Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
GJAFAHALDARAR
Á TILBOÐI :
stakar stærðir skál C-G kr.
4.500,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 5524 Mjúkir og þægilegir
rúskinnsökklaskór úr leðri, fóðraðir
og með góðum sóla. Stærðir: 36-42.
Verð: 17.785.
Teg. 5529 Mjúkir og þægilegir
ökklaskór úr leðri, fóðraðir og með
góðum sóla. Stærðir: 36-42. Verð:
17.785.
Teg.7279 Mjúkir og þægilegir
ökklaskór úr leðri, fóðraðir og með
góðum sóla. Stærðir: 37-42.
Verð: 17.700.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Glæsilegt
úrval af
sundfatnaði
Póstsendum
Tilbúin
karton og
rammar
Lokað
5.-8. maí
20%
afsláttur
í maí
Hópbílar
!
"#
$
%
&#'( !)
Bílavarahlutir
VW OG SKODA
VARAHLUTIR 5341045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá ‘02. Kau-
pum bíla til niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið Kaplahrauni 11
sími 5341045
Smáauglýsingar 569
GRÍPTU
TÆKIFÆRIÐ!
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD
Í dag verður bor-
inn til grafar góður
samstarfsmaður
okkar, Guðni Haf-
steinn Larsen. Haf-
steinn fæddist 1949 á Selfossi en
hefur búið og starfað á Reyðar-
firði nánast alla sína starfsævi.
Hafsteinn hefur verið í slökkvi-
liðinu á Reyðarfirði í rúm 40 ár,
lengst af sem aðstoðarslökkvi-
liðsstjóri. Eftir að slökkviliðin á
Eskifirði og Reyðarfirði voru
sameinuð 1995 var hann aðstoð-
arslökkviliðsstjóri í því. Þegar
atvinnuslökkvilið var stofnað í
Fjarðabyggð 2007 skipti hann
um starfsvettvang og gerðist
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
maður í fullu starfi. Í hans starfi
fólst jafnframt umhald á búnaði
slökkviliðsins, viðgerðir og við-
hald.
Hafsteinn varð bráðkvaddur á
heimili sínu að kvöldi 12. apríl.
Engan hafði grunað að hann
myndi ekki mæta til vinnu aftur
að loknu þessu helgarleyfi. Haf-
steinn var farinn að huga að
starfslokum en hann hefði orðið
66 ára í ágúst næstkomandi. Veit
ég að hann var farinn að skipu-
leggja þann tíma, huga að því að
hafa eitthvað sér til dundurs og
eyða meiri tíma með fjölskyld-
unni. Enda féll honum aldrei
verk úr hendi og alltaf voru næg
verkefni handan við hornið sem
þurfti að sinna.
Hann starfaði lengi sem vél-
virki hjá VBK. Nýttist kunnátta
hans og reynsla vel í störfum fyr-
ir slökkviliðið. Hafsteinn var af-
skaplega greiðvikinn og úrræða-
góður við lausn á öllum
verkefnum, allt lék í höndum
hans. Var þá alveg sama hvort
gera þurfti við, smíða eða útvega
eitthvað, hann leysti úr því og
nánast undantekningalaust fékk
Guðni Hafsteinn
Larsen
✝ Guðni Haf-steinn Larsen
fæddist 6. ágúst
1949. Hann lést 12.
apríl 2015. Útför
hans fór fram 25.
apríl 2015.
hann bestu kjör.
Hann hafði næmt
auga fyrir nýtileg-
um hlutum sem að
gagni gátu komið og
ef hann vissi ekki
um þá sjálfur, þá
átti hann fjölda vina
og kunningja sem
greiddu götuna.
Hafsteinn var
einstaklega við-
mótsþýður, traust-
ur og góður samstarfsfélagi.
Stutt var í glettni og stríðni og
við slík tækifæri færðist oft yfir
hann alveg sérstakur svipur.
Hann naut þess að koma af stað
heitum umræðum og valdi um-
ræðuefnin vel. Sneri sér svo und-
an og glotti með sínum fræga
stríðnispúkasvip og hafði gaman
af. Allt meinlaust og aldrei bjó að
baki illkvittni, einungis bragð til
að lífga upp á tilveruna þann
daginn.
Hann var ávallt tilbúinn að
bjarga málum, hvort sem það
voru viðgerðir, lausn verkefna
eða að manna vakt. Því var hægt
að ganga út frá sem vísu.
Hann bar hag slökkviliðsins
fyrir brjósti, eins og hann hefði
átt það sjálfur. Það er okkur
ánægja að ættingjar skyldu
þiggja að nota einn af eldri
slökkviliðsbílum okkar til að
flytja Hafstein síðasta spölinn. Í
þessum bíl á hann mörg handtök,
ásamt Indriða vini sínum bar
hann hitann og þungann af viða-
miklum lagfæringum á honum.
Þeirra samstarf var einstakt og
báru þeir hag hvor annars mjög
fyrir brjósti.
Við samstarfsfélagar Haf-
steins í Slökkviliði Fjarðabyggð-
ar sendum eiginkonu hans og
sonum, ættingjum og vinum inni-
legar samúðarkveðjur. Guð
styrki ykkur, minning um góðan
dreng lifir. Hans verður sárt
saknað og slökkvistöðin á Hrauni
er fátæklegri eftir.
Kveðja frá starfsfélögum í
Slökkviliði Fjarðabyggðar.
Guðmundur Helgi Sigfús-
son, slökkviliðsstjóri.
Við félagar í
Björgunarsveitinni
Brák kveðjum
traustan og dug-
mikinn félaga,
Björn Hermannsson. Bjössi,
eins og hann var kallaður af
flestum, gekk ungur að árum til
liðs við Brák. Hann var fljótur
að tileinka sér hugsanagang og
fórnfýsi þeirra sem starfa í
þessum geira og var oftast í
fremstu línu, hvort sem um
björgun, fjáröflun eða aðra
vinnu var að ræða. Það að
starfa í björgunarsveit á ekki
við alla, fórnað er miklum tíma
frá fjölskyldu og vinnu í sjálf-
boðaliðastarf og var Brák ekki
eina félagið sem hann var í á
þessum forsendum. Bjössi var
með tækjadellu og var það því
eðlileg þróun í starfi hans inn-
an okkar raða að hann yrði við-
riðinn bíla og tæki sveitarinnar.
Vel var hugsað um tæki og tól
sveitarinnar og þar tók Bjössi
fullan þátt. Hafði hann for-
göngu um ýmis kaup á bílum
og tækjum og er meðal annars
Björn
Hermannsson
✝ Björn Her-mannsson
fæddist 29. júlí
1943. Hann lést 13.
apríl 2015. Útförin
fór fram 22. apríl
2015.
Econoline sem
hann sá um kaup á
enn í eigu okkar og
í notkun. Hann var
einnig um tíma for-
maður sveitarinnar
og í seinni tíð nán-
ast sjálfkjörinn
fundarstjóri á aðal-
fundum. Fjalla-
ferðir voru honum
hugleiknar og bjó
hann yfir staðgóðri
þekkingu á hálendi Íslands sem
og láglendi. Ekki þótti honum
síðra að ferðast að vetri til og
til margra ára átti hann vél-
sleða sem notaðir voru líka sem
björgunartæki. Svaðilfarir voru
margar farnar í leit og björgun
ásamt venjulegum ferðalögum
með góðum félögum og oft var
farið í „Ríkið“. Betri ferða-
félaga er vart hægt að finna,
fumlaus og skipulögð vinnu-
brögð og alltaf stutt í glottið.
Hjálpsemi og vingjarnleiki ein-
kenndi feril Bjössa sem björg-
unarmanns og félaga.
Elsku Þóra, dætur og fjöl-
skyldur, við sendum okkar
mestu samúðarkveðjur og
þökkum fyrir tímann sem við
fengum að hafa góðan dreng í
okkar röðum.
Félagar í Björgunarsveitinni
Brák, Borgarnesi,
Jakob Guðmundsson.