aftur gerði áhlaup og leiðin lok-
aðist. Blindbylur var þar um síðustu
helgi og mikill vetur. Stefán sagði í
gær að veðurspáin væri þannig að
staðan yrði tekin eftir helgina með
að opna Öxi á ný. Hann hefur unnið
að snjómokstri á svæðinu frá 1982.
Veturnir á árum áður voru miklu
verri en nú að hans mati.
„Það er enginn snjór orðið hér
miðað við það sem var upp úr 1990
og í kringum það. Þá var miklu
meiri snjór í byggð og alls staðar.
Þetta er orðið miklu snjóléttara,“
sagði Stefán. „Síðustu tíu árin hefur
varla komið snjóflóð í Hvalnes- og
Þvottárskriðum. Það var mjög al-
gengt á árum áður. Það er orðið
öðruvísi tíðarfar og mun snjólétt-
ara.“
Fannfergi á hálendinu sunnanverðu
Óvíst hvenær hægt verður að opna hálendisleiðirnar Búið að loka nokkrum leiðum vegna aur-
bleytu og fleiri að bætast við í þann flokk Vegurinn um Öxi lokaðist aftur í áhlaupinu um daginn
Ljósmynd/Guðmundur Gunnlaugsson
Öxi Myndin var tekin þegar opnað var yfir Öxi, fjallveginn milli Berufjarðar og Skriðdals, um miðjan mánuðinn. Svo kom áhlaup og þá lokaðist leiðin aftur.
„Við höfum þegar opnað efri hæðina
og stefnum að því að opna með húll-
umhæ á laugardag,“ segir Filipus
Th. Ólafsson, verslunarstjóri Ice-
wear magasín, en Icewear hefur lagt
fyrrverandi bankahúsnæðið í Aust-
urstræti 5 undir verslun sem verður
starfrækt á tveimur hæðum.
„Við höfum gefið gömlu banka-
hvelfingunni nafnið Menningar- og
safnarahvelfingin. Þar verðum við
með bækur, geisladiska, dvd-myndir
og póstkort ásamt ýmsum safnmun-
um á borð við mynt, seðla og frí-
merki,“ segir Filipus.
Hann segir verslunina vera hugs-
aða fyrir erlenda ferðamenn jafnt
sem Íslendinga. Á neðri hæðinni
verður íslenskur markaður þar sem
viðskiptavinum býðst að kaupa mat-
og gjafavöru beint frá býli. „Þar
verður hægt að fá sultur, sölt, sósur
og mauk beint frá býli,“ segir Filipus
og bætir við að þar verði einnig til
sýnis fyrsti traktorinn sem kom í
Borgarfjörð.
Húsið er friðað og var hönn-
unarferli þessa tæplega 600 fer-
metra verslunarhúsnæðis unnið í
samstarfi við Minjastofnun, að sögn
Filipusar, og verður þar mikil
áhersla lögð á íslenskar afurðir. Ís-
lensk tónlist verður spiluð og fáan-
leg í versluninni ásamt listaverkum,
keramík og skúlptúrum eftir ís-
lenska listamenn. ash@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Íslenskt Boðið verður upp á „beint frá býli“ á neðri hæð verslunarinnar.
Bankahvelfingin
hýsir nú safnmuni
Fyrsti traktor Borgfirðinga til sýnis
Skattskrár vegna álagningar 2014 og
virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins
2013 verða lagðar fram 30. apríl 2015
Skrárnar, sem sýna álagða skatta og gjöld á gjaldendur í hverju
sveitarfélagi, eru lagðar fram á viðkomandi starfsstöðvum
ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum dagana
30. apríl til og með 15. maí 2015.
Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr.
laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988.
30. apríl 2015