Morgunblaðið - 30.04.2015, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-0
6
2
2
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz B-Class er kominn í nýrri útfærslu. Útlitið er ferskara og nú fæst
þessi vinsæli bíll sjálfskiptur með 4MATIC fjórhjóladrifi sem gerir hann enn meira
spennandi kost við íslenskar aðstæður. Nú fæst B-Class aftur sem metanbíll,
en er að sjálfsögðu líka í boði sem bensín- og dísilbíll.
Komdu í Öskju og reynsluaktu nýjum B-Class.
Nýr og ferskur
Mercedes-Benz B-Class
Fáanlegur fjórhjóladrifinn
B 160 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu.
Verð frá 4.790.000 kr.
B 220 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu og 4MATIC fjórhjóladrifi.
Verð frá 5.790.000 kr.
Von er á um 500 erlendum skák-
mönnum og fylgdarfólki á Evr-
ópumót landsliða í skák sem haldið
verður í Laugardalshöll dagana 12.
til 22. nóvember
á þessu ári.
Ríkisstjórnin
samþykkti á
þriðjudag að
veita Skák-
sambandi Íslands
fjárstyrk að upp-
hæð 25 milljónir
króna til þess að
standa straum af
mótinu. Gunnar
Björnsson, for-
seti Skáksambands Íslands, er mjög
þakklátur fyrir styrkinn og segir
hann vera mjög mikilvægan fyrir
skákmótið sem er stærsti skák-
viðburður hérlendis síðan einvígi
aldarinnar, milli Bobby Fischer og
Boris Spasskíj, fór fram í Laug-
ardalshöll árið 1972. „Þetta mót er
gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskt
skáklíf og mun það vonandi vekja
áhuga Íslendinga á skákinni enn
frekar,“ segir Gunnar en mótið
kostar um 40 milljónir króna í
heildina.
Hann segir að umgjörðin í kring-
um Evrópumótið verði glæsileg og
gerir hann t.d. ráð fyrir því að Rík-
issjónvarpið sýni beint frá því.
Spurður hvort norski skáksnill-
ingurinn Magnús Carlsen verði á
meðal keppenda segir Gunnar afar
líklegt að svo verði þar sem Carlsen
hafi sagt í viðtali að ef Norðmenn
ætli sér að tefla fram sterku liði á
EM verði hann á meðal keppenda
þar sem honum líki vel að tefla fyr-
ir landið sitt. Þá segir Gunnar að
von sé á fleiri sterkum skákmönn-
um eins og Levon Aronian frá
Armeníu og Vladimir Kramnik frá
Rússlandi. Teflt verður í tveimur
flokkum; opnum flokki og kvenna-
flokki. ash@mbl.is
Carlsen að
öllum lík-
indum með
EM í skák haldið
á Íslandi í nóvember
Gunnar
Björnsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tíðin hefur verið erfið fyrir fugla
undanfarið en í gær horfði til betri
vegar og heyra mátti fuglasöng, að
sögn Jóns Sigurðssonar, íbúa á
Blönduósi og fuglaáhugamanns.
Hann segir það hafa verið erfitt að
horfa á vorboðana hrekjast undan
veðrinu. „Maður hefur fundið til
með þröstunum sem hoppuðu frek-
ar en fljúga því þeir voru orðnir
máttlausir. Maður verður bara að
fóðra þá með eplum og öðru slíku.
Þetta hefur verið hálf nöturlegt, “
segir Jón.
Eina merkta gæsin sem eftir er
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd er hin fimmtán ára gamla
grágæs AVP lunkin við að finna sér
grænar, orkuríkar grasnálar til að
mæta harðræðinu. „Hún er fædd
árið 2000 á Blönduósi og hefur
þvælst til Skotlands en kemur hing-
að á sama stað á hverju ári síðan,“
segir Jón. Hún er ein 116 gæsa sem
merktar voru við skrifstofu Sýslu-
mannsins á Blönduósi. „Hún er sú
eina sem eftir er af þeim eða í það
minnsta sú eina sem við vitum um,“
segir Jón. Gæsirnar voru merktar
af Arnóri Þ. Sigfússyni. Að sögn
Jóns er elsta merkta gæs heims 20
ára gömul. „Þessi gæs kemur nær
alltaf á sama stað, nærri Blöndu-
byggð 60. Það er nánast hægt að
ganga að henni vísri á sama stað.
Hún er ein af þeim gæsum sem eru
frægar fyrir að tefja fyrir umferð,“
segir Jón.
Fuglasöngur eftir napra tíð
Ljósmynd/Jón Sigurðsson
AVP Grágæsin AVP er nösk við að næla sér í grasnálar í erfiðri tíð.
Þrestirnir gátu ekki flogið Fræg gæs mætt á sinn stað
Hópur hagyrðinga ætlar að láta
gamminn geisa á skemmtistaðnum
Græna hattinum á Akureyri í kvöld,
fimmtudagskvöldið 30. apríl.
„Allt eru þetta þjóðþekktir vísna-
smiðir, miklir orðsins meistarar,
meinfyndnir og kaldhæðnir. Og allir
munu þeir keppast við að vera
skemmtilegir,“ segir í tilkynningu.
Þetta eru: Björn Ingólfsson, Frið-
rik Steingrímsson, Hjálmar Frey-
steinsson, Ósk Þorkelsdóttir, Pétur
Pétursson og Stefán Vilhjálmsson.
Stjórnandi kvöldsins er Birgir
Sveinbjörnsson.
Skemmtunin hefst kl. 21.00.
Þjóðþekktir
vísnasmiðir
troða upp