Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
heimkaup.is
Lækkum allar vörur á miðnætti!
Í tilefni af verkalýðsdeginum 1. maí
gefum við afslátt af öllum vörum
á Heimkaup.is frá miðnætti og í 24 tíma!
Frí heimsending af öllum sendingum yfir 4.000
og opið í dag þjónustuveri fyrir þá sem vilja sækja.
99.990,-
199.990,-
1.490,-
2.990,-
255,-
850,-
89.990,-
129.990,-
49”
2.745,-
5.490,-
meiri kaupmáttur!
Lægra verð =
í einum smelli
1.395,-
2.790,-
AÐEINS
Í 24 TÍMA
I
Í Í
Movie Star hvíldarstóll
Verð 433.000,-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Viðurkennt er að stefnda, Landeig-
endum Reykjahlíðar ehf, er óheimilt
að innheimta gjald fyrir aðgang að
Hverum við Námafjall og Leirhnjúki
í landi Reykjahlíðar í Skútustaða-
hreppi,“ segir í dómsorði í máli land-
eigenda Reykjahlíðar. Meirihluti
þeirra hóf að rukka ferðamenn fyrir
að sjá náttúruperlur í landi Reykja-
hlíðar en hluti landeigenda, sem eiga
tæp 30% í jörðinni, var því ósammála.
Fóru þeir fram á lögbann við Sýslu-
manninn á Húsavík þann 21. júlí 2014
sem var staðfest með dómi sem féll í
síðustu viku. Málinu hefur verið vísað
til Hæstaréttar þar sem það bíður af-
greiðslu.
„Eftir að hafa lesið dóminn sýnist
mér að það megi allir aðrir selja inn á
okkar land nema við sjálf,“ segir Ólaf-
ur H. Jónsson, formaður Landeig-
endafélags Reykjahlíðar sem er mjög
ósáttur við dóminn. Hann vill þó lítið
tjá sig en segir að allir tapi á þessum
málarekstri, enginn þó meira en nátt-
úran sjálf.
„Það er enginn að hugsa um nátt-
úruna. Nú verður forvitnilegt að sjá
hvað þeir sem stefndu okkur ætla að
gera núna þegar náttúran er að
drabbast niður við hverasvæðið við
Námafjall og Leirhnjúk. Margra ára
vinna er eyðilögð með þessu. Það tap-
ast miklir fjármunir en enginn tapar
meira en náttúran. Það er alveg sama
hvernig þetta fer, það tapa allir,“ seg-
ir Ólafur.
40 milljónir í tryggingu
Forsaga málsins er sú að minni-
hlutinn krafðist þess í bréfi, þann 23.
maí árið 2014, að meirihluti eigenda
léti af áformum um gjaldtökuna og
framkvæmdir á jörðinni. Hinn l. júní
2014 hófst svo innheimta fyrir aðgang
að svæðunum við Hveri og Leirhnjúk.
Minnihlutinn krafðist þess þann 7.
júlí að sýslumaðurinn á Húsavík setti
á það lögbann, sem hann varð við 21.
júlí eftir að minnihlutaeigendur höfðu
lagt fram tryggingu upp á 40 milljónir
króna.
Fram kemur í dómnum að lög-
bannið hafi verið nauðsynlegt til að
koma í veg fyrir ófremdarástand sem
byrjað hafi verið að myndast á svæð-
inu. Gjaldtakan hafi ekki haft þau
áhrif sem til var ætlast, að stýra og
bæta aðgang ferðamanna að svæðinu,
heldur hafi hún leitt til að ferðamenn
hafi farið að leita nýrra leiða til að
skoða svæðin fjarri gjaldtökuhliðun-
um. Nýir troðningar og slóðir hafi
tekið að myndast og þannig valdið
tjóni á landinu og slysahættu.
„Þessi tilraun sem við gerðum í
þessa 40 daga í fyrra sagði okkur að
það kæmu um 200 þúsund manns inn
á þrem til fjórum mánuðum. Sam-
kvæmt raun- og áætlunartölum er fé-
lagið að tapa um 200 milljónum brúttó
því við erum ekki að fá að hafa opið í
tvö ár. Náttúran er ekki látin njóta
vafans heldur einkahagsmunir ferða-
þjónustuaðila. Þeim er alveg sama um
þessi svæði. Þeir rukka fyrir sínar
ferðir og skila engu til baka og skilja
ekkert eftir.“
Bláa Lónið byrjaði í skúr
Ólafur bendir á að þegar byrjað var
að rukka inn aðgangseyri í Bláa Lónið
hafi það byrjað í skúr. Mikið vatn sé
búið að renna um Svartsengi síðan og
nú er Bláa Lónið ein glæsilegasta
heilsu- og SPA-lind heimsins. En allt
hafi það byrjað í litlum skúr. „Það er
svolítið gaman að lesa um skúravæð-
ingu og gjaldtöku að þetta byrjaði í
Bláa Lóninu. Hvað er Bláa Lónið í
dag? Þetta er það sem við erum að
hugsa. Þeir borga sem njóta, til þess
að geta byggt upp svæði.“
Dæmt óheimilt að innheimta gjald
fyrir aðgang að náttúruperlum
Dómur í máli landeigenda við Reykjahlíð um náttúruperlur afdráttarlaus Áfrýjað til Hæstaréttar
Morgunblaðið/Eggert
Námafjall Um 200 þúsund manns
stoppa við Námafjall á hverju ári.
Fjármálaráðuneytinu ber að bjóða
út innkaup á flugfarmiðum til og frá
Íslandi. Þetta kom fram í úrskurði
kærunefndar út-
boðsmála í máli
WOW Air ehf.
gegn fjármála-
og efnahagsráðu-
neytinu. Nefndin
lagði það fyrir
fjármálaráðu-
neytið að bjóða
út innkaup á
flugfarmiðum til
og frá Íslandi og
var þar fallist á
sjónarmið WOW og Félags atvinnu-
rekenda, sem hafa haldið því fram
að það sé skylda ríkisins að bjóða út
flugmiðakaupin þar sem þau séu yf-
ir þeim viðmiðunarfjárhæðum sem
lög um opinber útboð tilgreina.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, segir
félagið fagna úrskurðinum sem
staðfesti það að þessi mál hafi verið
í ólögmætum farvegi undanfarin ár.
Í úrskurði kærunefndarinnar segir
að árið 2013 hafi heildarkostnaður
íslenska ríkisins vegna ferða til út-
landa og ferða erlendis verið 900
milljónir króna. Þar var þó tekið
fram af hálfu fjármálaráðuneytisins
að innifalið í þeirri tölu væri kostn-
aður við flugferðir til og frá Íslandi,
tengiflug, lestarferðir, rútur, skip
og ferjur. Fjármálaráðuneytið upp-
lýsti kærunefndina um að ekki væri
greinanlegt í bókhaldi fjársýslu rík-
isins hver viðskipti eru við einstök
flugfélög árlega.
„Með hliðsjón af þeim upplýsing-
um sem áður hafa verið raktar þyk-
ir þó mega slá því föstu að heildar-
kaup íslenska ríkisins á
flugfarmiðum á því tímabili sem
miða ber við séu langt umfram þær
viðmiðunarfjárhæðir sem að framan
greinir,“ sagði í úrskurði nefnd-
arinnar.
Engin afstaða til vildarpunkta
Ólafur segir það koma spánskt
fyrir sjónir að fjármálaráðuneytið,
sem eigi að fara vel með fjármuni
þjóðarinnar, hafi ekki viljað nýta
kaupendastyrk sinn með útboði.
Kærunefndin tók ekki afstöðu til
annarrar kröfu WOW Air um að
viðurkennt yrði að óheimilt væri að
veita svokallaða vildarpunkta eða
aðra fjárhagslega umbun til op-
inberra starfsmanna í skiptum fyrir
kaup hins opinbera á þjónustu.
Ber að bjóða út
flugfarmiðakaup
Ekki úrskurðað um vildarpunkta
Ólafur
Stephensen