Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
að. Á undirbúningsfundi stelpnanna
fyrir þann viðburð skaut sú hug-
mynd upp kollinum að halda upp á
þegar hálf öld væri liðin frá því
Laugalækjarskóli útskrifaði fyrsta
árganginn – okkur. Fljótlega var
ákveðið að slá upp almennilegu balli
með öllum árgöngunum sem voru í
skólanum 1965 og fæddir eru á tíma-
bilinu 1950-1958.“
Sömu tilfinningar
Þegar Óttar Felix er spurður
hvort unglingarnir í árgangi hans,
sem nú eru yfir sextugt, hafi almennt
verið dagfarsprúðir nemendur,
kveðst hann varla reka minni til ann-
ars. „Stundum var þó verið að reyna
að æsa kennarana með einhverjum
prakkarastrikum en það var að
mestu meinlaust. Þráinn Sigurðsson
heitinn, fyrrum yfirkennari okkar og
seinna skólastjóri, sagði við mig
mörgum árum seinna: „Óttar, það
voru tvær tegundir af óþekktar-
ormum í skólanum, góðir og vondir.
Þú varst einn af þeim góðu!““
Heldurðu að skólaböllin hjá
unglingum nú til dags séu með öðru
sniði en þau voru fyrir hálfri öld?
„Ég býst við að framkoma og
klæðnaður sé mun frjálslegri í dag.
Tónlistin hefur breyst en tilfinning-
arnar eru þær sömu, strákar og
stelpur út um allan bæ eru að skjóta
sig hvert í öðru,“ segir Óttar Felix.
Frábært hár Strákarnir í hvítum skyrtum með lakkrísbindi og stelpurnar með frábært hár á skólaballi 1963.
Hesturinn Bergþóra Jónsdóttir
(móðir borgarstjórans) vippar sér
léttilega yfir hestinn 1962/1963.
Fyrstu kynni þeirra Áslaug-
ar Jóhönnu Guðjónsdóttur
og Bryndísar Magnúsdóttur
byrjuðu ekki gæfulega. Þær
voru á níunda ári og bjuggu
báðar í svokallaðri prent-
arablokk við Kleppsveg,
þangað sem Bryndís var
nýflutt. „Við lentum í slag,“
segja þær og Bryndís lýsir
nánar: „Í stuttu máli þá
voru einhverjir krakkar að
hrekkja mig, ég fór að
grenja og þá spurði einhver
hver hefði verið vondur við
mig. Ég sagði: „Það var
hún,“ og benti á Ásu, sem rauk á mig og við lentum í hörkuslagsmálum.“
Eftir þetta urðu þær mestu mátar og hafa verið allar götur síðan, alltaf
búið nálægt hvor annarri og umgengist mikið. „En við slógumst þó oft eitt-
hvað fram eftir aldri, meira að segja um pólitík, sem við vorum afar ósam-
mála um. Ég var sjálfstæðismanneskja eins og foreldrar mínir og Ása fram-
sóknarmanneskja eins og hennar foreldrar,“ segir Bryndís.
Þær voru þó hættar að
slást þegar þær settust í
sama bekk í unglinga-
deildinni í Laugalækj-
arskóla. Brennandi áhugi
á Cliff Richard og The
Shadows tengdi þær enn
nánari böndum og saman
hafa þær elt þá félaga út
um allar trissur í áranna
rás. „Við erum báðar svo-
lítið enskar í okkur – höf-
um það líklega frá Cliff,
bókhneigðar og finnst
gaman að fara í bíó,“
segja vinkonurnar, sem
ætla ekki að missa af
skólaballinu á Kringlu-
kránni.
Urðu vinkonur eftir slagsmál
SKÓLASYSTURNAR ÁSLAUG JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR
OG BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR
Táningar Vinkonurnar og skólasysturnar Bryn-dís og Áslaug t.h. í bítlapeysu kringum 1964.
2015 Bryndís og Áslaug Jóhanna.
ACUVUE linsur í hæsta gæðaflokki
Sjónmælingar eru okkar fag
Á LE IÐ T I L Ú T LANDA
Smáralind • 528 8500 – Hafnargötu, Keflavík • 421 3811
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ • 425 0500