Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Klausturbleikja
Heitur matur
í hádeginu
Stór pillaður humar
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim
Glænýr
rauðmagi
Nýlöguð
humarsúpa
gang. Þannig haldast truflanir í
lágmarki.
Snjallnetið á Vestfjörðum er ný-
mæli hér á landi og á sér ekki
margar hliðstæður í heiminum.
„Ef rafmagnið fer þá stoppar
samfélagið. Framleiðsla í fyrir-
tækjum, afgreiðsla í verslunum,
margir eru að vinna sítengdir á
netinu og svo framvegis. Þetta er
grunnþjónusta sem verður að vera
í lagi. Og nú hef ég orð stjórnenda
Orkubús Vestfjarða fyrir því að
rofum í snjallnetinu verði fjölgað.
Hér á svæðinu er fjöldi lítilla fyrir-
tækja, til dæmis búrekstur til
sveita, og þar eins og annars staðar
á fólk mikið undir því að rafmagns-
mál séu í lagi,“ segir Gísli Halldór
Halldórsson.
Þurfa hringtengingu
Þó mikil bót sé að hinum nýju
orkumannvirkjum þarf meira til,
segir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Hringtenging um Vestfirði við
meginæðar flutningskerfis rafork-
unnar sé markmiðið og hið sama
gildi um ljósleiðara Símans. Nú
liggi aðeins einn ljósleiðarastrengur
vestur, sem fer um Barðastrandar-
sýslu og þar norður um heiðar í
Dýrafjörð og í Bolungarvík. Nú sé
þó komið á dagskrá að leggja ljós-
leiðarastreng um Djúpið – og eigi
hann að vera kominn í gagnið inn-
an tveggja ára.
Við opnun stöðvarinnar í Bolung-
arvík kom fram að að úrbæturnar
væru í samræmi við þær sam-
félagsskyldur sem Landsnet starfar
samkvæmt, það er að tryggja
landsmönnum öllum öruggt að-
gengi að rafmagni.
Með framkvæmdum nú væru
mál á Vestfjörðum komin í þokka-
legt horf. Ljóst væri þó að gera
þyrfti betur. Aukin orkuframleiðsla
í héraðinu væri lykilatriði og þar er
meðal annars horft til virkjunar
Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum.
Kviknar aftur á ljósinu eftir mínútu
Varaaflstöð í Bolungarvík tekin í notkun Orkuöryggi á Vestfjörðum tryggt Grunnþjónusta
sem verður að vera í lagi Horft til Hvalár í Ófeigsfirði með aukna raforkuframleiðslu í huga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestfirðir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Gísli Halldór Halldórsson við opnun aflstöðvarinnar.
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Varaaflstöðin markar kaflaskil. Í
daglegu lífi eigum við allt undir
rafmagni. Á síðustu árum minnist
ég þess að yfir veturinn hafi að
jafnaði einu sinni í mánuði komið
upp tilvik þar sem rafmagn hefur
dottið út í 15 mínútur til hálftíma.
Á reynslutíma stöðvarinnar frá í
haust kviknar ljósið hins vegar aft-
ur eftir í mesta lagi eina mínútu,“
segir Gísli Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Þriggja milljarða kr. verkefni
Ný aflstöð Landsnets, auk tengi-
virkis Landsnets og Orkubús Vest-
fjarða í Bolungarvík og á Ísafirði
og snjallnetskerfi fyrir Vestfirði,
var tekið í notkun af Ragnheiði El-
ínu Árnadóttur iðnaðarráðherra sl.
þriðjudag. Um þrjú ár hefur tekið
að koma þessum búnaði í gagnið og
alls hefur um þremur milljörðum
króna verið í verkefnið varið.
Helsta nýjungin í samstæðunni
er svonefnt snjallnet – tæknibún-
aður sem Landsnet hefur sett upp
víða í Vestfjarðakerfinu og tengdur
er saman í fjarskiptakerfi. Virkni
þess er sú að truflist orkukerfið og
framleiðsla sé ekki í samræmi við
aflþörf stundarinnar, þá leysir
snjallnetið út allt rjúfanlegt álag á
svæðinu auk þess sem díselknúnar
varavélarnar í Bolungarvík, sem
eru sex og framleiða 1,8 MW, fara í
Hin nýja varaaflstöð Landsnets
í Bolungarvík gegnir marg-
víslegu hlutverki en nýlunda er
að láta slíka stöð þjóna stórum
landshluta. Afkastageta hennar
er tilsvarandi því sem byggðin á
Vestfjörðum þarf og má af því
ráða hve mikið öryggisatriði
stöðin er.
Annars er snjallnetið svo-
nefnda lykilatriði í hraðri
spennusetningu kerfisins, ef
rafmagninu slær út. Til að netið
annars virki hefur þurft að
styrkja fjarskiptakerfið á Vest-
fjörðum en á slíku var mikil þörf
og ástæður þess margar.
Snjallnetið er
lykilatriðið
ÞJÓNAR LANDSHLUTANUM
Aflstöð Ljós Vestfjarðanna.