Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Full búð af
glæsilegum
sundfatnaði
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Sumaryfirhafnir
í úrvali
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Fyrsta bikarmótið í fjallahjólreið-
um fer fram í kvöld við Rauðavatn
og við Morgunblaðshúsið. Mótið er
haldið af Hjólreiðafélagi Reykja-
víkur í samstarfi við Morgunblaðið.
Keppt verður á nýrri braut sem
byggist á gömlum grunni sem kall-
ast nú Morgunblaðshringurinn
enda eru aðstæður til fjallahjól-
reiða í umhverfi við Morgunblaðið
frábærar með fjölbreyttu og krefj-
andi undirlagi – sem reynir bæði á
hjólreiðamanninn og hjólið sjálft.
Allir bestu hjólreiðamenn og -kon-
ur landsins hafa skráð sig til leiks
en um 50 keppendur hafa skráð
sig og má reikna með skemmti-
legri baráttu í fyrstu keppni sum-
arins.
Keppendum fjölgar
Þegar keppnin var haldin fyrst
voru 10 keppendur skráðir og hét
keppninn þá Rauðavatn Fjallahjól.
Síðan hefur orðið algjör sprengja í
fjallahjólreiðum landsins og hinum
venjulega hjólreiðamanni fjölgar
ört auk þess sem keppendum fjölg-
ar ár frá ári.
Þá eru aðstæður fyrir áhorf-
endur mjög góðar við Morgun-
blaðshúsið fyrir mótið. Morgun-
blaðshringurinn sem keppt er á er
um 6,7 kílómetra langur og þurfa
keppendur að glíma við krefjandi
aðstæður.
Karlar hjóla þrjá hringi en kon-
ur, b-hópur karla og unglingar tvo
hringi.
Í lok keppni verður boðið upp á
súpu og brauð í Morgunblaðshús-
inu í boði blaðsins.
Í bakgarði Morgunblaðsins
Aðstöðuleysi hefur háð keppn-
inni undanfarin ár en með stuðn-
ingi Morgunblaðsins er komin að-
staða fyrir þátttakendur og
áhorfendur.
„Þetta er fyrsta mótið í ár af
fjórum í keppninni um Íslandsbik-
arinn. Mótið er nánast í bakgarði
Morgunblaðsins og ætli brautin
liggi ekki um 40-50 metra frá
Morgunblaðshúsinu,“ segir Bjarni
Már Gylfason hjá Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur, sem vonast til að sjá
sem flesta horfa á hjólreiðagarpa á
fullri ferð um Morgunblaðshring-
inn. Keppnin hefst klukkan 19:00
og verða allir keppendur komnir í
mark um 90 mínútum síðar.
Ljósmynd/Georg Vilhjálmsson
Á fullri ferð Konur jafnt sem karlar taka þátt í Morgunblaðshringnum en í
fyrsta sinn er komin góð aðstaða fyrir áhorfendur til að fylgjast með.
Ný braut á
gömlum grunni
Á fljúgandi ferð með Morgunblaðinu
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/