Morgunblaðið - 30.04.2015, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Snorri Helgason er flugnemi í Flugskóla Íslands, hann er kom-inn með einkaflugmannsréttindi en er í atvinnuflugnámi. „Ég klára bóklega námið í byrjun júní og verð vonandi
kominn með skírteinið um jólin, en ég hef haft áhuga á flugi frá því
ég var krakki. Ég hef aðgang að vélum í skólanum og reyni að
fljúga eins oft og ég get. Flaug til dæmis að gosinu í Holuhrauni.
Það var mjög gaman.
Á afmælisdaginn er ég svo heppinn að fara í próf, en ég veit ekki
hvað konan er búin að plana í tilefni dagsins. Það hlýtur að vera eitt-
hvað.“ Aðspurður segir Snorri prófið vera í Radio navigation en
námið er alþjóðlegt og fer allt fram á ensku.
Kærasta Snorra er Halla Karen Haraldsdóttir tannsmíðanemi, en
þau eiga von á sínu fyrsta barni í október. Foreldrar Snorra eru
Helgi Snorrason fasteignasali og Þóra Sigurþórsdóttir listakona.
Hvað á að gera í sumar? „Fljúga, vinna og undirbúa allt fyrir litla
krílið. Ég verð að vinna hjá ferðaskrifstofunni Nordic Visitor sem
selur aðallega útlendingum ferðir til okkar fallega lands, bæði
hópa- og einstaklingsferðir.“
Áhugamál Snorra eru líkamsrækt, tónlist og fótbolti. „Ég er
Fjölnismaður í húð og hár.“
Snorri Helgason er 25 ára í dag
Kærustuparið Snorri og Halla Karen í flugferð síðasta sumar.
Fer í próf á
afmælisdaginn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Ísabella Nótt
Andradóttir fæddist 12.
nóvember 2014. Hún vó
3.188 g og var 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Fanný Mjöll Pétursdóttir
og Andri Brynjar
Jóhannsson.
Nýr borgari
S
igurdís Lilja fæddist á Sel-
fossi 30.4. 1975 en ólst upp
í Kolsholti í Flóahreppi
sem áður hét Villinga-
holtshreppur. Hún er nú
búsett á Selfossi.
Sigurdís gekk í Villingaholtsskóla
til 12 ára aldurs, lauk grunnskóla-
námi við Gagnfræðaskóla Selfoss,
stundaði nám við Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi og lauk þaðan
stúdentsprófum: „Eitt ár var nú samt
tekið í frí frá stúdentsnáminu þegar
ég fór til Bandaríkjanna sem skipti-
nemi á vegum AFS 1993-94.“ Sig-
urdís lauk svo BSc-gráðu í ferða-
málafræðum við HÍ 2002.
Sigurdís sinnti bústörfum á búi for-
eldra sinna heima í Kolsholti til 16 ára
aldurs: „Fyrsta starfið mitt þegar bú-
störfunum sleppti var í Eden í Hvera-
gerði en næstu árin var ég meira og
minna að starfa í veitingageiranum í
Hveragerði og á Selfossi.
Sigurdís Lilja Guðjónsdóttir forstöðumaður – 40 ára
Fjölskyldan Sigurdís Lilja og Sveinn í Stykkishólmi í fyrrasumar með börnin, Eydísi Helgu, Viktor Inga og Óla Frey.
Með fingurna á ferða-
málum Suðurlands
Forsætisráðherra Kína Sigurdís og Wen Jiabao í Hveragerði vorið 2012.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
- Þín brú til betri heilsu
Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf
– Eru kílóin að hlaðast á?
– Er svefninn í ólagi?
– Ertu með verki?
– Líður þér illa andlega?
– Ertu ekki að hreyfa þig reglulega?
– ....eða er hreinlega allt í rugli?
www.heilsuborg.is