Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Vinstristjórnin, sem sat áframlöngu eftir að hafa misst
starfhæfan meirihluta á þingi,
rauk í að koma
þjóðinni inn í ESB,
án þess að spyrja
hana. Hún felldi
allar tillögur um
þjóðaratkvæði um
þetta örlagaríka
mál. Kannski var
hún þegar gengin
inn í björgin í
Brussel og farin að hugsa eins og
þar er gert. Styrmir Gunnarsson
skrifar í gær:
Haustið 2011 tilkynnti Pap-andreou, þáverandi forsætis-
ráðherra Grikklands, að hann
mundi leggja samkomulag við er-
lenda lánardrottna Grikkja undir
þjóðaratkvæði í Grikklandi.
Nokkrum vikum seinna höfðu for-
ráðamenn ESB þvingað hann til
að falla frá því.
Í gær gaf Alexis Tsipras, for-sætisráðherra Grikkja til
kynna að hann mundi hugsanlega
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um
samkomulag við ESB/SE/AGS ef
hann teldi það falla utan þess um-
boðs sem SYRIZA fékk í síðustu
þingkosningum.
Umsvifalaust bárust þær fréttirað Jeroen Djisselbloem, for-
maður Evruhópsins teldi að slíkt
mundi „skapa mikinn pólitískan
óróa“ og: „Ég held við höfum ekki
tíma til þess“. Frá þessu segir í
gríska vefmiðlinum ekathimerini.
Hvað ætli valdi ótta ESB viðþjóðaratkvæðagreiðslur?“
Hitt er svo annað mál, að stuðn-
ingsmenn fyrrnefndrar vinstri-
stjórnar krefjast þjóðaratkvæðis
um það, hvort umsóknin þeirra að
ESB, sem dó í árslok 2012, sé
örugglega dauð. Það má víðar
skoða skrítið en í kýrhausnum.
Styrmir
Gunnarsson
Þola ekki
þjóðaratkvæði
STAKSTEINAR
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
Aðalfundur CCP hf., kt. 450697-3469, verður haldinn 15. maí 2015 á skrifstofu
félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 16:00.
D A G S K R Á :
Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins, þar á meðal:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um hag félagsins og rekstur á liðnu starfsári
2. Ársreikningur félagsins fyrir tímabilið sem lauk 31. desember 2014
verður lagður fram til staðfestingar
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps félagsins fyrir sama tímabil
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins
6. Kosning stjórnar
7. Kosning endurskoðenda
8. Önnur mál löglega færð til fundarins
Að þessu sinni gerir félagið ekki ráð fyrir breytingartillögum á
samþykktum félagsins.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig
hafa gefið kost á sér.
Dagskrá, ársreikningur félagsins og aðrar endanlegar tillögur munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis hluthöfum til sýnis frá og
með 8. maí 2015, 7 dögum fyrir aðalfundinn.
Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.
Reykjavík 30. apríl 2015
Stjórn CCP hf.
Veður víða um heim 29.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 heiðskírt
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 1 snjóél
Nuuk 0 snjókoma
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 7 léttskýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 12 léttskýjað
París 15 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 13 heiðskírt
Berlín 12 heiðskírt
Vín 15 skýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 21 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 18 skýjað
Montreal 13 skýjað
New York 20 skýjað
Chicago 15 léttskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:04 21:47
ÍSAFJÖRÐUR 4:53 22:07
SIGLUFJÖRÐUR 4:36 21:51
DJÚPIVOGUR 4:30 21:20
Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarð-
arbæjar er jákvæð um 76 milljónir
króna á ársreikningi sveitarfé-
lagsins fyrir árið 2014 en fjárhags-
áætlun hafði gert ráð fyrir 619 millj-
óna króna rekstrarafgangi. Þar
munar um 543 milljónum króna og
niðurstaðan ekki í samræmi við að-
lögunaráætlun sem gerð var með
samningi við eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga.
Í fréttatilkynningu sem sveitarfé-
lagið sendi frá sér í gær í kjölfar
fundar bæjarstjórnar, þar sem árs-
reikningurinn var samþykktur, seg-
ir að fjárhagsstaðan sé ennþá erfið
og mikilvægt sé að minnka útgjöld
og greiða niður skuldir.
Mest munar um hækkun lífeyris-
skuldbindinga sveitarfélagsins, um
928 milljónir króna, sem er 515 millj-
ónir umfram áætlun og var rekstr-
arniðurstaða A-hluta neikvæð um
492 milljónir króna samanborið við
fjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir
jákvæðri niðurstöðu að upphæð 216
milljónir króna.
Í tilkynningu segir að rekstrarnið-
urstaðan geti haft þau áhrif að vextir
hækki tímabundið þar sem veltufé
frá rekstri nær ekki þeim viðmið-
unum sem sett voru sem skilyrði í
samningum um endurfjármögnun
erlendra lána.
Tekjur Hafnarfjarðarbæjar 2014
námu 19.648 milljónum króna.
Morgunblaðið/Ómar
Rekstur Ársreikningur Hafnar-
fjarðar var samþykktur í gær.
543 m.kr.
minni af-
gangur
Lífeyrisskuldbind-
ingar hækkuðu mjög