Morgunblaðið - 30.04.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Stelpurnar voru með túberaðhár, oftast í hvítum nælon-blússum og stuttum pils-um,“ rifjar Óttar Felix
Hauksson upp. Í huganum er hann
staddur á skólaballi frammi í sal í
Laugalækjarskóla snemma á sjö-
unda áratugnum. Hann er þrettán
ára gamall í hvítri skyrtu, svörtum
buxum og með svart lakkrísbindi
eins og þeir flestir skólafélagarnir.
„Mestu töffararnir mættu í svörtum
leðurvestum,“ segir hann og heldur
áfram: „Yfirleitt voru tveir eða þrír
kennarar á vaktinni og gættu þess að
allt færi siðsamlega fram. Sumir
vönguðu í rólegu lögunum, en vanga-
dansinn var nokkurs konar yfirlýs-
ing um að nú væri viðkomandi „á
föstu“,“ segir Óttar Felix dreyminn á
svip.
Honum og skólabræðrum hans
og -systrum fannst svo gaman á
skólaböllunum í Laugalækjarskóla í
gamla daga að í kvöld ætla þau að slá
upp einu slíku á Kringlukránni og
dansa fram á nótt við undirleik stór-
hljómsveitarinnar Gullkistunnar, en
í sveitinni er einmitt einn fulltrúi
skólans, viðmælandinn Óttar Felix
Hauksson, auk þeirra Gunnars Þórð-
arsonar úr Hljómum, Ásgeiri Ósk-
arssyni Stuðmanni og Jóni Ólafssyni
úr Pelican.
Fyrsti kossinn og
Bláu augun þín
„Við munum vitaskuld rifja upp
gamla takta og spila vinsælustu tón-
listina frá árinu 1965. Ticket to Ride
með Bítlunum var á toppnum og
einnig lögin Fyrsti kossinn og Bláu
augun þín með Hljómum svo aðeins
nokkur lög séu nefnd.“
Skemmtunin annað kvöld verð-
ur þó að mörgu leyti með öðru sniði
en skólaböllin forðum og ef að líkum
lætur eilítið settlegri. Þá var til
dæmis hvorki myndasýning né boðið
upp á léttan kvöldverð eins og núna:
„Vel útilátna, ítalska, kremaða kjöt-
súpu með brauði og víni,“ upplýsir
Óttar Felix og kveðst hlakka mikið
til að rifja upp gömul kynni og kom-
ast að því hvað drifið hafi á daga
sinna gömlu skólafélaga frá því leiðir
skildi. Hann segir að því miður hafi
hópurinn sem heild ekki haldið nægi-
legu sambandi, en nú sé kærkomið
tækifæri til að styrkja tengslin.
Með Óttari Felixi í sama bekk
alveg frá sjö ára bekk í Laugarnes-
skóla upp í gagnfræðadeild Lauga-
lækjarskóla, samfellt í átta ár, voru
nokkrir strákar sem mynduðu þétt-
an kjarna. Hann nefnir Pjetur
Maack, Halldór Ármann Sigurðsson,
Guðjón Magnússon, Óla Hilmar
Jónsson, Stefán Karlsson, Guðmann
Ingjaldsson, Sigmar Ármannsson,
Örn Gústafsson og Egil Stephensen.
„Annars held ég að stelpurnar
hafi haldið miklu betur hópinn en við
strákarnir. Ég kíki þó stundum í
veiði hjá Pjetri vini mínum Maack og
fylgist með nokkrum á fésbókinni, en
það er ekki oft sem maður rekst á
gömlu skólafélagana.“
Unglingahljómsveitin Pops
Ekki kemur á óvart að Óttar
Felix telji upp stráka í sínum nánasta
vinahópi þegar hann er spurður
hverjum hafi mest kveðið að í skól-
anum í gamla daga. „Pjetur Maack
bar af, hann var svo félagslyndur og
skemmtilegur. Stefán og Guðmann
voru fyrstir til að spila með alvöru
bandi og Óli Hilmar litaði sannarlega
tilveruna …“ og Óttar Felix heldur
tölunni áfram.
Sjálfur var hann í tengslum við
sinn gamla skóla eftir að hann hvarf
á braut sem nemandi. Hann gekk
nefnilega til liðs við hljómsveitina
Pops þar sem fyrir voru m.a. Pétur
heitinn Kristjánssson og Ólafur Sig-
urðsson, fyrrverandi nemendur við
skólann. Hljómsveitin spilaði á skóla-
böllum Laugalækjarskóla í mörg ár.
Þótt Óttar Felix hafi kvartað
svolítið yfir að hópurinn sem útskrif-
aðist 1965 úr Laugalækjarskóla hafi
ekki haldið hópinn sem skyldi, kem-
ur upp úr dúrnum að árgangurinn
kom saman fyrir tveimur árum. „Þá
héldum við upp á að hálf öld var liðin
síðan við lukum barnaskólaprófi, eins
og lokaprófið í tólf ára bekk var kall-
Túberingar, töffarar
og tilfinningar
Hálf öld er síðan fyrsti árgangurinn, hátt í eitt hundrað unglingar, útskrifaðist úr
Laugalækjarskóla með unglingapróf, sem þá var lögbundin grunnmenntun. Þeir
ætla að fagna tímamótunum með skólaballi á Kringlukránni annað kvöld.
Dansæfing 1963 Í gamla daga voru skólaböllin oft kölluð dansæfingar.
Morgunblaðið/Golli
Popparinn Óttar Felix verður fulltrúi Laugalækjarskóla í hljómsveitinni
Gullkistunni, sem ætlar að leika fyrir dansi á skólaballinu annað kvöld.
Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn
stendur fyrir svokölluðu Intersport-
hlaupi sem þeir kalla „Eins og vind-
urinn“ og verður það á Selfossi á
morgun, föstudag, og hefst kl. 13.
Þetta er 10 km hlaup og verður
hlaupið um sléttlendi Flóans og hefur
brautin verið kölluð sú hraðasta á
landinu. Þetta er því tilvalið tækifæri
fyrir þá sem vilja bæta sig í 10 km
hlaupi.
Hlaupaleiðin er frá Intersport
[BYKO] á Selfossi, hlaupið um Lar-
senstræti og Gaulverjabæjarveg.
Hlaupið hefst eða endar við BYKO, en
það fer eftir því hvort hagstæðara er
eftir vindátt. Forskráning er á hlaup-
.is og lýkur henni í kvöld, fimmtudag,
kl. 21. Skráning og afhending keppn-
isnúmera er í Intersport Selfossi frá
kl. 16-18 í dag. Keppnisnúmer verður
einnig hægt að nálgast á hlaupadegi
frá kl. 11 á sama stað.
Rúta flytur keppendur að eða frá
rásmarki, brottför er frá Intersport
kl. 12:20. Vert er að taka fram að
keppendur fá frían aðgang í Sundhöll
Selfoss eftir hlaup.
Keppt er í fjórum flokkum, bæði
hjá konum og körlum: 39 ára og
yngri, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára
og eldri.
Intersporthlaupið „Eins og vindurinn“ er á morgun
Frískir Flóamenn boða til hlaups
Flóamenn Gott er að hlaupa í flatlendi Flóans og bæta kannski tímann sinn.
Fjarðarkaup
Gildir 30. apr - 02. maí verð nú áður mælie. verð
Lambaprime úr kjötborði.................................. 3.098 3.640 3.098 kr. kg
Lambafille m/fitu úr kjötborði........................... 3.998 4.574 3.998 kr. kg
Lamba innralæri úr kjötborði ............................ 2.598 3.598 2.598 kr. kg
Hamborgarar 2x115 g m/brauði....................... 498 562 498 kr. pk.
Ísfugl frosinn kjúklingur .................................... 698 798 698 kr. kg
KF frosið lambalæri sérverkað........................... 1.279 1.498 1.279 kr. kg
SS vínarpylsur 10 stk. í pk ............................... 621 721 621 kr. pk.
Myllu pylsubrauð 5 stk. í pk.............................. 158 196 158 kr. pk.
Pepsi 2 l, pepsi max 2 l.................................... 178 258 89 kr. ltr
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STARFSMANNAFATNAÐUR - EINKENNISFATNAÐUR
Við þjónum fyrirtækjumog stofnunumá Íslandi og erlendismeð
heildrænar lausnir og ráðgjöf þegar kemur að starfsmannafatnaði
www.northwear.is
Sundaborg 7 -9, 104 Reykjavík – Sími 511 4747