Morgunblaðið - 30.04.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Skjól í amstri dagsins
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Netfang axis@axis.is • www.axis.is
EINRÚM Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt
Yfirmenn bresku neðanjarðarlestanna tilkynntu í gær
að þeir hygðust leigja út gamlar og ónotaðar lestar-
stöðvar í fjáröflunarskyni. Þar á meðal er Down Street-
stöðin, sem tekin var úr notkun árið 1932, en talið er að
Winston Churchill hafi dvalist þar á stríðsárunum áður
en lokið var við smíði sérstaks neðanjarðarbyrgis í ná-
grenni breska þingsins. Er talið að leigan geti numið
allt að 100.000 sterlingspundum á ári.
AFP
Neðanjarðarbyrgi Churchills til leigu
Salman, konungur Sádi-Arabíu,
ákvað í gær að breyta erfðaröð í
konungsríkinu þannig að í stað
yngsta bróður síns, hins 69 ára
gamla prins Moqren bin Abdul Aziz
bin Saud, myndi frændi þeirra
bræðra, hinn 55 ára gamli prins Mo-
hammed bin Nayef, verða næstur í
krúnuröðinni. Á eftir honum skipaði
Salman son sinn sem næsta ríkisarfa
þar á eftir. Þetta er í fyrsta sinn sem
erfðaröð konungdæmisins hefur ver-
ið breytt, og er ákvörðunin talin til
merkis um að Salman sé að treysta
völd sín.
Á sama tíma var tilkynnt að prins
Saud al-Faisal myndi stíga til hliðar
sem utanríkisráðherra landsins af
heilsufarsástæðum, en hann hefur
sinnt því embætti frá því í mars
1975. Í hans stað kemur Adel al-
Jubeir, en hann hefur verið sendi-
herra landsins í Bandaríkjunum síð-
ustu níu árin.
Ný erfða-
röð sam-
þykkt
Al-Faisal hættir
eftir 40 ára starf
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnvöld í Indónesíu urðu fyrir harðri gagnrýni í
gær í kjölfar þess að þau létu taka sjö manns af lífi
fyrir fíkniefnasmygl. Meðal annars var sendiherra
Ástralíu kallaður heim í mótmælaskyni, og yfir-
völd í Brasilíu lýstu yfir vonbrigðum sínum, en á
meðal þeirra sem teknir voru af lífi voru tveir
Ástralar og einn Brasilíumaður. Á Filippseyjum
ríkti hins vegar gleði með að samlanda þeirra
skyldi hlíft á síðustu stundu.
Embættismenn í Indónesíu vörðu aftökurnar
með því að segja þær mikilvægan þátt í stríði
landsins gegn fíkniefnum. Muhammad Prasetyo,
dómsmálaráðherra landsins, sagði aftökurnar
nauðsynlegar til þess að bjarga landinu frá hörm-
ungum fíkniefna. „Við erum að heyja stríð gegn
hræðilegum fíkniefnaglæpum, sem ógna lífs-
afkomu þjóðar okkar.“
Prasetyo bætti við að aftökunni á Filipps-
eyingnum, hinni þrítugu Mary Jane Veloso, hefði
eingöngu verið „frestað“ á meðan lögreglan rann-
sakaði málsatvik nánar. Veloso hélt því fram að
hún hefði verið nörruð til þess að flytja fíkniefni til
landsins og var hætt við aftökuna á síðustu stundu
þegar kona gaf sig fram við yfirvöld á Filipps-
eyjum og sagðist hafa platað Veloso til að flytja
efnin óafvitandi.
Franskur ríkisborgari bíður dauðadóms
Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakka,
sagði í gær að frönsk yfirvöld myndu leita allra
leiða til þess að forða frönskum ríkisborgara,
Serge Atlaoui, frá aftöku. Upphaflega stóð til að
Atloui yrði skotinn með hinum en aftökunni var
frestað þar sem máli hans var ekki að fullu lokið
fyrir dómstólum. Francois Hollande Frakklands-
forseti varaði hins vegar við diplómatískum afleið-
ingum þess ef Atloui yrði tekinn af lífi.
Aftökur í Indónesíu vekja óhug
Sendiherra Ástralíu kallaður heim Filippseyingi þyrmt á síðustu stundu
AFP
Aftökur Filippseysk blöð sögðu ranglega frá því
að Veloso hefði verið tekin af lífi.
Shinzo Abe varð í
gær fyrsti for-
sætisráðherra
Japans til þess að
ávarpa báðar
deildir banda-
ríska þingsins.
Í ræðu sinni,
sem Abe flutti á
ensku, lagði hann
áherslu á hin
styrku bönd sem tengdu Bandarík-
in og Japan og baðst afsökunar á
aðgerðum Japana í síðari heims-
styrjöld. Bað hann sálir þeirra
Bandaríkjamanna sem féllu eilífrar
fyrirgefningar, undir dynjandi lófa-
taki þingheims. Stuttu áður en
hann flutti ræðu sína lagði Abe
blómsveig frá japönsku þjóðinni við
minnismerki um stríðið.
Á meðal þeirra sem hlýddu á
ræðu Abes var Lee Yong-Soo, 87
ára gömul kona, sem var ein af hin-
um svonefndu „þægindakonum“,
sem japanski herinn neyddi í vændi
á tímum stríðsins. Henni var boðið
þangað af þingmanninum Mike
Honda, sem sagði Japani ekki geta
forðast lengur ábyrgð á glæpum
sínum.
BANDARÍKIN
Abe vottar samúð
vegna stríðsins
Shinzo Abe
Jack Ely, söngv-
ari hljómsveit-
arinnar The
Kingsmen, lést á
mánudaginn, 71
árs að aldri, eftir
langa baráttu við
veikindi.
Ely er þekkt-
astur fyrir flutn-
ing sinn á laginu
Louie Louie, en söngur hans var
svo óskýr, að bandaríska alríkis-
lögreglan FBI lét kanna hvort
söngtextinn innihéldi einhvern
ósæmilegan boðskap. Svo reyndist
þó ekki vera.
Ely sinnaðist við hljómsveitar-
félaga sína fljótlega eftir að lagið
kom út og skildi leiðir. Ely settist
síðar að í Oregon og rak þar hesta-
búgarð.
BANDARÍKIN
Söngvari lagsins
Louie Louie látinn
Jack Ely
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Javad Zarif, utanríkisráðherra Ír-
ans, sagði í gær að landið væri tilbúið
til þess að undirgangast „hæstu stig“
eftirlits alþjóðasamfélagsins vegna
kjarnorkuáætlunar sinnar. Sagði
Zarif að Íranar vildu ljúka sam-
komulagi um áætlunina sem fyrst.
„Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
hefur séð allt, og ef þið eruð að leita
að reykspúandi byssu munuð þið
þurfa að leita í langan, langan, lang-
an tíma áður en þið finnið eina,“
sagði Zarif er hann ávarpaði sam-
komu við New York-háskóla.
Í máli Zarifs kom einnig fram að
vinna væri þegar hafin við endanlegt
samkomulag á milli Írans og P5+1-
hópsins, sem skipaður er af þeim
fimm þjóðum sem eru fastafulltrúar í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
auk Þýskalands. Samkvæmt ramma-
samkomulagi sem samþykkt var í
síðasta mánuði á að ljúka endanlegri
gerð fyrir 30. júní. Zarif sagðist von-
ast til þess að viðræðunum yrði lokið
löngu fyrir þann tíma, en tók jafn-
framt fram að engin tímamörk væru
heilög.
Viðræðunum er ætlað að tryggja
það að Íranar noti ekki kjarnorku-
áætlun sína til þess að verða sér úti
um kjarnorkuvopn, en nokkrar af
nágrannaþjóðum Írans eins og Ísr-
ael og Sádi-Arabía hafa lýst yfir
áhyggjum sínum yfir áformum
landsins. Á móti vonast Íranar til
þess að samkomulag verði til þess að
aflétta hörðum viðskiptaþvingunum
alþjóðasamfélagsins, sem verið hafa
í gildi frá árinu 2006.
Tilbúnir í „al-
gjört gegnsæi“
AFP
Kjarnorkumál Javad Zarif segir
Írana hafa allt uppi á borðum.
Javad Zarif
segir Írana ekkert
hafa að fela