Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Örvænting og reiði er farin að grípa
um sig í Nepal eftir jarðskjálftann á
laugardag og kom til ryskinga milli al-
mennings og óeirðalögreglu í gær.
Farið er að ganga á matar- og vatns-
birgðir í Katmandú, höfuðborg lands-
ins, þar sem búa 2,5 milljónir manna.
Mikil eyðilegging varð í borginni í
skjálftanum, sem mældisdt 7,8 stig á
Richter-kvarða.
Þúsundir manna söfnuðust saman
fyrir dögun í gær fyrir utan helstu um-
ferðarmiðstöð Katmandú og hugðust
taka rútur út úr borginni. Stjórnvöld
höfðu heitið því að útvega langferða-
bíla, en þegar ekkert bólaði á þeim kom
til átaka milli fólksins og óeirðalög-
reglu sem send hafði verið á staðinn.
Öngþveiti er á götum í borginni og
út úr henni vegna þess að fólk reynir að
komast til þorpanna, sem það kemur
frá, eða til Indlands.
Stjórnvöld hafa viðurkennt að það
hafi verið þeim ofviða að bregðast við
neyðinni eftir skjálftann, sem forsætis-
ráðherra landsins, Sushil Koirala,
sagði í fyrradag að kostað hefði allt að
10 þúsund Nepala lífið.
„Það hafa verið veikleikar í stjórn
björgunaraðgerða,“ sagði Minendra
Rijal, samgönguráðherra Nepals, í
sjónvarpsviðtali. „Neyðin hefur verið
svo mikil og er án hliðstæðu þannig að
við höfum ekki getað staðið undir
væntingum þeirra sem eru hjálpar
þurfi.“
Drakk eigið þvag
Enn er leitað að fólki í rústum eftir
skjálftann. Seint á þriðjudag bjargað-
ist 28 ára gamall maður, Rishi Khanal,
undan rústum hótels í Katmandú eftir
að hafa verið fastur í 82 klukkustundir.
Björgunarmenn sögðu að Khanal hefði
sagt að hann hefði verið svo þyrstur að
hann hefði drukkið eigið þvag.
Skortur á vatni gæti valdið vanda-
málum í Katmandú. Þar er grunn-
vatni dælt upp úr jörðinni með raf-
magnsdælum. Í rafmagnsleysinu eftir
skjálftann eru dælurnar gagnslausar.
Mörg hundruð þúsund manns hafa nú
sofið undir berum himni í fimm nætur.
Margir hafa misst heimili sín og aðrir
óttast að hús sín hrynji í eftirskjálft-
um.
„Hér er ekkert eftir“
Mikið af hjálpargögnum berst nú til
Nepals og víða eru gögn til reiðu, en
flugvöllurinn í Katmandú er lítill og
hætt við að þar hlaðist upp birgðir
vegna samgönguerfiðleika. Aðstoð er
byrjuð að berast til afskekktra svæða,
sem urðu verst úti í skjálftanum.
Sums staðar hafa vegir farið í sundur
svo fljúga verður með gögn. „Við höf-
um engan mat fengið síðan í jarð-
skjálftanum,“ sagði Sita Gurung, sem
missti heimili sitt í héraðinu Gorka í
skjálftanum, við AFP. „Hér er ekkert
eftir.“
Hjálparstarf gengur hægt
Örvænting og reiði brýst út Manni bjargað eftir 82 klukkustundir undir rústum Óttast skort á
vatni og mat í höfuðborginni Viðurkenna vanmátt Erfitt að koma hjálp til afskekktra byggða
AFP
Eyðilegging Móðir með barn hjá rústum húss í þorpinu Uiya í Gorka-héraði.
Íbúar þar hafa þyrpst að þyrlum með hjálpargögn og grátbeðið um flutning.
Óeirðalögreglu í Baltimore tókst
að koma á ró í gærmorgun þegar
hún framfylgdi útgöngubanni sem
sett var á í borginni í kjölfar óeirða
síðustu daga. Beitti lögreglan
reyksprengjum og piparúða til
þess að tæma götur borgarinnar,
þegar bannið tók gildi klukkan 22
að staðartíma, eða klukkan tvö um
nótt að íslenskum tíma, en nóttin
var að mestu róleg eftir það. Út-
göngubanninu lauk síðan klukkan
fimm um morguninn, klukkan níu
að íslenskum tíma, en því verður
framfylgt áfram á kvöldin í heila
viku.
Þjóðvarðlið Marylandríkis að-
stoðaði lögregluna og myndaði til
að mynda varnarlínur með aðstoð
brynvæddra farartækja.
Óeirðirnar hófust í kjölfar jarð-
arfarar Freddies Grays á mánu-
daginn var. Hann dó í haldi lög-
reglunnar í Baltimore fyrr í mán-
uðinum, en samskipti blökkumanna
og bandarískra lögreglumanna
hafa verið hitamál að undanförnu.
Spenna ríkti áfram í borginni á
miðvikudagskvöld. Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur fordæmt
óeirðirnar, en hefur jafnframt sagt
þær vekja alvarlegar spurningar
um það hvernig löggæslu sé háttað
í Bandaríkjunum. sgs@mbl.is
AFP
Spenna Þjóðvarðlið gengur um götur Baltimore í gær.
Útgöngubanni fram-
fylgt í Baltimore
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Vesti verð 10.900,- — Pólóbolir verð 8.900,- stk. —
Bolir hnepptir í hálsinn verð 3.900,-
Úrval af bolum og vestum
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
HONDA CR-V LIFESTYLE
12/2011, ekinn 49 Þ.km,
bensín, sjálfskiptur. TILBOÐSverð
3.890.000 stgr. Raðnr.282860
MAZDA 5 01/2008, ekinn 105
Þ.km, bensín, 5 gíra, 7 manna
Verð 1.990.000. Raðnr.253433
FORD EXPEDITION EDDIE
BAUER 4X4 Árgerð 2007,
ekinn 89 Þ.km, sjálfskiptur. Verð
3.980.000. Raðnr.200508
NISSAN PATROL GR 37”
03/2005, ekinn 149 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Verð 3.490.000.
Raðnr.253426
DODGE RAM 2500 QUAD
4X4ST Árgerð 2004, ekinn 193
Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð
2.980.000. Raðnr.311225