Morgunblaðið - 30.04.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
1971 eftir að hafa brotlent í Rjúpna-
felli í verkefni fyrir RARIK. Engan
sakaði í óhappinu. Fyrsta eiginlega
björgunarþyrlan, TF-GNA, tók til
starfa árið 1972, af gerðinni Si-
korsky S62. Var hún sérstaklega
byggð til gæslu á sjó og var í rekstri
hjá Gæslunni til ársins 1975, eða þar
til hún brotlenti í Skálafelli. Engan
sakaði þar heldur. Tveimur árum áð-
ur höfðu tvær Bell-þyrlur verið
teknar í notkun, svipaðrar gerðar og
TF-EIR, eða TF-HUG og TF-
MUN. Þær reyndust mjög illa og
störfuðu stutt hjá Gæslunni, eða til
1977.
Ári áður kom enn önnur þyrla til
sögunnar, TF-GRO, af gerðinni
Hughes 500C. Sú var ekki stór í
sniðum og lauk ferlinum með brot-
lendingu við Búrfellsvirkjun árið
1980, án manntjóns. Litlu mátti þó
muna að illa færi en þyrlan hrapaði
um 50 metrum frá mötuneytisskála
virkjunarinnar. Flugu brot úr þyrl-
unni gegnum veggi skálans en til
allrar hamingju voru starfsmenn ný-
lega farnir úr mat og enginn í skál-
anum.
„Við urðum að halda áfram“
Páll segir þessi fyrstu ár vissulega
hafa verið erfið en þarna hafi þó
fyrstu skrefin í þyrlurekstrinum
verið stigin, við erfiðar aðstæður, og
ákveðin þróun átt sér stað. Versta
áfallið í þyrlusögunni kom síðan 8.
nóvember 1983 þegar TF-RAN fórst
í Jökulfjörðum með allri áhöfn. Með
Birni Jónssyni flugstjóra voru um
borð þeir Þórhallur Karlsson flug-
stjóri, Bjarni Jóhannesson flug-
vélstjóri og Sigurður Ingi Sigurjóns-
son stýrimaður.
TF-RAN var af gerðinni Sikorsky
S76 og hafði verið tekin í notkun
1980, sérhönnuð til björgunarstarfa.
Fyrir Pál og aðra starfsmenn Gæsl-
unnar, og sérstaklega aðstandendur
mannanna, var þetta gríðarlegt
áfall. „Við stóðum bara frammi fyrir
því að ákveða hvort þetta þyrludæmi
væri ekki bara búið spil. En okkur
fannst að við yrðum að halda áfram.
Það var ekki sjálfgefið en allan tím-
ann vorum við sannfærðir um að það
væri hægt að gera þetta miklu betur
en þá var gert,“ segir Páll, sem eftir
þetta slys var ráðinn yfirflugstjóri
og flugrekstrarstjóri hjá Landhelg-
isgæslunni. Ásamt Benóný Ásgríms-
syni þyrluflugstjóra og Sigurði
Steinari Ketilssyni, nú skipherra á
Þór, gengu þeir til fundar við þing-
menn, ráðherra, sjómannasamtök,
útgerðir og fleiri til að sannfæra þá
um mikilvægi þess að halda þyrlu-
rekstrinum áfram og efla hann. Í
kjölfarið var keypt ný þyrla, TF-
SIF, sem tekin var í notkun 1985, en
í millitíðinni hafði Gæslan notað
leiguþyrlu eftir Jökulfjarðaslysið.
Páll segir TF-SIF hafa reynst af-
skaplega vel og stórt skref verið
stigið með henni. „Enn stærra skref
var tekið þegar við fengum Super
Puma þyrlu 1995, TF-LIF, sem hef-
ur reynst Gæslunni happafengur,“
segir Páll, en hann hætti störfum hjá
Landhelgisgæslunni 1999. Hann á
sér þá ósk heitasta að stjórnvöld
beri gæfu til að kaupa nýjar þyrlur á
næstu árum, í stað þess að leigja
þær. „Þetta er svo mikilvæg starf-
semi sem er fyrir löngu búin að
sanna sig.“
Myndasyrpa úr þyrlusögu Land-
helgisgæslunnar birtist á mbl.is í
dag.
Sjúkraflug Fyrsta útkallið með TF-SIF, sem tekin var á leigu eftir slysið í
Jökulfjörðum, var vestur á Strandir í desember 1984. Ný SIF kom árið 1985.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landhelgisgæslan Þyrlan TF-LIF á flugi við Grænlandsjökul á síðasta ári.
Ljósmyndir/Úr einkasafni Páls Halldórssonar
Félagar Páll Halldórsson, t.h., með
Birni heitnum Jónssyni við TF-EIR.
Tökumst óhrædd og meðvituð á við
kynferðislegt ofbeldi gegn börnum
Tökum vel á móti sölufólki Blátt áfram dagana 27. apríl - 3. maí.
g
ra
fi
k
.i
s
- kaupum ljósið!
Verum upplýst